Maddalena skrifaði:
Come mai nella spiegazione del primo intreccio c’è scritto ( nella traduzione in italiano) di mettere in sospeso due maglie dietro, mentre negli altri intrecci con la stessa inclinazione, si dice di mettere le maglie in sospeso davanti ?
31.08.2025 - 06:55DROPS Design svaraði:
Buongiorno Maddalena, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto la legenda. Buon lavoro!
07.09.2025 - 15:25
Autumn Valley Sweater#autumnvalleysweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-15 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-94-98-100-106-110-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Nepal eða DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 30-31-33-33-35-37-39 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-11-14-19-20-23-24 lykkjur jafnt yfir = 98-105-112-119-126-133-140 lykkjur. BERUSTYKKI: Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið A.1 alls 14-15-16-17-18-19-20 sinnum berustykkið hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 252-270-288-306-324-342-360 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni, jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út um 8-6-4-2-4-6-8 lykkjur jafnt yfir = 260-276-292-308-328-348-368 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 20-21-23-24-26-26-28 cm, mælt frá merki fyrir miðju að framan eftir stroff. Munið að fylgja prjónfestunni. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 50-54-58-60-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 80-84-88-94-102-110-118 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 50-54-58-60-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 80-84-88-94-102-110-118 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-196-212-228-248-268 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 43-45-46-48-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 32-32-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 204-216-232-248-268-292-316 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 47-49-50-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-54-58-60-62-64-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-62-68-72-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 6-6-5-4-4-3-3 cm alls 2-4-6-8-7-8-9 sinnum = 48-50-52-52-54-56-58 lykkjur í umferð Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-41-40-40-37-38-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 8-8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af. Ermin mælist ca 46-45-44-44-42-43-41 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnvalleysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.