Autumn Valley Cardigan#autumnvalleycardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, köðlum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-16 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 105-109-113-115-121-125-131 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Nepal eða DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið stroff í 3-3-3-3-4-4-4 cm, endið með umferð frá réttu. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður eins og áður) aukið út 7-10-13-18-19-22-23 lykkjur jafnt yfir brugðnar lykkjur = 112-119-126-133-140-147-154 lykkjur. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. BERUSTYKKI: Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1 1 sinni, prjónið síðan A.2 alls 13-14-15-16-17-18-19 sinnum, endið með kant að framan eins og áður. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 266-284-302-320-338-356-374 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kant að framan eins og áður, í fyrstu umferð er aukið út um 8-6-4-2-4-6-8 lykkjur jafnt yfir brugðnar lykkjur = 274-290-306-322-342-362-382 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til stykkið mælist 20-21-23-24-26-26-28 cm, mælt frá merki eftir stroff. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-49-51-54-58-62-66 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-58-60-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 80-84-88-94-102-110-118 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-54-58-60-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 47-49-51-54-58-62-66 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-198-210-226-242-262-282 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-46-48-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 29-33-33-37-41-45-49 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 215-231-243-263-283-307-331 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 47-49-50-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-54-58-60-62-64-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-62-68-72-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 6-6-5-4-4-3-3 cm alls 2-4-6-8-7-8-9 sinnum = 48-50-52-52-54-56-58 lykkjur í umferð Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-41-40-40-37-38-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 8-8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af. Ermin mælist ca 46-45-44-44-42-43-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnvalleycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.