Mossline Sweater#mosslinesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-29 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Fyrsta umferð í mynstri sýnir hvernig mynstrið lítur út þegar staðsetja á merkin fyrir laskalínu – byrjið á að prjóna frá umferð 2 þegar lykkjum er fækkað. Endurtakið síðan síðustu umferðina í A.1 þar til útaukningu fyrir laskalínu er lokið. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjónið og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-104-104-112-120-120-128 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Lima eða DROPS Cotton Merino. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur), síðan er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið stroff svona í 3-3-3-4-4-4-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 38-40-40-44-46-46-48 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 8 ný merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett hvoru megin við 8 lykkjur, þessar 8 lykkjur eru núna kallaðar fyrir laskalykkjur og lykkjurnar eiga að passa við mynstur í fyrstu umferð í A.1 – lesið MYNSTUR í útskýringu að ofan, það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í byrjun umferðar, teljið 8-8-8-8-8-8-8 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-8-8-8-8 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-24-24-24-28-28-32 lykkjur (= framstykki), setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-8-8-8-8 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur (= ermar), setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-8-8-8-8 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 8. merki á undan næstu lykkju, það eru eftir 20-24-24-24-28-28-32 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð með byrjun frá hægri öxl að aftan þannig: Prjónið 2. umferð í A.1, prjónið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 2-2-2-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), prjónið 2. umferð í A.1, prjónið 20-24-24-24-28-28-32 lykkjur sléttprjón JAFNFRAMT sem aukið er út um 2-2-2-2-4-6-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 22-26-26-26-32-34-40 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 2. umferð í A.1, prjónið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur sléttprjón JAFNFRAMT sem aukið er út um 2-2-2-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), prjónið 2. umferð í A.1, prjónið 20-24-24-24-28-28-36 lykkjur sléttprjón JAFNFRAMT sem aukið er út um 2-2-2-2-4-6-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 22-26-26-26-32-34-40 lykkjur fyrir bakstykki) = 96-104-104-112-124-128-140 lykkjur í umferð. Prjónið hringinn í sléttprjóni og endurtakið 3. umferð í A.1 – JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur / A.1 eins og útskýrt er að neðan – sjá útskýringu að ofan með leiðbeiningum með hvernig auka á út. LASKALÍNA: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og 3. umferð í A.1, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur / A.1 (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir 2. merki og í lok umferðar er aukið út á undan 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og 3. umferð í A.1. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-17-20-15-16-13-13 sinnum (= 24-34-40-30-32-26-26 umferðir prjónaðar) = 192-240-264-232-252-232-244 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og 3. umferð í A.1, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og 3. umferð í A.1. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og 3. umferð í A.1 og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 4. og 8. merki og á undan 5. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og 3. umferð í A.1. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 9-7-7-11-11-15-16 sinnum (= 36-28-28-44-44-60-64 umferðir prjónaðar = 9-7-7-11-11-15-16 sinnum útaukning á ermum og 18-14-14-22-22-30-32 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 300-324-348-364-384-412-436 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 30-31-34-37-38-43-45 sinnum á framstykki/bakstykki og 21-24-27-26-27-28-29 sinnum á ermum. A.1 er lokið, síðan prjónað sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-23-25-26-27-31-32 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar að verða staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 6-6-6-6-6-6-6 lykkjur sléttprjón (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 56-62-68-70-72-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-14-16-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 94-100-106-112-120-132-142 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 56-62-68-70-72-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-14-16-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 88-94-100-106-114-126-136 lykkjur í sléttprjóni (= afgangur af bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-228-244-260-280-308-332 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 10-14-16-18-20-22-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 49-52-54-54-56-58-59 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 40-44-48-52-56-60-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 248-272-292-312-336-368-396 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4-5 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 52-55-57-58-60-62-64 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 55-58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 56-62-68-70-72-74-76 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-14-16-18-20-22-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 66-76-84-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-14-16-18-20-22-24 lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm mælt fyrir miðju undir ermi, fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 62-72-80-82-86-90-94 lykkjur. Fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 10-5-3-3-2½-2-1½ cm alls 4-7-10-10-11-12-13 sinnum = 54-58-60-62-64-66-68 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-39-38-37-36-33-31 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-10-12-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 64-68-72-72-76-76-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-42-41-41-40-37-36 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mosslinesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.