Ingrid skrifaði:
Zu meiner Mail von heute Nachmittag: Habe den Fehler inzwischen bei mir gefunden……… 😅 Das Brushed Alpaca Silk Garn hat ja nur 25 g………. Dumm gelaufen Liebe Grüße Ingrid
14.05.2026 - 21:59DROPS Design svaraði:
=) Viel Spaß beim Weiterstricken!
15.05.2026 - 10:21
Ingrid skrifaði:
Kann es sein, dass die Mengenangabe für das Brushed Alpaca Silk Garn nicht stimmt? Ich stricke den Rock in Größe M, bei mir ist der erste Knäuel des Brushed Alpaca Silk allerdings schon vor dem ersten Knäuel Alpaca Uni Color zu Ende……. Was läuft da schief? Hoffentlich könnt Ihr mir helfen! Liebe Grüße Ingrid
14.05.2026 - 17:44DROPS Design svaraði:
Liebe Ingrid, Brushed Alpaca ist nur ca 140 m /25 g und Alpaca ist 167 m /50 g deshalb wird 1 Knäuel Brushed vor 1 Knäuel Alpaca zu Ende. Viel Spaß beim Stricken!
15.05.2026 - 09:47
Silvia skrifaði:
E' possibile lavorarla sui ferri dritti? Grazie, Silvia
25.02.2026 - 15:19DROPS Design svaraði:
Buonasers Silvia, questo modello è lavorato in tondo. Può eventualmente lavorarlo in piano aggiungendo 1 maglia a ogni lato per la cucitura. Buon lavoro!
25.02.2026 - 16:32
Jocelyne Huguenot skrifaði:
Bonjour, Chez moi le rabattagevqelon explication roulotte quand même. Est-ce que jais une erreur quand je relève la maille? Avez vous une video ou une photo concernant quel brin je dois relever? D'avance merci pour votre site en général et pour votre réponse.
02.12.2025 - 10:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Huguenot et merci. Vous retrouverez dans cette vidéo comment on procède pour rabattre les mailles. Bon tricot!
02.12.2025 - 17:11
Charlotte skrifaði:
Jeg arbejder med nederdelen i str. L: Livvidde: 2x43=86 cm Hofte: Mangler? Nederste kant omkreds: 2x64= 128 cm Men en omkreds ( str. L) på nederdelens nederste kant på 128 cm må være en fejl?Og det ville være rart, hvis I kunne tilføje hoftemål. Jeg er også i tvivl om livvidden - skal jeg arbejde med et negativt ease og strikke livvidden mindre i forhold til mit eget mål?Jeg håber, I kan svare på mine spørgsmål.På forhånd mange tak for hjælpen.
13.11.2025 - 09:30DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, Jo målene stemmer og hvis du holder strikkefastheden som står i opskriften, så får du målene som står i måleskitsen. Vi har ikke hoftemål til denne opskrift.
19.11.2025 - 12:09
Elisabeth skrifaði:
Pour décider quelle taille choisir je me demande si la mesure indiquée sur le shéma au niveau de la ceinture tient compte de l'élastique qui sera posé dans l'ourlet ? sinon comment tenir compte de son propre tour de taille pour choisir entre S, M,L ... ? merci d'avance cordialement
29.10.2025 - 16:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Elisabeth, ce sont les mesures finales qui sont indiquées dans le schéma, sans l'élastique, par ex en taille XS les 120 mailles vont mesurer environ 63 cm de circonférence soit 32 cm environ à plat. Bon tricot!
30.10.2025 - 18:45
Everfern Skirt#everfernskirt |
|
![]() |
![]() |
Prjónað hnésítt pils úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-40 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 13 lykkjur slétt (merkið situr í miðjulykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Endurtakið við öll 4 merkin (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LYKKJU MEÐ MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LYKKJU MEÐ MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HRINGLAGA AFFELLING – (lykkjurnar eru teknar upp frá réttu og affellingin gefur hringlaga kant frá röngu þannig að stykkið kemur ekki til með að rúllast upp): Affellingsumferð: Lyftið næstu lykkju á vinstri prjóni af prjóninum og setjið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar lykkjan er sett til baka á prjóninn). Finnið lykkjuna sem liggur 2 umferðum beint fyrir neðan næstu lykkju í umferð. Takið upp þessa lykkju í aftari lykkjubogann frá réttu og lyftið lykkjunni upp á vinstri prjón. Prjónið lykkjubogann og fyrstu lykkjuna snúna slétt saman. * Takið upp næstu lykkju í lykkjubogann á sama hátt og prjónið hana saman með næstu lykkju í umferð. Fellið af með því að lyfta 1. lykkjunni yfir 2. lykkju *. Endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. Klippið og festið þráðinn í byrjun á affellingunni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður faldur sem síðar við frágang er sett teygja í mitt að innanverðu, síðan er pilsið prjónað í hring jafnframt því sem lykkjur eru auknar út. FALDUR: Fitjið upp 120-132-148-162-178-196-216 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 1 þræði DROPS Alpaca (= 2 þræðir). Prjónið 2 cm sléttprjón, prjónið 1 umferð brugðið (= faldur), prjónið 2 cm sléttprjón. Setjið eitt merki í stykkið hér, héðan er nú stykkið mælt frá. PILS: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT því sem fækkað er um 12-12-16-18-22-24-24 lykkjur jafnt yfir = 108-120-132-144-156-172-192 lykkjur. Setjið 4 merki í stykkið án þess að prjóna – setjið merkin í lykkju þannig að það séu 26-29-32-35-38-42-47 lykkjur á milli hverra lykkja með merki. Prjónið sléttprjón þar til pilsið mælist 1 cm frá merki. Munið að fylgja prjónfestunni. Haldið áfram í sléttprjóni jafnframt því sem í næstu umferð er aukið út hvoru megin við hvert merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Aukið svona út í hverjum 1½-2-2-2½-2½-3-3½ cm alls 9-9-9-9-9-9-8 sinnum = 180-192-204-216-228-244-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-48-51-54-57-60-62 cm frá merki. Fellið af með HRINGLAGA AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan. FRÁGANGUR: Faldurinn er brotinn saman að innanverðu á stykki í umferð sem prjónuð var brugðið. Leggið mittisteygju sem hnýtt er saman í rétta lengd í faldinn og saumið faldinn niður að innanverðu pilsi – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Pilsið mælist alls ca 47-50-53-56-59-62-64 cm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #everfernskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.