Marieka skrifaði:
Könnte man diesen Pullover auch mit langen Ärmeln Stricken? Wie würde sich dann die Anleitung verändern? Dankeschön!
20.09.2025 - 21:36DROPS Design svaraði:
Hi Marieka, you can make longer sleeves. How to shape the sleeves depends on the type of sleeves you like: stright sleeves are without any decreases, narrower sleeves need some decreases. You may also ask for help at the store you buy the yarn. Happy knitting!
20.09.2025 - 21:41
Emery Stone#emerystonesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-96-104-104-112-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alpaca Bouclé. Prjónið stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3½-3½-4-4-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-32-34-38-38-40-40 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru sett 4 ný merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru núna kallaðar laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í byrjun umferðar, teljið 20-20-20-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-28-28-28-32-32 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru 24-24-28-28-28-32-32 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. Munið að fylgja prjónfestunni. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun á umferð er aukið út á eftir fyrstu laskalykkju (þ.e.a.s. á eftir fyrstu lykkju í umferð) og í lok umferðar er aukið út á undan síðustu laskalykkju (þ.e.a.s. á undan síðustu lykkju í umferð). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-13-11-15-19-16-20 sinnum (= 20-26-22-30-38-32-40 umferðir prjónaðar) = 168-192-184-224-256-240-272 lykkjur. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6-5-7-5-4-7-6 sinnum (= 24-20-28-20-16-28-24 umferðir prjónaðar = 6-5-7-5-4-7-6 sinnum útaukning á ermum og 12-10-14-10-8-14-12 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 240-252-268-284-304-324-344 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 22-23-25-25-27-30-32 sinnum á framstykki/bakstykki og 16-18-18-20-23-23-26 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-21-23-23-25-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 2-3-2-4-5-4-6 fyrstu lykkjur í sléttprjóni (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 46-48-50-54-58-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 74-78-84-88-94-102-110 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-54-58-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 72-75-82-84-89-98-104 lykkjur í sléttprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-204-220-240-260 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 192-208-224-240-260-284-308 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 45-47-49-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-48-50-54-58-60-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-58-62-68-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-2-2-2-0 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2-2-0 cm alls 2-2-2-2-1-1-0 sinnum = 50-54-58-64-72-76-82 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 16-16-13-14-12-10-9 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-10-10-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-64-68-76-84-90-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 19-19-16-17-16-14-13 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #emerystonesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.