Abby skrifaði:
Hello! For the back piece (in size XL) it says to cast off 27 stitches for the back neckline, but later for the back neck-edge it says to pick up 40 stitches. How is this done? Thank you!
28.04.2025 - 01:20DROPS Design svaraði:
Dear Abby, you will cast off the middle 27 sts then cast off 1 stitch 2 times on each side of neck - when picking up stitches along neck you pick up stitches from shoulder down to neck, along neck and up to left shoulder - there are approx. 4 cm between the middle 27 sts cast off and the top of shoulder on each side - you will have to pick up approx; 6-7 sts from shoulder down to the 27 sts cast off, then 1 st in each of these 27 sts + approx. 7-6 sts from neck up to shoulder = 40 sts. Happy knitting!
28.04.2025 - 09:15
Paula skrifaði:
Auf dem Foto sieht man nur einen Knopf. Laut Anleitung verstehe ich es allerdings so, dass man beide Knopflöcher ins Außenteil einarbeitet und daher auch beide Knöpfe sieht. Ist das korrekt? Ansonsten verstehe ich nicht, was der erste und was der zweite Markierungsfaden ist.
11.04.2025 - 18:12DROPS Design svaraði:
Liebe Paula, die beide Knöpfe werden auf der rechten Vorderteil angenäht; der eine an der Außenseite und der andere (der kleine) in der Innenseite, deshalb kann man nur einen Knopf auf dem Bild sehen, da der kleinere innen ist. Viel Spaß beim Stricken!
22.04.2025 - 08:03
New Dawn Wrap#newdawnwrap |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð vafninspeysa með stuttum ermum úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 KANTLYKKJUR I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 2 hnappagötum frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur fram hjá öðrum merkiþræðinum (þ.e.a.s. í vinstri hlið, séð þegar flíkin er mátuð), prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðan eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið út umferðina eins og áður. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið og það myndist hnappagat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= fækkið um 2 lykkjur í hlið): Öll úrtaka er gerð frá réttu. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= fækkið um 1 lykkju í hlið): Öll úrtaka er gerð frá réttu. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 6 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. I-CORD AFFELLING: Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast snúra). UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið yfir 3 lykkjum af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjóninn. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp að handvegi jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir vafningsstykkið og aukið út í hliðum. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Fellt er af með i-cord aftan í hnakka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 239-263-287-317-359-395 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Merino og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 2 KANTLYKKJUR I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 kantlykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): 2 kantlykkjur i-cord, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 kantlykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 einu sinni til viðbótar. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 5 (= ranga): 2 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 kantlykkjur eins og áður. UMFERÐ 6 (= rétta): 2 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur eins og áður. Á eftir UMFERÐ 6: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjur i-cord í hvorri hlið eins og áður. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á stykki, 78-86-94-104-118-130 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 83-91-99-109-123-135 lykkjur á milli merkiþráð á bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm, fellið af fyrir 2 HNAPPAGAT í vinstra framstykki – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm, byrjar úrtaka fyrir vafningsstykki í báðum hliðum á stykki – JAFNFRAMT byrjar útaukning fyrir meiri vídd á fram- og bakstykki hvoru megin við merkiþræðina. Lestu báða kaflana að neðan áður en þú prjónar áfram. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. ÚRTAKA FYRIR VAFNINGSSTYKKI: Setjið 1 merki innan við ystu 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki og látið þessi merki fylgja áfram með í stykkinu. Fækkið lykkjum frá réttu í hvorri hlið á stykki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 2 lykkjur 15-16-17-19-23-26 sinnum, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum síðan í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju 13-15-17-18-18-18 sinnum. Fækkið síðan lykkjum í 4. hverri umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju 6-6-7-7-7-7 sinnum – ATH. Passið uppá að i-cordkanturinn verði ekki of stífur þegar lykkjum er fækkað innan við kantlykkjur. ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina (= 4 lykkjur fleiri) þannig: Aukið út í hverjum 3½-3½-4-4-4-4 cm alls 6 sinnum (= 24 lykkjur fleiri). SKIPTING VIÐ HANDVEG: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 4-5-6-8-10-12 lykkjur fyrir handveg hvoru megin við báða merkiþræðina (= 8-10-12-16-20-24 lykkjur felldar af í hvorri hlið). Nú er bakstykkið og framstykkin prjónað til loka hvert fyrir sig. BAKSTYKKI: = 87-93-99-105-115-123 lykkjur. Setjið 1 nýtt merki innan við ystu 3 lykkjur í hvora hlið á stykki og látið þessi merki fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum fyrir handveg frá réttu í hvorri hlið á stykki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 2 lykkjur 0-0-0-2-4-6 sinnum í hvorri hlið, lesið síðan LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið síðan lykkjum í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju 7-9-11-9-9-7 sinnum í hvorri hlið = 73-75-77-79-81-85 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm, fellið af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: = 24-25-25-26-26-28 lykkjur. Setjið 1 merki innan við ystu 3 lykkjur við hálsmál og látið merkið fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið sléttprjón, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-23-24-24-26 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið 1 nýtt merki innan við ystu 3 lykkjur í hlið við handveg. Látið merkið fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjur i-cord eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir vafningsstykki eins og áður. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg frá réttu í hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 2 lykkjur 0-0-0-2-4-6 sinnum í hlið, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum síðan í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju 7-9-11-9-9-7 sinnum í hlið. Þegar öll úrtaka fyrir vafningsstykki og handveg hefur verið gerð til loka eru 24-25-25-26-26-28 lykkjur eftir fyrir öxl (það eru 2 lykkjur fleiri á öxl á framstykki en á bakstykki vegna kantlykkja). Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af ystu 22-23-23-24-24-26 lykkjur frá handveg fyrir öxl (fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu) = 2 lykkjur eftir. Prjónið þessar 2 lykkjur eins og áður og setjið lykkjur á lykkjuhaldara (lykkjurnar eru notaðar þegar fella á af með i-cord aftan í hnakka). VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki og munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA þegar lykkjum er fækkað fyrir vafningsstykki og handveg, en þegar lykkjur eru felldar af fyrir öxl, fellið af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu (2 kantlykkjur eru einnig felldar af). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma – saumið lykkju á móti lykkju frá handveg og inn að hálsmáli. ATH: Þær 2 kantlykkjur frá hægra framstykki eru ekki saumaðar. Saumið 2 tölur í hvora hlið á hægra framstykki þannig að þær passi við hnappagötin, tölurnar eru lagðar ofan á hvora aðra með flíkina á milli, þ.e.a.s. litla talan á að vera staðsett á röngu á flíkinni eins og stuðningstala og stóra talan á að vera staðsett á réttu – saumið í gegnum stóru töluna, flíkina og litlu töluna samtímis. KANTUR Í HÁLSMÁLI AFTAN Í HNAKKA: Notið hringprjón 4, byrjið frá réttu við hægri öxl (séð þegar flíkin er mátuð) og prjónið upp ca 38-38-40-40-42-42 lykkjur meðfram hálsmáli að aftan frá hægri öxl að vinstri öxl. Klippið þráðinn. Setjið 2 lykkjur frá lykkjuhaldaranum á hægra framstykki á prjón 4, prjónið þessar 2 lykkjur slétt og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= 3 lykkjur). Prjónið I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan þar til einungis 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur á hægri prjóni. Lyftið til baka 2 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón og fellið af. Saumið þessar 2 lykkjur saman með 2 kantlykkjur sem felldar voru af á vinstra framstykki. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt, setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl og 1 merkiþráð neðst í handveg (= mitt í 8-10-12-16-20-24 lykkjur sem felldar voru af í hlið fyrir handveg). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3 og byrjið við merkiþráðinn neðst í handvegi. Prjónið upp 72-76-82-86-92-96 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki / merkiþráðinn. Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-6-6-6-6 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-6-6-6-6 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 2-2-2-1-1-1 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 2-2-2-1-1-1 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 til 6. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 26-28-30-36-42-48 sinnum (= 13-14-15-118-21-24 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Þegar síðasta umferð 4 eða 6 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1 cm mælt fyrir miðju undir ermi fækkið um 2 lykkjur 2-3-5-5-6-7 sinnum í annarri hverri umferð = 68-70-72-76-80-82 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 25-25-26-26-27-27 cm frá merki fyrir miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á hringprjón 3 og haldið eftir lykkjum í umferð. Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón. Prjónið i-cord affelling – munið eftir útskýringu að ofan, þar til einungis 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjunum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón og fellið af. Saumið saman i-cordlykkjurnar með nokkrum sporum. Ermin mælist ca 26-26-27-27-28-28 cm frá miðju ofan á öxl. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #newdawnwrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.