DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Paris yarn
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Lilac Bliss

Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með i-cord og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 259-40

#lilacblisssweater

DROPS Design: Mynstur w-931
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-600-650-700-750 gr litur 77, sæt orkidé

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferð á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2618.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg og hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Byrjið 2 lykkjur á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig:
Á UNDAN MERKIÞRÆÐI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR MERKIÞRÆÐI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

I-CORD AFFELLING:
Lyftið þessum 3 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur).
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu.
Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af.
Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig fram og til baka.
Axlasaumar saumaðir. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermakúpan prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í kringum hálsmál í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 172-190-202-220-246-268 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 156-172-184-200-224-244 lykkjur.
Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar og einn merkiþráð eftir 78-86-92-100-112-122 lykkjur (= í hliðar á fram- og bakstykki). Það eru jafnmargar lykkjur á milli merkiþráða fyrir framstykki og bakstykki. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota þá þegar lykkjum er fækkað og aukið út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn og munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.

Þegar stykkið mælist 8 cm, á að fækka lykkjum í hliðum – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona alls 2 sinnum í 4. hverjum cm = 148-164-176-192-216-236 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá síðustu úrtöku, á að auka út í hliðum – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út alls 2 sinnum í 4. hverjum cm = 156-172-184-200-224-244 lykkjur.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm.

Nú á að fella af fyrir handveg, næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 4-6-6-8-8-8 lykkjur á undan merkiþræði við byrjun umferðar, fellið af 8-12-12-16-16-16 lykkjur, prjónið 70-74-80-84-96-106 lykkjur (= bakstykki), fellið af 8-12-12-16-16-16 lykkjur, prjónið 70-74-80-84-96-106 lykkjur (= framstykki).
Framstykkið og bakstykkið er nú prjónað hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 70-74-80-84-96-106 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir og næsta umferð er prjónuð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona 4-4-4-4-2-2 hverri umferð alls 5-6-8-10-15-19 sinnum = 60-62-64-64-66-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-43-45-45-47-49 cm frá uppfitjunarkanti eru miðju 18-20-22-22-24-26 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru síðan prjónaðar hvor fyrir sig = 21-21-21-21-21-21 lykkjur fyrir hvora öxl. Í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið um 1 lykkju alls 3 sinnum = 18-18-18-18-18-18 lykkjur fyrir öxl.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
= 70-74-80-84-96-106 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir og næsta umferð er prjónuð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona 4-4-4-4-2-2 hverri umferð alls 5-6-8-10-15-19 sinnum = 60-62-64-64-66-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá uppfitjunarkanti eru felldar af miðju 22-247-26-26-28-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig = 19-19-19-19-19-19 lykkjur.
Í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli er lykkjum fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli = 18-18-18-18-18-18 lykkjur fyrir öxl. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMAR:
Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 48-52-54-58-60-62 lykkjur á sokkaprjón 5.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 8-8-8-9-9-9 cm eru lykkjur auknar út fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig:
Aukið út 2 lykkjur í hverjum 10-8-8-6-4½-3½ cm alls 4-5-5-6-7-8 sinnum = 56-62-64-70-74-78 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 44-43-43-42-40-38 cm. Nú er ermakúpan prjónuð eins og útskýrt er að neðan.

ERMAKÚPA:
Í næstu umferð eru felldar af 8-12-12-16-16-16 lykkjur fyrir miðju undir ermi, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn þá byrjar umferðin 4-6-6-8-8-8 lykkjur á undan merkiþræði fyrir miðju undir ermi, fellið af 8-12-12-16-16-16 lykkjur og prjónið síðan eins og áður út umferðina.
Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka jafnframt því sem fellt er af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fellið af í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53-53-53-54-55-55 cm, síðan eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið.
Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 54-54-54-55-56-56 cm.

I-CORD KANTUR:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju neðst á ermi á sokkaprjón 5 = 48-52-54-58-60-62 lykkjur og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 51-55-57-61-63-65 lykkjur. Fellið af með I-CORD AFFELLING – munið leiðbeiningar að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar við handveg.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 5, prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 56 til 78 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði fyrir miðju að framan). Í lok umferðar eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu, ekki snúa stykkinu. Fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.04.2025
Efnismagn hefur verið uppfært.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 259-40

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lilacblisssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Christine Böse skrifaði:

1. Die Mengenangabe des benötigten Garns ist bei Größ M um 300 g zu niedrig angesetzt 2. Die Ärmelauschnitte passen nicht zum Ärmel. Beides ist schade: die nachbestellte Menge Garn passt natürlich farblich nicht zur ersten Menge. Ein Top wie Drops 259-39 wollte ich nicht haben.

24.05.2025 - 13:03

country flag Uli skrifaði:

Ich finde das Pattern und auch die Frage wunderschön. Aber auch ich wundere mich über die Garnmenge, die mir sehr wenig vorkommt. Der ebenfalls in der Frühjahrkollektion veröffentlichte Pulli Tide Turn, mit einem ähnlichen Schnitt benötigt deutlich mehr Wolle. Eine kurze Antwort zu der Frage wäre super!

03.04.2025 - 16:10

DROPS Design svaraði:

Liebe Ulli, der Pullover Tide Turn ist aber größer, dh breiter und länger, deshalb braucht man dafür mehr Garn. Viel Spaß beim Stricken!

04.04.2025 - 08:16

country flag Marlies Van Dijk skrifaði:

Goedemorgen, zou ik nog antwoord op mijn vraag over de hoeveelheid garen kunnen krijgen?

22.03.2025 - 09:44

country flag Marlies skrifaði:

Kan het zijn dat de hoeveelheid garen voor dit patroon niet klopt? De aangegeven hoeveelheid Paris per maat lijkt mij veel te weinig, gezien mijn ervaring met Paris. Ook hebben andere patronen met Paris veel meer garen nodig dan in dit patroon aangegeven staat.

11.03.2025 - 21:21

DROPS Design svaraði:

Dag Marlies,

Dit lijkt inderdaad vrij weinig en komt in mijn ogen ook niet overeen met vergelijkbare patronen in DROPS Paris. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om na te kijken en aan te passen. Voor nu zou je kunnen kijken naar een vergelijkbaar patroon om de hoeveelheid te bepalen, bijvoorbeeld dit patroon.

13.04.2025 - 11:03