DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Violet Reverie Cardigan

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með stuttum ísaumuðum ermum og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 259-4

#violetreveriecardigan

DROPS Design: Mynstur ks-243
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL – XXL

GARN:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-200-200 gr litur 11, fjólublár

TÖLUR:
DROPS TALA NR 715: 3-4-4-4-4-4 stykki.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferð á hæð með sléttprjóni með 2 þráðum með prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 177 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 19) = 8,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 8. og 9. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (framstykki = 5 lykkjur):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3. og 4. lykkju frá kanti fyrir miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið síðan áfram með lykkjur frá framstykki eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, fellið síðan af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
XS: 16 og 29 cm
S: 12, 21 og 30 cm
M: 12, 21 og 30 cm
L: 13, 22 og 31 cm
XL: 13½, 23 og 32½ cm
XXL: 14, 24 og 34 cm

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR KANTI AÐ FRAMAN ÞANNIG:
Prjónið kant að framan eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN KANTI AÐ FRAMAN ÞANNIG:
Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið kant að framan eins og áður (= 1 lykkja færri).

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 2 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvert stykki er prjónað til loka hvert fyrir sig fram og til baka.
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermakúpan prjónuð til loka fram og til baka. Stykkið eru saumuð saman.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 177-195-209-225-243-257 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, síðasta umferð er prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur.
Jafnframt sem fækkað er um 19-21-23-23-25-27 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 158-174-186-202-218-230 lykkjur (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan).
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður í hvorri hlið – lesið HNAPPAGAT. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Setjið einn merkiþráð 42-46-49-53-57-60 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 74-82-88-96-104-110 lykkjur á bakstykki á milli merkiþráða) – látið merkiþræðina fylgja áfram með upp úr, það á að nota þá þegar lykkjum er fækkað fyrir handveg.
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm fellið af lykkjur fyrir handveg, lestu því báða kaflana að neðan áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við kant að framan ca í hverjum cm, fækkið alls 12-13-13-14-15-15 sinnum.

SKIPTING FYRIR HANDVEG:
Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig:
Prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merkiþræði, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið fram þar til 3 lykkjur eru eftir á undan seinni merkiþræði, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið út umferðina eins og áður.
Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu.
Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli eins og áður jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-3-6-4-5-4 sinnum.
Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 23-23-23-23-23-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 18-18-18-18-18-20 lykkjur. Prjónið síðan yfir kantlykkjur að framan í ca 7-7½-7½-8-9-9 cm. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu.
Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli eins og áður jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkju 2-3-6-4-5-4 sinnum.
Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 23-23-23-23-23-25 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 18-18-18-18-18-20 lykkjur. Prjónið síðan yfir kanta að framan í ca 7-7½-7½-8-9-9 cm. Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 68-76-82-90-98-104 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni eins og áður og fellið af lykkjur fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 2-3-6-4-5-4 sinnum í hvorri hlið = 60-62-62-64-66-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 22-24-24-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

ÖXL:
Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 18-18-18-18-18-20 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.

ERMAR:
Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 52-56-62-68-74-82 lykkjur á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 1 umferð GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan.
Í næstu umferð er skipt yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið umferð 1 slétt JAFNFRAMT því sem fækkað er um 6-6-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 46-50-54-60-66-72 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er aukið út undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.
Prjónið hringinn í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út lykkju fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig:
Aukið út 2 lykkjur í hverjum 1½-2-2-2-2-1 cm alls 4-3-3-2-2-1 sinnum = 54-56-60-64-70-74 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 10-10-10-9-8-7 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er ermakúpan prjónuð eins og útskýrt er að neðan.

ERMAKÚPA:
Í næstu umferð eru felldar af 6 lykkjur fyrir miðju undir ermi, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá þá byrjar affellingin 3 lykkjum á undan merkiþræði fyrir miðju undir ermi, fellið af og prjónið síðan eins og áður út umferðina.
Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka í sléttprjóni JAFNFRAMT sem lykkjur eru felldar af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fellið af í byrjun hverrar umferðar þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 4-5-7-5-7-8 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinnum í hvorri hlið = 18-18-18-18-20-22 lykkjur eftir.
Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 19-20-21-21-22-22 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg. Saumið saman kanta að framan fyrir miðju að aftan og saumið síðan kanta að framan niður meðfram kanti í hálsmáli á bakstykki. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 259-4

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #violetreveriecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Guylaine skrifaði:

Bonjour, vous pouvez ignorer ma question du 13.04.2025. J’avais mal interprété ce qui était entendu par ‘côté’… Je pensais côté droit et côté gauche, mais je comprend maintenant que c’est côté endroit et côté envers! Cela fait pas mal plus de sens!

20.04.2025 - 21:01

country flag Guylaine skrifaði:

Bonjour, pour la manche, si celle-ci doit mesurer au total 20 cm et qu’on commence a rabattre le haut de la manche à 10 cm, pour un echantillon de 22 rangs pour 10 cm , ça implique que les rabats doivent se faire seulement sur les rangs endroits, non? J’ai suivi vos instructions qui indiquent de rabattre 10 fois de chaque côté (donc sur 10 rangs) et ma manche ne fait pas 10 cm… Merci de clarifier les rabats du haut de la manche.

18.04.2025 - 23:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Guylaine, vous devez tricoter 21 rangs au total en taille M pour la tête de manche: 1 rang où on rabat 6 mailles, puis on va rabattre de chaque côté: 2 x 2 m => 4 rangs au total + 5 x 1 m => 10 rangs au total + 2 x 2m => 4 rangs au total et enfin 1 x 3 m => 2 rangs au total soit un total de 1+4+10+4+2=21 rangs soit environ 10 cm au total. Bon tricot!

22.04.2025 - 14:32

country flag Ktil skrifaði:

Bonjour, J'aimerais tricoter ce gilet, mais avec 2 aiguilles "normales". Comment je compte les mailles pour le devant et pour le dos puisque ces 2 parties sont tricotées séparément ? Dans l'attente, et avec mes remerciements anticipés, Cordialement.

13.04.2025 - 18:22

DROPS Design svaraði:

Bonjour Ktil, vous pouvez simplement tricoter le bas du gilet (dos et devants) en allers et retours sur aiguilles droites, comme dans les explications; ou bien il vous faudra recalculer chaque partie si vous voulez des coutures sur les côtés. Vous trouverez quelques astuces dans cette leçon. Bon tricot!

22.04.2025 - 08:42

country flag Sophie skrifaði:

Bonjour, Est-il possible pour ce gilet de faire des manches longues et de faire des côtes serrées pour les poignets ? Combien de pelotes dans ce cas faut-il rajouter ? Merci

28.03.2025 - 07:36

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sophie, tout à fait, vous pouvez vous inspirer d'un modèle de même tension avec les manches longues, par ex. ici (ajoutez des filtres pour affiner la recherche) - la quantité de laine dépendra de la taille et la longueur des manches souhaitées, votre magasin saura vous aider et vous renseigner si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

28.03.2025 - 08:29