Anja skrifaði:
Ich sehe den Zusammenhang zu der Anleitung nicht. In dieser Anleitung wird nichts zusammengenäht oder angenäht, sondern offenbar die Passe an die beiden Blendenteile direkt angestrickt.
25.02.2026 - 20:09DROPS Design svaraði:
Liebe Anja, schauen Sie mal ganz am Ende bei Fertigstellen - die Blendenteile werden an der hinteren Mitte zusammengenäht und dann an den hinteren Halsausschnitt genäht. Sie stricken also erst zwei separate Blenden, dann schlagen Sie dazwischen Maschen für die Passe an (d.h. überwiegend für den rückwärtigen Halsausschnitt) und stricken den Pulli. Die beiden losen Blendenteile baumeln ja dann noch lose, also müssen Sie die Blenden festnähen, was im allerletzten Schritt wie in der Anleitung beschrieben erfolgt. Viel Spaß beim Stricken!
25.02.2026 - 21:37
Anja skrifaði:
Hallo, gibt es ein Video tutorial für diese Art der V-Ausschnitt-Blenden Konstruktion? Ich kann es mir nicht so richtig vorstellen.
24.02.2026 - 11:06DROPS Design svaraði:
Liebe Anja, vom Prinzip her können Sie es sich wie im Video "Wie man zwei Blendenteile zusammennäht..." gezeigt vorstellen, dass Video finden Sie bei den Videos zur Anleitung (ggf. wenn Sie auf "Show more related videos" klicken). Die Blende ist zwar bei diesem Pulli eine I-Cord, aber zur Veranschaulichung können Sie das Video hinzuziehen. Viel Spaß beim Stricken!
24.02.2026 - 11:24
Anna skrifaði:
Buonasera.. il bordo sinistro e il bordo destro a cosa servono? Sulla descrizione dello sprone, “lavorare il bordo sinistro come prima…poi avviare… lavorare il bordo destro come prima… poi avviare…”, non capisco…
08.02.2026 - 23:04
JEANNE skrifaði:
Bonsoir, merci pour votre réponse mais à quel moment remettez vous les mailles sur les aiguilles circulaires ?
04.02.2026 - 00:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Jeanne, on tricote dès le début avec les aiguilles circulaires, d'abord en allers et retours, puis, lorsque les diminutions de l'encolure sont faites, on continue en rond, cf. paragraphe ENCOLURE V:. Bon tricot!
04.02.2026 - 17:28
JEANNE skrifaði:
Bonjour, je tricote toujours mes pulls en top down mais je ne sais pas du tout comment faire pour faire le col en V avec le top down. Pouvez vous m’aider s’il vous plaît. Un grand merci
02.02.2026 - 19:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Jeanne, procédez simplement comme indiqué: on commence ici par la bordure de chacun des devants (séparément) puis on va monter les mailles de l'empiècement(cf exemple en vidéo pour un modèle similaire) puis on va augmenter en même temps pour l'encolure et le raglan, au rythme indiqué pour votre taille, et, quand les augmentations de l'encolure sont terminées, on continue en rond. Bon tricot!
03.02.2026 - 17:31
Kath skrifaði:
Bonjour! Pour le pull Delicate Dance, puis-je remplacer les laines suggérées par la 1 seule fil de fingering, par exemple DROPs Baby Merino ou DROPS Nepal? Merci beaucoup
16.01.2026 - 17:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Kath, vous pouvez changer les fils tant que vous conservez bien la bonne tension en largeur et en hauteur; utilisez le convertisseur pour voir les alternatives possibles et les quantités correspondantes. Notez également que la texture pourra être différente en fonction des laines choisies, pensez à faire un échantillon au préalable pour vérifier votre tension et si la texture vous convient, Bon tricot!
19.01.2026 - 07:55
Anke skrifaði:
Wenn ich am Anfang 2 Blendenteile a 20cm stricke, die ich am Ende in der hinteren Mitte zusammennähen und an den rückwärtigen Halsausschnitt nähen soll, müsste dieser eine Breite von 40 cm haben, es sollen ( bei Größe XXL) aber nur 19 sein. Das verstehe ich nicht - ist das mit jeweils 20cm wirklich richtig?
26.10.2025 - 13:14DROPS Design svaraði:
Liebe Anke, Sie müssen die Breite der Ärmel auch noch mit einrechnen. Sie schlagen ja zwischen den Blenden 64 M an, über diese Länge müssen die Blenden-Teile passen. 64 Maschen entsprechen gemäß der Maschenprobe ca. 40 cm, das passt dann zu den Blenden-Teilen. Viel Spaß beim Stricken!
05.11.2025 - 20:16
Dele skrifaði:
Bonjour, Pour le pull délicate dance, quand j'ai fais les trois rangs d'augmentations du raglans ( en tous 6rangs avec l'envers). Comment j'augmente ensuite? Tous les rangs endroits ou un rang sur deux endroits? Jusqu'à ce que j'arrive à la fin de l'encolure ? Merci
13.10.2025 - 16:09
Dele skrifaði:
Bonjour, Pour le pull délicate dance, quand j'ai fais les trois rangs d'augmentations du raglans ( en tous 6rangs avec l'envers). Comment j'augmente ensuite? Tous les rangs endroits ou un rang sur deux endroits? Jusqu'à ce que j'arrive à la fin de l'encolure ? Merci
13.10.2025 - 16:08DROPS Design svaraði:
cf. réponse ci-dessous.
15.10.2025 - 08:44
Dele skrifaði:
Bonjour, Lorsque j'ai fait les trois augmentations du raglan( 6 rangs) Est ce que je continue à augmenter tous les rangs endroits jusqu' à ce que j'ai rejoint la fin de l'encolure et que je joint l'ouvrage en rond?
12.10.2025 - 14:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dele, quand vous avez augmenté 3 fois tous les 2 rangs (6 rangs au total), vous tricotez en suivant les rangs /tours 1 à 4 (vous augmentez 8 m au rang/tour1 et 4 m seulement au rang/tour 3); en même temps, vous augmentez pour l'encolure 6 x tous les 6 rangs, et, quand ces augmentations sont terminées, vous tricotez en rond comme indiqué à la fin de ENCOLURE V. Vous continuez ensuite à augmenter pour le raglan comme avant, mais cette fois ci en rond. Bon tricot!
15.10.2025 - 08:22
Delicate Dance#delicatedancesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, v-hálsmáli, rúllukanti og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-13 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------ LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. V-HÁLSMÁL: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja / mitt í þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Fyrst eru prjónaðir tveir kantar að framan hvor fyrir sig, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli þessa kanta að framan og prjónað er ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan þar til v-hálsmálið hefur verið prjónað til loka, síðan er berustykkið prjónað til loka í hring. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 4 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 1 þræði DROPS Flora (= 2 þræðir). RÉTTA: Prjónið 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 3 lykkjur slétt. Endurtakið þessar 2 umferðir þar til kantur að framan mælist 19-19-20-20-20-21 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og geymið stykkið. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 4 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk og 1 þræði DROPS Flora (= 2 þræðir). RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur brugðið. RANGA: Prjónið 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Endurtakið þessar 2 umferðir þar til kantur að framan mælist 19-19-20-20-20-21 cm, síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli kanta að framan eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið yfir vinstri kant að framan eins og áður frá réttu, fitjið upp 60-60-62-62-64-66 nýjar lykkjur í umferð, prjónið yfir hægri kant að framan eins og áður frá réttu = 68-68-70-70-72-74 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 4 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið eins og áður. Setjið 4 merki í stykkið án þess að prjóna þannig: Teljið 5 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 22-22-24-24-26-28 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 16 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 5 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= framstykki). Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 4 lykkjur í kanti að framan eins og áður í hvorri hlið, jafnframt því sem aukið er út bæði fyrir LASKALÍNA og V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan og lesið báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. V-HÁLSMÁL: Byrjið útaukningu fyrir v-hálsmáli í fyrstu umferð frá réttu, síðan er aukið út fyrir v-hálsmáli í 6. hverri umferð 6-6-7-7-8-9 sinnum, aukið út 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út innan við kantlykkjur að framan. Þegar aukið hefur verið út til loka fyrir v-hálsmáli, prjónið 1 umferð frá röngu, síðan eru framstykkin sett saman frá réttu þannig: Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 4 lykkjur á kaðlaprjón sem haldið er aftan við stykkið, prjónið síðan fyrstu 4 lykkjur frá réttu á hinum framstykkinu, setjið 1 merki í umferð (umferðin byrjar hér), prjónið lykkjur af kaðlaprjóni slétt. Prjónið síðan stykkið í sléttprjóni hringinn jafnframt því sem aukið er út til loka fyrir laskalínu. LASKALÍNA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við lykkju með merki (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-6-7-4-4 sinnum (= 6-6-12-14-8-8 umferðir prjónaðar). Síðan er prjónað og aukið út þannig (ATH! Þegar stykkið hefur verið sett saman við miðju að framan, prjónið hringinn yfir allar lykkjur, en útaukning heldur áfram á sama hátt eins og útskýrt er að neðan): UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við lykkju með merki (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 9-10-9-10-13-14 sinnum (= 36-40-36-40-52-56 umferðir prjónaðar = 9-10-9-10-13-14 sinnum útaukning á ermum og 18-20-18-20-26-28 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki). Öll útaukning fyrir laskalínu og v-hálsmáli er nú lokið, aukið hefur verið út alls 12-13-15-17-17-18 sinnum á ermum og 21-23-24-27-30-32 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 6-6-7-7-8-9 sinnum fyrir v-hálsmáli. Það eru 212-224-240-260-276-292 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-23-24-27-30-32 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið við miðju að framan, prjónið 33-35-37-40-44-47 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 40-42-46-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 66-70-74-80-88-94 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 40-42-46-50-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 33-35-37-40-44-47 lykkjur sléttprjón (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-160-172-188-208-224 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Nú er prjónaður rúllukantur neðst á peysunni. Prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), prjónið 4 umferðir sléttprjón. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 40-42-46-50-50-52 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-58-64-66-70 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar hér. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn þar til stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni. Fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 10-8-5½-3½-3½-2½ cm alls 4-5-7-9-9-10 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-39-39-37-34-32 cm frá skiptingunni, það eru ca 3 cm að loka máli. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 43-42-42-40-37-35. FRÁGANGUR: Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman – saumur = miðja að aftan, saumið síðan að lykkjum í kringum hálsmál. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #delicatedancesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.