Margot Withagen skrifaði:
Goedendag, Ik heb een vraag over dit mooie patroon. Ik ben aangekomen bij het verdelen voor lijf en mouwen. In de kleine maten moet het werk in het midden van de raglansteken verdeeld worden. Dat begrijp ik niet, hoe kun je een steek delen? Is er een video voor het opzetten van extra steken?Hartelijke groet, Margot
23.05.2025 - 16:32
Montserrat Pons Sanvidal skrifaði:
No entiendo... En el canesú, después de poner los marcadores porqué explicais 1a y 2a vuelta y después volveis a explicar 1a y 2a vuelta , no entiendo si es la misma repetición o que a partir de la 1a y 2a vuelta continua diferente. Encuentro las explicaciones demasiado liosas. Podeis ayudarme?
10.05.2025 - 22:10DROPS Design svaraði:
Hola Montserrat, primero trabajas la vuelta 1 y 2 una vez y las repites tantas veces como se indica para tu talla (2-2-5-8-14-13 veces las dos vueltas = 4-4-10-16-28-26 vueltas trabajadas según este patrón, incluyendo las primeras 2 "Vuelta 1" y "Vuelta 2". Ahora establecemos un nuevo patrón (nos olvidamos completamente de lo anterior) y, en este patrón, las primeras 2 vueltas van a ser la "Vuelta 1" y "Vuelta 2" nuevas, aparte de las siguientes vueltas 3 y 4. Ahora vas a repetir estas 4 nuevas vueltas.
11.05.2025 - 01:26
Hannele Seppä skrifaði:
Imettelen,miksi helman joustinkerroksella lisätään 44 simukkaa.Luulis että joustimesta tulee löysä.
28.03.2025 - 20:14
Sonja Møller Christensen skrifaði:
Hej Som meget nybegynder udi strikkekunsten, har jeg lidt svært ved at regne ud hvor meget garn jeg skal bruge. Kan jeg bruge Drops belle til denne sommer bluse - hvis - hvor mange nøgler skal jeg bestille? Mvh. Sonja Christensen
27.02.2025 - 17:05DROPS Design svaraði:
Hej Sonja, ja det kan du, til tilhører samme garngruppe. Brug vores garnomregner. Vælg DROPS Sky, Vælg antal gram i din størrelse, Vælg 1 tråd og klik på: Find alternativ :)
06.03.2025 - 11:26
Lavender Dust#lavenderdustsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn til baka aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-120-128-132-136 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) í 2-2-3-3-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 37-38-40-44-45-46 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 32-34-38-38-40-42 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 32-34-38-38-40-42 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 14-15-14-13-11-13 sinnum (= 56-60-56-52-44-52 umferðir prjónaðar = 14-15-14-13-11-13 sinnum útaukningar á ermum og 28-30-28-26-22-26 útaukningar á framstykki/bakstykki = 292-308-328-348-376-396 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út 30-32-33-34-36-39 sinnum á framstykki/bakstykki og 16-17-19-21-25-26 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 21-23-24-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Í stærð S, M og L skiptist stykkið fyrir miðju í laskalínu, í stærð XL, XXL og XXXL skiptist stykkið þannig að laskalínur eru staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 0-0-0-2-4-5 lykkjur sléttprjón (þessar lykkjur tilheyra bakstykki, setjið næstu 54-56-60-64-68-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-14-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 92-98-104-110-120-130 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 54-56-60-64-68-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-14-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 92-98-104-108-116-125 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 204-224-240-260-284-312 lykkjur. Setjið merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 10-14-16-20-22-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 37-39-40-41-42-44 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 44-44-48-54-60-62 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 248-268-288-314-344-374 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm er fellt af aðeins laust. Peysan mælist 41-43-45-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 54-56-60-64-68-68 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-14-16-20-22-26 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 64-70-76-84-90-94 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 13-11-9-11-9-8 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 70-76-82-92-98-104 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-3-3 cm er fellt af aðeins laust. Ermin mælist ca 15-13-12-14-12-11 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderdustsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.