 Anita skrifaði:
 
																									Anita skrifaði:
												
Bonjour, Je ne trouve pas le même nombre de mailles total à l'empiècement. Pour une taille L, j'obtiens 11+25+11+25 = 72m alors que vous donnez 88 m. Pour les autres tailles, c'est pareil. Y a-t-il quelque chose que je ne comprends pas ou bien est-ce une coquille ? Cordialement,
09.02.2025 - 16:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Anita, il semble que vous oubliez les mailles de A.1 = celles du raglan à tricoter à chaque transition entre les manches et le dos/le devant, soit: 5 m de A.1, 11 m de manche, 5 m de A.1, 25 m de devant, 5 m de A.1, 11 m de manche, 5 m de A.1, et 25 m de dos = 5+11+5+25+5+11+5+25=92 mailles. Notez qu'au 1er rang de A.1, vous diminuez 1 maille (cf 3ème symbole dans la légende, il reste ainsi 4 m dans chaque A.1 pour la torsade de A.2 et ainsi 88 mailles sur l'aiguille. Bon tricot!
10.02.2025 - 10:51
																									 Paula skrifaði:
 
																									Paula skrifaði:
												
Please can you think of creating patterns designed for more slender people. You used to have smaller sizes . This may be the fashion but the finished article swamps me. It looks big on the model too.
08.02.2025 - 11:16| Frosted Whisper#frostedwhispersweater | |||||||||||||
|  |  | ||||||||||||
| Prjónuð peysa úr DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk eða DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
							DROPS 258-3 | |||||||||||||
| ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN A.2: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón, prjóna aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR A.2: Sláið 1 sinni um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan draga þráðinn aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt í aftari lykkjubogann. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. HÁLSMÁL: Fitjið upp 84-88-92-96-96-100 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Daisy og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið umferðir slétt, prjónið síðan 2 umferðir með stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: A.1, 11 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 21-23-25-27-27-29 lykkjur sléttprjón, A.1 (= framstykki), 11 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 21-23-25-27-27-29 lykkjur sléttprjón (= bakstykki) = 80-84-88-92-92-96 lykkjur. Prjónið síðustu umferð í A.1 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Setjið 1 merki eftir fyrstu 29-30-31-32-32-33 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Síðan er A.2 prjónað yfir hverja einingu af A.1 og sléttprjón eins og áður og aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið umferð 1 og 2 alls 1-2-5-7-5-8 sinnum (= 2-4-10-14-10-16 umferðir prjónaðar) = 88-100-128-148-132-160 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og eftir hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 3: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 2. mynstureiningu af A.2, á undan 3. mynstureiningu af A.2, á eftir 4. mynstureiningu af A.2 og á undan 1. mynstureiningu af A.2, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykki og bakstykki, lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið umferð 1 til 4 alls 12-12-11-11-14-14 sinnum (= 48-48-44-44-56-56 umferðir prjónaðar) = 12-12-11-11-14-14 sinnum útaukning á ermum, 24-24-22-22-28-28 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 232-244-260-280-300-328 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út 25-26-27-29-33-36 sinnum á framstykki/bakstykki og 13-14-16-18-19-22 sinnum á ermum. Prjónið síðan í sléttprjóni, A.2 og kant að framan eins og áður, þar til stykkið mælist ca 24-25-26-28-31-34 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur og haldið lykkjum á prjóni (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 41-43-47-51-53-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 75-79-83-89-97-105 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 41-43-47-51-53-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 73-77-81-87-95-103 lykkjur eins og áður (= bakstykkið hefur alls 75-79-83-89-97-105 lykkjur). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykki og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 170-182-194-210-230-250 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), prjónið síðan 4 umferðir í sléttprjóni. Fellið af með hringprjón 5,5. Peysan mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 55-57-59-61-63-65 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 41-43-47-51-53-59 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 51-55-61-67-71-79 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið 2 lykkjur í hverjum 10-8-5-3½-2½-2 cm alls 3-4-6-9-10-13 sinnum = 45-47-49-49-51-53 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-38-37-35-33-31 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 . Prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju = 44-46-48-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan 4 umferðir slétt. Fellið af með sokkaprjónum 5,5. Ermin mælist ca 41-41-40-38-36-34 cm frá skiptingunni. | |||||||||||||
| Skýringar á teikningu | |||||||||||||
| 
 | |||||||||||||
|  | |||||||||||||
| Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedwhispersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. | |||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.