Martine CACHE skrifaði:
Bonjour. Je ne comprends pas les jetés d'augmentation RAGLAN. sur les 4 tours. Au Tour3: "1 jeté après maille du raglan -2" etc··· Où faire le jeté ? La maille du raglan après le milieu Dos amène à être dans la manche or -2 donc Avant la maille du raglan dans le dos. Même question pour la suite pour les "avant" ou "après" les mailles du raglan et les chiffres négatifs. Je me retrouve avec les mailles des raglan décalées. Pouvez-vous m'expliquer ? Merci
20.03.2025 - 19:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cache, les chiffres ne sont pas négatifs, le tiret indique juste le numéro du marqueur/raglan. ; ainsi, vous allez augmenter au tour 3 pour le devant et le dos seulement, autrement dit, faites 1 jeté après la maille du raglan-2 = au début du devant + avant la maille du raglan -3 = à la fin du devant mais aussi après la maile du raglan -4 = au début du dos et avant la maille du raglan-1 = à la fin du tour. Bon tricot!
21.03.2025 - 08:26
Sylvie skrifaði:
Bonjour, pour un échantillon de 21m, comment obtenir en taille M 15 cm de col, soit 30cm en circonférence ? Vous donnez 116 m, ce qui fait un col beaucoup plus large. Merci pour votre réponse
20.02.2025 - 10:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, les 15 cm de l'encolure mesurés dans le schéma correspondent à la largeur de l'encolure, pull posé à plat. Notez que dans les mailles montées, sont également comprises les mailles des épaules (10 cm de chaque côté). Si votre échantillon est juste et que vous conservez la bonne tension tout du long, vous obtiendrez les mêmes mesures que dans le schéma. Bon tricot!
20.02.2025 - 14:39
Maggie Robinson skrifaði:
Can you tell me what is the measurement between each stripe on Moon Phase jumper? Maggie
19.01.2025 - 16:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Robinson, read more about stripes under STRIPES WITH PATTERN:, between each A.1 (6 rounds), work 14 rounds stocking stitch with light grey. Happy knitting!
20.01.2025 - 09:14
Susi skrifaði:
Ich hatte doch von den regelmäßigen Löchern über den weißen Streifen gesprochen. Auf den Fotos sehr gut im Rumpfbereich erkennbar... von den Raglanzunahmen war nicht die Rede.
26.10.2024 - 10:34DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, in den weissen Streifen sind es keine Löcher, diese Streifen werden mit 2 Farben gestrickt - siehe Diagram A.1. - wo man auch eine linke Masche regelmäßig (1. M A.1) strickt. Viel Spaß beim Stricken !
28.10.2024 - 10:21
Susi skrifaði:
Was sind das für regelmäßige Lochreihen jeweils oberhalb der Streifen? In den Fotos gut in Rumpfhöhe erkennbar?
25.10.2024 - 10:17DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, meinen Sie die Raglanzunahmen? Sonnst sehe ich nicht was Sie hier meinen, können Sie bitte anders ausdrücken im Falle ich misverstehe? Danke im voraus für Ihr Verständnis.
25.10.2024 - 13:09
Moon Phase#moonphasesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tveggja lita mynstri í röndum og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-26 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. RENDUR: * Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 6 umferðir), síðan eru prjónaðar 14 umferðir í sléttprjóni með litnum ljós grár *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum á hæðina, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 eins og áður, síðan er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár að loka máli. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að taka upp lykkjuna frá umferðinni að neðan, þ.e.a.s. takið upp lykkjuna sem liggur utan um ystu lykkjuna á vinstri prjóni og prjónið þessa lykkju slétt. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-116-120-128-132-140 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós grár í DROPS Karisma. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur) og prjónið 3 umferðir sléttprjón, síðan eru prjónaðar 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Síðan er prjónað í sléttprjóni þar til kantur í hálsmáli mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá uppfitjunarkanti jafnframt því sem aukið er út um 2-12-8-16-20-36 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 112-128-128-144-152-176 lykkjur. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 39-43-43-49-51-57 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjóni 4. Nú er sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni með litnum ljós grár. Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð, teljið 21-21-21-25-25-25 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 33-41-41-45-49-61 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 21-21-21-25-25-25 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju. Það eru 33-41-41-45-49-61 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= bakstykki). Nú á að auka út fyrir LASKALÍNA og prjóna RENDUR og MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og lesið báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram. LASKALÍNA: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir og á undan hverri lykkju með merki í (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum eins og útskýrt er að ofan). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-8-12-8-8-12 sinnum (= 8-16-24-16-16-24 prjónaðar umferðir) = 144-192-224-208-216-272 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni / mynstri eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir og á undan hverri lykkju með merki í (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni / inn í mynstur. UMFERÐ 3: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 2. lykkju með merki í, á undan 3. lykkju með merki í, á eftir 4. lykkju með merki í og á undan 1. lykkju með merki í, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykki og bakstykki, ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni / inn í mynstur. Prjónið umferð 1 til 4 alls 14-12-12-14-16-14 sinnum (= 56-48-48-56-64-56 prjónaðar umferðir). Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 32-32-36-36-40-40 sinnum á framstykki og bakstykki og 18-20-24-22-24-26 sinnum á ermum = 312-336-368-376-408-440 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-23-26-26-29-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. RENDUR Í MYNSTRI: Þegar prjónaðar hafa verið 16 umferðir með litnum ljós grár á eftir kanti í hálsmáli, prjónið RENDUR og MYNSTUR eins og útskýrt er að ofan og í hvert skipti sem prjóna á A.1, prjónið þannig: Prjónið fyrstu lykkju með merki með litnum ljós grár, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 alveg fram að 2. merki, aukið út á undan/á eftir lykkju með merki (lykkja með merki er prjónuð með litnum ljós grár), prjónið A.1 alveg fram að 3. merki (A.1 á að byrja á sama hátt og A.1 endaði á undan merki), aukið út á undan/á eftir lykkju með merki (lykkja með merki er prjónuð með litnum ljós grár), prjónið A.1 alveg fram að 4. merki (A.1 á að byrja á sama hátt og A.1 endaði á undan merki), aukið út á undan/á eftir lykkju með merki (lykkja með merki er prjónuð með litnum ljós grár), prjónið A.1 alveg fram að 1. merki (A.1 á að byrja á sama hátt og A.1 endaði á undan merki), aukið út á undan lykkju með merki. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 59-63-71-71-75-79 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-15-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 97-105-113-117-129-141 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 59-63-71-71-75-79 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-15-15-15 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 97-105-113-117-129-141 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-224-240-264-288-312 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= mitt í þær 7-7-7-15-15-15 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón og rendur eins og áður hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 46-48-50-50-52-54 cm frá merki fyrir miðju að framan (eftir að síðasta röndin í A.1 hefur verið prjónuð er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár). Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 44-44-48-54-62-62 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 252-268-288-318-350-374 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm er fellt af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 59-63-71-71-75-79 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-15-15-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í miðjulykkju undir ermi, merkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Nú er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi JAFNFRAMT sem mynstrið er prjónað – lestu því ÚRTAKA og MYNSTUR að neðan áður en ermin er prjónuð áfram. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-1½-1-1-1 cm alls 5-6-9-12-12-13 sinnum = 56-58-60-62-66-68 lykkjur. MYNSTUR: Munið eftir úrtöku að ofan áður en prjónað er áfram. Byrjið umferð við merki fyrir miðju undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki – A.1 kemur ekki til með að ganga jafnt upp fyrir miðju undir ermi. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-43-41-42-39-40 cm frá skiptingunni (á eftir síðustu rönd er prjónað sléttprjón með litnum ljós grár). Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Síðan eru prjónaðar 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og fellið af með garðaprjóni. Ermin mælist ca 45-45-43-44-41-42 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonphasesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.