Petra skrifaði:
Hej! Jag undrar över drops snow färgen carmosinröd. Det är svårt att avgöra på skärmen om den är mer åt den varma, gula hållet eller kalla, blå. Skulle ni säga att den är en mer varm eller kall röd? Mvh Petra
27.06.2025 - 20:00DROPS Design svaraði:
Hei Petra. Litt mer mot blå/lilla. mvh DROPS Design
30.06.2025 - 15:01
Cinnamon Breeze#cinnamonbreezesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði Polaris eða 2 þráðum DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju í næstu lykkju á vinstri prjóni frá umferðinni að neðan (án þess að lyfta næstu lykkju af prjóni), prjónið síðan 1 lykkju í næstu lykkju á vinstri prjóni. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d.36 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 2,1. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca aðra hverja lykkju. I-CORD AFFELLING: Fitjið upp 2 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftir þessum 2 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 2 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem lokar kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Til að úrtakan komi til skiptis hægra og vinstra megin við merkiþráðinn er lykkjum fækkað til skiptis í byrjun og í lok umferðar sem fækka á lykkjum í. Fækkið lykkjum í byrjun umferðar með því að lyfta af fyrstu lykkju í umferð af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar með því að prjóna síðustu 2 lykkjur í umferð slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Fitjið upp 36-38-39-41-43-45 lykkjur á hringprjón 15 með 1 þræði DROPS Polaris eða 2 þráðum DROPS Snow. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 12-13-13-14-14-15 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Síðan er prjónað sléttprjón hringinn. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3 cm frá merki, aukið út 17-17-19-20-21-21 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 53-55-58-61-64-66 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-24-26-26-28-28 lykkjur jafnt yfir = 73-79-84-87-92-94 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 10-11-12-13-14-14 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 24-26-28-28-30-32 lykkjur jafnt yfir = 97-105-112-115-122-126 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-22 cm. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 15-17-18-19-20-20 lykkjur jafnt yfir = 112-122-130-134-142-146 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 20-21-22-23-25-27 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 22-24-25-26-26-26 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-4-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 34-37-40-41-45-47 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 22-24-25-26-26-26 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 34-37-40-41-45-47 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 76-82-88-94-102-110 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 4-4-4-6-6-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-48-50-52-54 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 12 prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 0-2-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-80-88-92-100-108 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-53-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 22-24-25-26-26-26 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 15 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 26-28-29-32-32-34 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 4-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 1 lykkju til skiptis vinstra og hægra megin við merkiþráðinn í hverjum 10-10-10-7-6-6 cm alls 4-4-4-6-6-6 sinnum (= 2-2-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið) = 22-24-25-26-26-28 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-45-45-45-43-41 cm frá skiptingunni. Prjónið I-CORD AFFELLING, lesið útskýringu að ofan. Ermin mælist ca 46-46-46-46-44-42 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 12. Byrjið frá réttu við hægri öxl að aftan og prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju frá uppfitjunarkanti, þ.e.a.s. 36-38-39-41-43-45 lykkjur í kringum hálsmál. Prjónið garðaprjón hringinn JAFNFRAMT sem fækkað er um 2 lykkjur í hverri umferð (= fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið mitt yfir hvorri ermi), alls 0-1-1-1-2-2 sinnum = 36-36-37-39-39-41. Prjónið hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist 6-6-7-7-7-7 cm. Prjónið i-cord affelling. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cinnamonbreezesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.