Maribel Muñoz skrifaði:
Estoy tejiendo la talla S. Para la manga dice montar 72 p, y luego disminuir 3+9=12 veces bajo manga (24 p disminuidos), con lo cual deberían quedar 48 p. Sin embargo el patrón indica que quedan 62 p. Después, al aumentar los 14 p para el resorte, es cuando dice que quedan 48. Podrían subsanar este error, por favor? Gracias.
28.09.2024 - 21:03DROPS Design svaraði:
Hola Maribel, parece que hay una errata en el patrón. En principio, se disminuye hasta 48 puntos y luego se aumentan 14 para obtener 62 puntos. Las dos secuencias de números están cambiadas. Muchas gracias. Lo corregiremos lo antes posible.
29.09.2024 - 23:13
Nindi skrifaði:
Hygge sweater
12.08.2024 - 06:55
Susanna skrifaði:
Dünenliebe / Dunelove
09.08.2024 - 20:00
Cam Tuy Pham skrifaði:
Great colors combination
09.08.2024 - 17:08
Petra skrifaði:
Joy
09.08.2024 - 14:52
Hildegunn Almelid skrifaði:
Love this sweather Name suggestion: BREATH
09.08.2024 - 14:44
Koo skrifaði:
Mochaccino
09.08.2024 - 12:08
Pam skrifaði:
Fall in love
08.08.2024 - 23:21
Viveca Lahti skrifaði:
Fin!
08.08.2024 - 20:41
Viveca Lahti skrifaði:
Härlig!
08.08.2024 - 20:40
Sea Haze#seahazesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð stór / oversized peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og röndum í litatónum. Stærð XS - XXL.
DROPS 255-31 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) í þessari röð: 6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós lavender og 1 þræði Kid-Silk í litnum perlubleikur. 6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós lavender og 1 þræði Kid-Silk í litnum púður. 6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum lavender frost og 1 þræði Kid-Silk í litnum púður. 6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum lavender frost og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós sandur. 6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós sandur. 6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum beige. Síðan er prjónað með loka máli með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum mandla. RENDUR LEIÐBEININGAR: Til að fá fallega skiptingu í byrjun og lokin á umferð þegar rendur eru prjónaðar, er hægt að prjóna þannig: Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkjan í 2. umferð er prjónuð þannig: Takið upp fyrstu lykkjuna frá fyrri umferð á prjóninn, prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkjunni á vinstri prjóni. RENDUR ERMI: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) í þessari röð: Prjónið 2-2-2-1-2-1 cm mælt frá mitt undir ermi með 1 þræði DROPS Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum perlubleikur. 5-5-5-5-4½-4½ cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós lavender og 1 þræði Kid-Silk í litnum perlubleikur. 5-5-5-5-4½-4½ cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós lavender og 1 þræði Kid-Silk í litnum púður. 5-5-5-5-4½-4½ cm með 1 þræði Alpaca í litnum lavender frost og 1 þræði Kid-Silk í litnum púður. 5-5-5-5-4½-4½ cm með 1 þræði Alpaca í litnum lavender frost og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós sandur. 5-5-5-5-4½-4½ cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós sandur. 5-5-5-5-4½-4½ cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum beige. Prjónið síðan að loka máli með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum mandla. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 31-33-33-33-37-37 lykkjur á hringprjón með 1 þræði DROPS Alpaca í litnum ljós perlugerár og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum perlubleikur (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga). Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 14-15-17-18-19-21 sinnum (= 28-30-34-36-38-42 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 87-93-101-105-113-121 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 1-2-2-3-4-4 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er prjónað í RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI, haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-18 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar af þræði / hjálparprjón snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Notið 1 þráð Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þráð DROPS Kid-Silk í litnum perlubleikur (= 2 þræðir) og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 28-30-34-36-38-42 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-9-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum (= 8-8-8-8-10-10 prjónaðar umferðir) = 32-34-38-40-43-47 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju innan við hverja rönd í garðaprjóni = 21-23-27-29-31-33 lykkjur. Notið 1 þráð Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þráð DROPS Kid-Silk í litnum perlubleikur (= 2 þræðir) og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 28-30-34-36-38-42 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-9-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum (= 8-8-8-8-10-10 prjónaðar umferðir) = 32-34-38-40-43-47 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Nú eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 32-34-38-40-43-47 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 23-25-25-25-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 32-34-38-40-43-47 lykkjur frá vinstra framstykki = 87-93-101-105-113-121 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 11-12-14-15-16-18 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er prjónað í RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI þar til stykkið mælist 25-26-28-29-30-32 cm frá uppfitjunarkanti – síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan – passaðu því uppá að rendurnar hafa verið prjónaðar jafnt bæði á framstykki og bakstykki. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið rendur eins og áður yfir 87-93-101-105-113-121 lykkjur frá framstykki frá réttu, fitjið upp 4-6-8-10-10-12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið síðan yfir 87-93-101-105-113-121 lykkjur frá bakstykki frá réttu og fitjið upp 4-6-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 182-198-218-230-246-266 lykkjur í umferð. Setjið 1 merkiþráð mitt í 4-6-8-10-10-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi, umferðin byrjar hér. Nú eru prjónaðar rendur og sléttprjón umferðina hringinn – lesið LEIÐBEININGAR RENDUR. Prjónið þar til stykkið mælist ca 25-27-27-27-28-28 cm frá handveg. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 56-58-64-68-72-78 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 238-256-282-298-318-344 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist 57-60-62-64-66-68 cm mælt frá uppfitjunarkanti, framstykkið er ca 2 cm lengra en loka mál þar sem uppfitjunarkanturinn er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist ca 55-58-60-62-64-66 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður í hring. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki sami staður og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 5 til 7 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3,5 og 1 þráð Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þráð Kid-Silk í litnum perlubleikur (= 2 þræðir) og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 66-72-78-84-88-94 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að ermin passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-5-5-6-6-7 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-5-5-6-6-7 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5-5-5-6-6-7 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5-5-5-6-6-7 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 10 sinnum (= 5 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið síðan merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í RENDUR ERMI – lesið útskýringu að ofan og sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 2-3-4-5-5-6 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3½-3-2½-2-2-1½ cm alls 8-9-10-11-12-13 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-39-37-36-35 cm mitt ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 14-14-14-16-16-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-62-64-68-70-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 47-47-46-45-44-43 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þráð Kid-Silk í litnum perlubleikur (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 84-90-92-94-108-110 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 og stillið lykkjufjöldann af þannig að stroffið passi við 1 lykkju slétt í hverri axlalínu. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-5-5-6-6-6 cm. Prjónið 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af aðeins laust. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seahazesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.