Linda skrifaði:
Faccio riferimento alla prima riga dello schema A2. Non avevo capito come fare gli aumenti, guardando nei video ho trovato il tutorial. Grazie comunque per la gentile risposta!
03.12.2024 - 23:59
Linda skrifaði:
Non capisco come fare gli aumenti -1. C'è un video? Grazie
03.12.2024 - 21:51DROPS Design svaraði:
Buonasera Linda, a quale parte del modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!
03.12.2024 - 22:39
Heather skrifaði:
Are the cable increases, the only increases on yoke?
05.10.2024 - 16:46DROPS Design svaraði:
Dear Heather, the increases for the yoke are included in the A.2 chart, so there are no extra increases. Happy knitting!
06.10.2024 - 13:58
Helle skrifaði:
Frost cardigan
10.08.2024 - 13:08
Ritva Aaltonen skrifaði:
This is so romantic, IT IS Romance
08.08.2024 - 21:41
Mermaid Echo Cardigan#mermaidechocardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-4 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp lykkju frá umferðinni að neðan, þ.e.a.s. takið upp lykkjuna sem liggur utan um ystu lykkju í umferð og prjónið þessa lykkju slétt. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA OG ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 332 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 16 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 26,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 25. og 26. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan). Ef auka á út, sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 26. hverja lykkju (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, lyftið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8-8-8½ cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-109-114-119-124-129 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4½ cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón út umferðina, fitjið upp 7 nýjar lykkjur fyrir kant að framan í lok umferðar = 111-116-121-126-131-136 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið slétt út umferðina (= uppábrot), fitjið upp 7 nýjar lykkjur fyrir kant að framan í lok umferðar = 118-123-128-133-138-143 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 8 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið A.1, prjónið sléttprjón þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 og 8 lykkjur í kanti að framan með i-cord = 122-127-132-137-142-147 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, A.1, prjónið sléttprjón þar til 14 lykkjur eru eftir, prjónið A.1 og kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, kantur í hálsmáli mælist ca 5 cm frá uppábroti (ca 10-11 cm frá uppfitjunarkanti). Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í aðra hliðina á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.2 alls 21-22-23-24-25-26 sinnum, prjóið fyrstu lykkju í A.2 þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 332-347-362-425-442-459 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-19-22-23-25-25 cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 320-348-372-408-432-468 lykkjur í fyrstu umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA OG ÚTAUKNING. Þegar berustykkið mælist 21-23-24-24-26-28 cm frá merki mitt að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 55-60-63-68-73-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermar, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 94-104-110-120-130-144 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 55-60-63-68-73-80 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 224-244-260-280-304-332 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-47-49-51 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 46-46-50-54-62-62 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 270-290-310-334-366-394 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56 cm frá merki mitt að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 58-62-68-76-78-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur alls 2-3-3-5-5-7 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-2-1½-1½-1½-1½ cm alls 5-5-8-9-9-8 sinnum = 54-56-58-60-64-66 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-39-38-39-37-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 10-12-10-12-12-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 64-68-68-72-76-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 45-43-42-44-42-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mermaidechocardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.