LAURA skrifaði:
Buongiorno, sono una principiante e vorrei provare questo modello, che mi piace molto. Ho già fatto un maglione simile e mi sono accorta che sarebbe meglio inserire i ferri accorciati per il collo anatomico. Nella spiegazione mi pare non sia previsto. Avete un altro modello simile con collo anatomico? Altrimenti come faccio a inserirlo in questo? Grazie mille
14.03.2026 - 11:56
Tineke skrifaði:
Opzet hals met 104 steken, vervolgens 2 recht , 2 averecht niet uit. Hoe dit op te lossen ivm raglanmouw
09.03.2026 - 17:49DROPS Design svaraði:
Dag Tineke,
Als je de hals 2 recht, 2 averecht breit, brei je 26 keer een herhalend patroon van 4 steken. Vervolgens lopen 2 steken recht van de hals door in de raglanlijnen.
09.03.2026 - 20:46
Veronica skrifaði:
Intendevo come procedere con il lavoro, non capisco come continuare il lavoro in modo alternato (ripetere questi aumenti per un totale di 18 volte sul davanti e dietro (9 volte sulle maniche)). Grazie mille!
05.03.2026 - 14:24DROPS Design svaraði:
Buonasera Veronica, in quel punto vengono spiegati gli aumenti per il corpo e le maniche, che sono diversi. Per il corpo si aumenta ogni 2 ferri e per le maniche ogni 4 ferri, quindi significa che ogni 2 ferri aumenterà solo 4 maglie e ogni 4 ferri ne aumenterà 8. Buon lavoro!
06.03.2026 - 19:28
Veronica skrifaði:
Vorrei chiedere un chiarimento riguardo gli aumenti del raglan: ogni 2 giri sul davanti e dietro e ogni 4 giri sulle maniche (in modo alternato 4 e 8 aumenti su ogni giro di aumenti).
04.03.2026 - 21:17DROPS Design svaraði:
Buonasera Veronica, che tipo di chiarimento necessita? In quel punto vengono spiegati gli aumenti per il raglan, che sono diversi per il corpo e per le maniche. Buon lavoro!
04.03.2026 - 22:47
Denise skrifaði:
This was a fun pattern to make. I'm not that familiar with website patterns and once I figured out you had videos to show how to add stitches it was great. I plan to make the sweater again. I was surprised that it is a heavy sweater, it looked lighter in the photos. I added a kangaroo pouch to the front. I plan to have this sweater on working in my veggie garden this spring. Thank you for the pattern.
26.02.2026 - 16:14
Irene skrifaði:
Could you please clarify how to measure this: "the yoke measures approx. 22 cm from the marker mid-front" Specifically, from the marker mid-front, how do I measure it?
23.02.2026 - 19:20
LA skrifaði:
How would I add short rows to this pattern to improve the fit? Where would they work best without dramatically complicating the raglan increases? TIA!
15.02.2026 - 18:02
Denise skrifaði:
I'm very confused how to make the increases for the Raglan sleeves. Is there a video I can see or can you show me pictures? I looked online but none of them come close to what you're trying to describe.
11.02.2026 - 21:17DROPS Design svaraði:
Hi Denise, Here is a link to our video for working raglan top down. https://www.garnstudio.com/video.php?id=1031&lang=en In this particular pattern, you are increasing on either side of 2 stitches (with the marker between these stitches) but otherwise the technique is the same. Regards, Drops Team.
12.02.2026 - 07:02
Ana skrifaði:
Do I need to block this sweater after I knit this? If so, can you recommend what soap I need to use? Or in general give recommendations about blocking? I have been knotting for a long time but I have never done this. What are pros and cons?
10.02.2026 - 17:36
Ana skrifaði:
What does it mean when it says that after 29 stitches I need to place a marker and the piece is measured from there? Why 29 and do I knit these 29?
07.02.2026 - 00:30DROPS Design svaraði:
Dear Ana, you don't work these 29 stitches; simply count them and insert 1 marker for measuring the piece. This position, after 29 stitches, should match the mid-back, so it will allow for more accurate measurements of the length of the back, as opposed to raglan-lines or the stitches of the shoulders. This marker doesn't follow the piece downwards. Afterwards, you will insert the 4 raglan markers as well, without working the piece. You are not displacing the beginning of the round, so you start working the round from the 1st of the 29 stitches. Happy knitting!
08.02.2026 - 19:54
Midnight Glow#midnightglowsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-39 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 164 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 8,2. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-88-88-104-104-112 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Nepal. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur) og prjónið 4 umferðir sléttprjón. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6-6-6-7-7-7 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 29-31-31-37-37-39 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru settir á milli 2 lykkja slétt frá stroffi, þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 1 lykkju og setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-28-28-32-32-36 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-20-20-20 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru eftir 24-28-28-32-32-36 lykkjur á eftir síðasta merki og fram að 1. merki (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón jafnframt sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. aukið er út fyrir laskalínu á eftir/á undan 2 lykkjur í sléttprjóni við hvert merki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma í annarri hverri umferð alls 8-8-11-9-7-7 sinnum = 144-152-176-176-160-168 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið að fylgja prjónfestunni. Síðan heldur útaukningin áfram þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð), endurtakið þessa útaukningu alls 16-16-16-18-24-26 sinnum á framstykki og bakstykki og 8-8-8-9-12-13 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 240-248-272-284-304-324 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-22-25-25-28-30 cm frá merki eftir kant í hálsmáli. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-23-25-25-28-30 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju eins og áður (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 48-48-54-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-18-20-22 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 72-76-82-86-94-102 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-48-54-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 71-75-81-85-93-101 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-208-228-248 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= mitt í þær 10-12-14-18-20-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 44-46-48-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 184-196-216-232-256-276 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm prjónið 4 umferðir sléttprjón. Fellið aðeins laust af með garðaprjóni. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-48-54-56-58-60 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-60-68-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 7-7-4-3-2½-2 cm alls 5-5-8-10-11-12 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-37-36-34-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm eru prjónaðar 4 umferðir sléttprjón. Fellið af aðeins laust með garðaprjóni. Ermin mælist ca 46-45-44-44-42-40 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnightglowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.