Anneke Develing skrifaði:
Is er een filmpje met uitleg van het telpatroon?
02.04.2025 - 15:12
Yasmina SMIR skrifaði:
Bonjour. A quel moment on tricote les bretelles du dos ? Celles tricotées devant (8cm pour la taille M) sont trop courtes pour servir aussi de bretelles arrière. Je ne vois rien dans les explications. Pouvez vous m'aider ? Cordialement.
16.03.2025 - 22:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Smir, les bretelles ne sont tricotées qu'en une seule partie = ainsi les 8 cm seront répartis sur le dos et le devant (elles vont s'étirer légèrement en raison du point mousse). Bon tricot!
17.03.2025 - 09:53
Lies Den Hollander skrifaði:
Ik zou het fijn vinden om bij de foto's bovenaan ook de achterkant en zijkant in beeld te zien. Nu zie je alleen de voorkant
06.12.2024 - 13:27
Kira Brauda skrifaði:
Kurze Frage, ist hier bei dem linken Teil ein Fehler? Auf der rechten Seite habe ich bei dem armausschnitt zwei Maschen zum Rand und links wirkt es so als ob ich den Halsausschnitt mit 2 machen zum Rand stricke. Bitte um hilfe
17.10.2024 - 23:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Brauda, ich misverstehe vielleicht Ihre Frage aber bei beiden Vorderteile sollen Sie genauso viele Maschen vor/nach den Zunahmen beidseitig haben, dh beim rechten Vorderteil nehmen Sie nach den ersten 5-5-6-6-7-7 Maschen für den Armausschnitt und vor den letzten 5-5-6-6-7-7 Maschen für den V-Ausschnitt; und beim linken Vorderteil nehmen Sie nach den ersten 5-5-6-6-7-7 Maschen für den Armausschnitt und vor den letzten 5-5-6-6-7-7 Maschen für den V-Ausschnitt. Entschuldigung im voraus wenn ich Ihre Frage misverstanden haben. Viel Spaß beim Stricken!
18.10.2024 - 08:36
Rahel skrifaði:
Sehr schönes Top. Ich musste die Träger aber einige Zentimeter länger machen im Nachhinein, da es viel zu nah oben saß und so im Brustbereich auch komisch aussah.
19.06.2024 - 16:40
Stefanía skrifaði:
Væri mögulegt að sýna myndir af bakhlið stykkjanna? Þá er ég að tala um allar uppskriftir, ekki bara þessa. Vantar svo að geta séð hvernig bakið á flíkinni á að vera.
30.05.2024 - 16:19
Lene Svennigsen skrifaði:
Hvor er diagrammet til denne opskrift. Jeg har prøvet på flere enheder og det kommer ikke frem. \r\n\r\nVh. Lene Svenningsen
13.05.2024 - 12:32DROPS Design svaraði:
Hej Lene, så er diagrammet ude på den danske :)
14.05.2024 - 12:04
Signe skrifaði:
Diamond dreams
22.01.2024 - 00:52
Together Forever#togetherforevertop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með V-hálsmáli, gatamynstri, I-cord og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-36 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið frá röngu eða slétt frá réttu, það á að myndast gat. Nýjar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Framstykkið er prjónað í 2 stykkjum fram að þar til V-hálsmál hefur verið prjónað til loka, síðan eru bæði stykkin sett saman og framstykkið er prjónað til loka niður á við. Bakstykkið er prjónað sem 1 stykki. Í lokin eru bönd á öxlum / hlýrar fest á bakstykkið og hliðarsaumar saumaðir. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 11-11-13-13-15-15 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Paris og prjónið band á öxl / hlýra þannig: UMFERÐ 1: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 7-7-9-9-11-11 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið fram og til baka eins og umferð 1 þar til band á öxl / hlýri mælist 6-8-10-12-14-16 cm (band á öxl / hlýri er síðar saumað niður á bakstykki). Setjið eitt merki hér til að mæla frá. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur (kantlykkjur), 1 lykkja slétt (sléttprjón), prjónið eins og áður yfir síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur (kantlykkjur). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur, 1 lykkja brugðið (sléttprjón), prjónið eins og áður yfir síðustu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur. Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir handveg og V-hálsmál. Lykkjum er aukið út innan við kantlykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð – lesið ÚTAUKNING. Þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið eins og áður yfir kantlykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir handveg, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir V-hálsmáli og prjónið eins og áður yfir kantlykkjur. Haldið áfram fram og til baka og endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 7-8-11-16-11-8 sinnum í hvorri hlið = 25-27-35-45-37-31 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Aukið út innan við kantlykkjur í annarri hverri umferð fyrir V-hálsmáli 8-8-4 sinnum til viðbótar, en í annað hvert skipti sem aukið er út, hoppið yfir útaukningu í byrjun umferðar (við handveg). Aukið er út alls 15-16-15 sinnum fyrir V-hálsmál og alls 11-12-13 sinnum við handveg = 37-39-41 lykkjur. Stykkið mælist ca 13-13-13 cm frá merki. Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XL: Útaukningu er lokið í stærð XL = 45 lykkjur. Stykkið mælist ca 13 cm frá merki. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XXL og XXL: Aukið út innan við kantlykkjur í annarri hverri umferð fyrir V-hálsmáli 4-8 sinnum til viðbótar, jafnframt er aukið út í hverri umferð við handveg (bæði frá réttu og röngu). Aukið hefur verið út alls 15-16 sinnum við V-hálsmál og 19-24 sinnum við handveg = 49-55 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 13-13 cm frá merki. Útaukningu er lokið í stærð XXL og XXXL. Endið með 1 umferð frá röngu. ALLAR STÆRÐIR: = 37-39-41-45-49-55 lykkjur. Leggið stykkið til hliðar og prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 11-11-13-13-15-15 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Paris og prjónið band á öxl / hlýra þannig: UMFERÐ 1: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 7-7-9-9-11-11 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið fram og til baka eins og umferð 1 þar til band á öxl / hlýri mælist 6-8-10-12-14-16 cm (band á öxl / hlýri er síðar saumað niður á bakstykki). Setjið eitt merki hér til að mæla frá. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur (kantlykkjur), 1 lykkja slétt (sléttprjón), prjónið eins og áður yfir síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur (kantlykkjur). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur, 1 lykkja brugðið (sléttprjón), prjónið eins og áður yfir síðustu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur. Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli og handveg. Lykkjum er aukið út innan við kantlykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð – lesið ÚTAUKNING. Þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið eins og áður yfir kantlykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir V-hálsmáli, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir kantlykkjur. Haldið áfram fram og til baka og endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 7-8-11-16-11-8 sinnum í hvorri hlið = 25-27-35-45-37-31 lykkjur. Nú er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Aukið út innan við kantlykkjur í annarri hverri umferð fyrir V-hálsmáli 8-8-4 sinnum til viðbótar, en í annað hvert skipti sem aukið er út, hoppið yfir útaukningu í lok umferðar (við handveg). Aukið er út alls 15-16-15 sinnum fyrir V-hálsmál og alls 11-12-13 sinnum við handveg = 37-39-41 lykkjur. Stykkið mælist ca 13-13-13 cm frá merki. Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XL: Útaukningu er lokið í stærð XL = 45 lykkjur. Stykkið mælist ca 13 cm frá merki. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XXL og XXL: Aukið út innan við kantlykkjur í annarri hverri umferð fyrir V-hálsmáli 4-8 sinnum til viðbótar, jafnframt er aukið út í hverri umferð við handveg (bæði frá réttu og röngu). Aukið hefur verið út alls 15-16 sinnum við V-hálsmál og 19-24 sinnum við handveg = 49-55 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 13-13 cm frá merki. Útaukningu er lokið í stærð XXL og XXXL. Endið með 1 umferð frá röngu. ALLAR STÆRÐIR: = 37-39-41-45-49-55 lykkjur í umferð. Nú á að setja hægra og vinstra framstykki saman í eitt framstykki. Byrjið frá réttu á hægra framstykki, prjónið eins og áður yfir kantlykkjur, prjónið slétt þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur, prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, fitjið upp 1 nýja lykkju, prjónið fyrstu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur frá vinstra framstykki í garðaprjóni, prjónið slétt þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur og prjónið eins og áður yfir þessar lykkjur = 75-79-83-91-99-111 lykkjur. Setjið eitt merki í stykkið, stykkið nú mælt héðan. Nú eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið fyrir handveg, jafnframt því sem færri lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni við miðju að framan í V-hálsmáli í 4 stærstu stærðum, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 27-29-29-33-35-41 lykkjur brugðið, 11-11-13-13-15-15 lykkjur í garðaprjóni, 27-29-29-33-35-41 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni (kantlykkjur eru ekki lengur prjónaðar). Fitjið upp 4-6-7-8-9-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 79-85-90-99-108-120 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 31-35-34-42-46-52 lykkjur slétt, 11-11-11-11-11-11 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 27-29-30-34-33-39 lykkjur slétt, 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni og fitjið upp 4-6-7-8-9-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 83-91-97-107-117-129 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 31-35-37-42-46-52 lykkjur brugðið, 11 lykkjur í garðaprjóni, 31-35-37-42-46-52 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 31-35-37-42-46-52 lykkjur slétt, A.1 yfir 11 lykkjur, 31-35-37-42-46-52 lykkjur slétt og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 31-35-37-42-46-52 lykkjur brugðið, A.1 yfir 11 lykkjur, 31-35-37-42-46-52 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. Nú er prjónað í sléttprjóni, A.1 og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá merki – stillið af eftir heila eða hálfa mynstureiningu með A.1. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 9-9-13-15-15-15 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni = 92-100-110-122-132-144 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til eftir eru 7-7-8-8-9-9 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Framstykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá merki og ca 44-47-50-53-56-59 cm frá uppfitjunarkanti. BAKSTYKKI: Fitjið upp 53-55-57-59-61-63 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Paris og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn aftan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið fram og til baka eins og umferð 1 þar til band á öxl / hlýri mælist 6-8-10-12-14-16 cm (band á öxl / hlýri er síðar saumað niður á bakstykki). Setjið eitt merki hér til að mæla frá. Prjónið eins og umferð 1 þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón (6 umferðir). Í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir handveg. Auka á út 1 lykkju innan við 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð – munið eftir ÚTAUKNING. Þ.e.a.s. prjónið frá réttu þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur í garðaprjóni (5-5-6-6-7-7 kantlykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir handveg, prjónið slétt (sléttprjón) þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir handveg, prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt (5-5-6-6-7-7 kantlykkjur). Haldið áfram fram og til baka með sléttprjón og kantlykkjum, endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 7-8-10-16-11-8 sinnum í hvorri hlið = 67-71-77-91-83-79 lykkjur í umferð. Nú er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Aukið út innan við kantlykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð 4-4-3 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 11-12-13 sinnum = 75-79-83 lykkjur. Stykkið mælist ca 15-15-15 cm. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XL: Útaukningu er lokið í stærð XL = 91 lykkjur. Stykkið mælist ca 15 cm frá merki. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XXL og XXL: Aukið út fyrir handveg innan við kantlykkjur í hvorri hlið í hverri umferð (bæði frá réttu og röngu) 8-16 sinnum til viðbótar. Aukið hefur verið út alls 19-24 sinnum = 99-111 lykkjur. Stykkið mælist ca 15-15 cm. Endið með 1 umferð frá röngu. ALLAR STÆRÐIR: = 75-79-83-91-99-111 lykkjur í umferð. Setjið eitt merki í stykkið, stykkið er nú mælt héðan. Nú eru fitjaðar upp lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið slétt (sléttprjón) út umferðina (kantlykkjur eru ekki lengur prjónaðar) og fitjið upp 4-6-7-8-9-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 79-85-90-99-108-120 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið brugðið (sléttprjón) út umferðina og fitjið upp 4-6-7-8-9-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 83-91-97-107-117-129 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni með 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá merki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 9-9-13-15-15-15 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni = 92-100-110-122-132-144 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til eftir eru 7-7-8-8-9-9 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Bakstykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá merki og ca 40-41-42-43-44-45 cm frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Saumið bönd á öxlum / hlýra yst í hvora hlið á uppfitjunarkanti á bakstykki. Saumið hliðarsauma niður að þar sem stroffið byrjar = klauf í hliðum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #togetherforevertop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.