Spring Novel#springnoveltop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Muskat eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, stuttum ermum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 249-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 4 laskalykkjum. Laskalykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalykkjum þannig: Á UNDAN laskalykkjum: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR laskalykkjum: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir laskalykkjum: Á UNDAN lasakalykkjum: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR laskalykkjum: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Fyrst er hálsmálið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmál. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Stykkið skiptist við klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. HÁLSMÁL: Fitjið upp 88-90-92-92-94-96 lykkjur á hringprjón 4. Setjið 4 merki og 1 merkiþráð í stykkið þannig: Teljið 1 lykkju, setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 15-16-17-17-18-19 lykkjur, setjið 1 merkiþráð (mitt að aftan), teljið 15-16-17-17-18-19 lykkjur, setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26 lykkjur (ermi), setjið 1 merki í síðustu lykkju = 1 lykkja eftir á eftir síðasta merki. Lykkjur með merki í eru nú kallaðar laskalykkjur. Prjónið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjur – lesið útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 98-100-102-102-104-106 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið (munið eftir – að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 100-102-104-104-106-108 lykkjur. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 110-112-114-114-116-118 lykkjur. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 112-114-116-116-118-120 lykkjur. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 123-125-127-127-129-131 lykkjur. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 126-128-130-130-132-134 lykkjur. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 14-16-18-18-20-22 nýjar lykkjur í lok umferðar = 148-152-156-156-160-164 lykkjur. Nú á að setja lykkjurnar saman og byrjun á umferð á að vera við merkiþráðinn að aftan, klippið þráðinn, ekki snúa stykkinu, færið lykkjurnar frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón fram að merkiþræðinum. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjurnar. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn frá miðju að aftan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 13-14-19-20-18-18 sinnum (ásamt útaukningu í hálsmáli) = 220-232-276-284-272-276 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu fyrir lasaklínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 10-12-10-14-22-26 sinnum á fram- og bakstykki (5-6-5-7-11-13 sinnum á ermum). Aukið hefur verið út alls 23-26-29-34-40-44 sinnum á framstykki/bakstykki og 18-20-24-27-29-31 sinnum á ermum = 280-304-336-368-404-432 lykkjur. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 18-19-21-25-29-32 cm frá miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 39-43-47-52-59-64 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 62-66-74-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið næstu 78-86-94-104-118-128 lykkjur (framstykki), setjið næstu 62-66-74-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 39-43-47-52-59-64 lykkjur (hálft bakstykki) = 168-184-200-224-252-272 lykkjur í umferð. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-200-224-252-272 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-19-19-17-15-14 cm frá skiptingunni. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 84-92-100-112-126-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð frá réttu og aukið út 14-14-14-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 98-106-114-130-146-158 lykkjur. Prjónið stroff, fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm, fellið af. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Setjið 62-66-74-80-84-88 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist ca 3 cm frá skiptingunni er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í ca hverjum 3-2-3-1½-0-0 cm alls 2-2-2-2-1-0 sinnum (lykkjum er ekki fækkað í stærð XXL) = 64-68-76-84-90-96 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 13-12-11-8-8-6 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þegar aukið er út um 4-4-4-0-2-0 = 68-72-80-84-92-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 16-15-14-11-9-9 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina. Notið stuttan hringprjón 3 og prjónið upp ca 104 til 116 lykkjur í kringum hálsmál. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springnoveltop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.