Sandra skrifaði:
Size Large Sleeve: "Work 3 chain stitches, A.2 12 (TWELVE) times, A.3 and finish with 1 slip stitch in the 3rd chain stitch at the beginning of the round, turn." I have enough stitches left over for another A.2, plus 4 additional stitches. What am I doing wrong?
13.06.2025 - 16:14
Sandra skrifaði:
Size Large Sleeve: "Work 3 chain stitches, A.2 times, A.3 and finish with 1 slip stitch in the 3rd chain stitch at the beginning of the round, turn." I have enough stitches left over for another A.2, plus 4 additional stitches. What am I doing wrong?
13.06.2025 - 16:13
Edith skrifaði:
In het telpatroon wordt het staande kruisje (3e teken van boven) aangeduid als “een halve vaste, 3 lossen”. Moet dit niet een stokje zijn?
21.05.2025 - 22:36DROPS Design svaraði:
Dag Edith,
De uitleg van de symbolen stonden inderdaad door elkaar, dat gold niet alleen voor het stokje maar ook voor andere symbolen. Het is nu aangepast!
27.05.2025 - 21:00
Sandra skrifaði:
I am stuck on the Left Front Shoulder section, after "Repeat rows 1 and 2 one more time (= 4 rows worked), A7 is now finished in height." SIZE L Row 5: Work A.4 [done], A.2 a total of 3 times [If A7 is finished in height, where am I working the third A.2 into? and the subsequent A.3 and A.6?] THANK YOU in advance!!!
13.05.2025 - 14:14DROPS Design svaraði:
Dear Sandra, the last (=3rd) A.2 will be worked over the remaining stitches A.7 and A.6 will be worked in the first stitch of last round A.7 ie in the 3rd chain from beginning of previous row. Happy crocheting!
13.05.2025 - 21:02
Inger skrifaði:
Jag virkar efter mönster 249-31. Nu har jag fastnat på diagrammet A6. Vad betyder de lodräta sträcken?
02.05.2025 - 15:41DROPS Design svaraði:
Hej Inger, de korte streger er luftmasker og de lange lodrette streger skiller diagrammerne :)
08.05.2025 - 09:06
Christine Pacques skrifaði:
Bonjour J'ai fait le premier rang fantaisie mais je n'arrive pas a commencer le 2eme rang en tournant le travail pour le crocheter sur l'envers. Merci de votre aide.n
16.01.2025 - 13:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pacques, sur l'endroit, vous avez crocheté: A.1, puis répété A.2 et terminé par A.3 et 1 maille coulée dans la 3ème ml du début du tour, sur l'envers, commencez par 3 ml, puis crochetez A.3, répétez A.2 en le lisant de gauche à droite et terminez par A.1 et 1 maille coulée dans la 3ème maille en l'air du début du tour. Tournez et crocheter ainsi alternativement sur l'endroit et sur l'envers. Bon crochet!
16.01.2025 - 17:37
Benthe skrifaði:
Hvordan skal man forstå opskriften ? Altså i mønster a1 a2 osv ?
29.10.2024 - 15:30DROPS Design svaraði:
Hej Benthe, klik på lektioner øverst i opskriften, så finder du en lektion om hvordan man læser hæklediagrammer :)
30.10.2024 - 11:11
Phemia skrifaði:
In de uitleg van het telpatroon wordt alleen over een halve vaste om de losse in de stokjes groep gesproken. Er wordt nergens aangegeven dat symbool 3 een stokje betekend. Het open sterretje geeft aan dat het stokje in het stokje hieronder moet, op het telpatroon wordt aangegeven dat de toer reeds gehaakt is. Of heb ik de verkeerde uitleg bij het telpatroon. Er klopt namelijk nog meer niet.
14.10.2024 - 15:53
Anna skrifaði:
Hello : ) Can anyone tell me what the "dashed line"/ "den stiplede linje" in the beginning of A.4 means. What kind of stitch is that?
08.08.2024 - 10:37DROPS Design svaraði:
Dear Anna, A.4 starts with 4 chains (3 to replace first treble crochet + 1 for chain space), reasons why there are 4 small lines. Happy crocheting!
08.08.2024 - 13:02
Vivian skrifaði:
Hei! Mistä löydän selitykset kaikille ohjeessa käytetyille symboleille? Kaikkia symboleja ei ole selitetty auki.
04.08.2024 - 19:06DROPS Design svaraði:
Hei, kaikki merkkien selitykset löytyvät piirroksen yläpuolelta.
06.08.2024 - 17:03
Moon Lace Sweater#moonlacesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og víðum, ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Munið eftir að mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um mitt undir ermi): Í byrjun hverrar umferðar eru heklaðar 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Þegar fram- og bakstykki og ermar er heklað í hring, snúið stykkinu eftir hverja umferð, þannig að heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er heklað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru heklaðar neðan frá og upp og heklað er í hring upp að ermakúpu, síðan er ermin hekluð til loka fram og til baka. Stykkin eru hekluð saman. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 180-204-204-228-252-276 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Belle og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkju (jafngildir 1 fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju umferðina hringinn, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 180-204-204-228-252-276 fastalykkjur. Síðan er heklað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1, heklið A.2 alls 29-33-33-37-41-45 sinnum, heklið A.3 og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Það eru nú 180-204-204-228-252-276 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. 30-34-34-38-42-46 stuðlahópar með 3 loftlykkjum á milli hverra stuðlahópa – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og snúið stykkinu. Haldið svona áfram með mynstur hringinn til skiptis með eina umferð frá réttu og eina umferð frá röngu. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 24-25-25-27-28-28 cm – stillið af að síðasta umferðin sem var hekluð sé frá röngu, skiptist fram- og bakstykki fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er síðan heklað eins og útskýrt er að neðan. Klippið og festið þráðinn. BAKSTYKKI: Hoppið yfir fyrstu 7-7-7-7-13-13 lykkjur í umferð, heklið 1 keðjulykkju um loftlykkju í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. í 2-2-2-2-3-3 stuðlahóp í umferð) og heklið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.4 í sama stuðlahóp, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu = 75-87-87-99-99-111 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47-49 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu. Nú er hekluð öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.4, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.3, heklið A.6 í fyrsta stuðul í næsta stuðlahóp, snúið stykkinu = 19-25-25-31-31-37 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.3, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.4, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.3, heklið A.6, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 2 og 3 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Hoppið yfir afgang af stuðlahóp A.6 sem heklað var í, hoppið yfir 5 mynstureiningar með A.2, hoppið yfir 1 mynstureiningu með A.3 og hoppið yfir fyrsta stuðul og loftlykkju í næsta stuðlahóp (37 lykkjur sem hoppað var yfir = hálsmál aftan í hnakka), heklið 1 keðjulykkju í síðasta stuðul í stuðlahópnum og heklið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.6, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.6, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu eftir bakstykki, hoppið yfir fyrstu 15-15-15-15-27-27 lykkjur í umferð, heklið 1 keðjulykkju í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. í 3-3-3-3-5-5 stuðlahóp eftir bakstykki) og heklið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.4 í sama stuðlahóp, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu = 75-87-87-99-99-111 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 11-13-13-15-15-17 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 35-37-37-39-39-41 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu. Nú er hekluð öxl til að forma hálsmál eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.4, heklið A.2 alls 1-2-2-3-3-4 sinnum, heklið A.7, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.7, heklið A.2 alls 1-2-2-3-3-4 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 einu sinni til viðbótar (= 4 heklaðar umferðir), A.7 hefur nú verið heklað til loka á hæðina. Heklið nú þannig: UMFERÐ 5 (= rétta): Heklið A.4, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.3, heklið A.6, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.3, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.4, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 5 og 6 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Hoppið yfir afgang af stuðlahópum A.6 sem var hekla í á vinstri öxl að framan (= 2 lykkjur), hoppið yfir 5 mynstureiningar með A.2, hoppið yfir 1 mynstureiningu með A.3 og hoppið yfir fyrsta stuðul og loftlykkju í næsta stuðlahóp (37 lykkjur sem hoppað var yfir = hálsmál mitt að framan), heklið 1 keðjulykkju í síðasta stuðul í stuðlahópi og heklið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.8, heklið A.2 alls 1-2-2-3-3-4 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 1-2-2-3-3-4 sinnum, heklið A.8, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 1 og 2 einu sinni til viðbótar (= 4 heklaðar umferðir), A.8 hefur nú verið heklað til loka á hæðina. Heklið nú þannig: UMFERÐ 5 (= rétta): Heklið A.6 (byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu), heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.5, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Heklið A.5, heklið A.2 alls 2-3-3-4-4-5 sinnum, heklið A.6, snúið stykkinu. Heklið umferð 5 og 6 svona fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið og festið þráðinn. ERMAR: Heklið 70-76-82-82-88-94 loftlykkjur með heklunál 3,5 og tengið loftlykkjurnar í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 loftlykkjur (jafngildir 1 fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 70-76-82-82-88-94 fastalykkjur. Síðan er mynstrið heklað, lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 3 loftlykkjur, heklið A.2 alls 11-12-13-13-14-15 sinnum, heklið A.3 og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, snúið stykkinu. Heklið hringinn á sama hátt til skiptis með eina umferð frá réttu og eina umferð frá röngu þar til ermin mælist 51-49-50-48-46-44 cm – stillið af að síðasta umferðin sé hekluð frá réttu og í síðustu umferðinni er heklaður 1 stuðull í lykkjuna á undan 3 loftlykkjum í byrjun umferðar, þannig að það verða 2 stuðlar (1 stuðull + 3 loftlykkjur) mitt undir ermi, snúið stykkinu. Heklið síðan fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.3, heklið A.2 alls 11-12-13-13-14-15 sinnum, heklið 1 stuðul í síðustu lykkju = 71-77-77-83-89-95 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.6, heklið A.2 alls 11-12-13-13-14-15 sinnum, heklið A.3, endið með A.6, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= ranga): Heklið A.6, heklið A.3, heklið A.2 alls 11-12-13-13-14-15 sinnum, endið með A.6, snúið stykkinu. Heklið UMFERÐ 2 og 3 svona fram og til baka þar til ermin mælist 55-53-54-52-53-51 cm. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Heklið saman axlasaumana þannig: 1 fastalykkja í ystu lykkju í gegnum bæði lögin, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga á bakstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkju í stuðlahóp á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um loftlykkju í stuðlahóp á bakstykki, haldið svona áfram, með að hekla til skiptis framstykki/bakstykki þar til heklað hefur verið meðfram allri öxlinni. Heklið á sama hátt meðfram hinni öxlinni. Heklið ermakúpuna við handveg á sama hátt (heklið a við A – sjá teikningu). Síðan er botninn saumaður við handveg (b við B) KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og heklið kant í kringum hálsmál þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 keðjulykkju í axlasauminn, * heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju um fyrsta/næsta loftlykkjuboga/umferð *, heklið frá *-* allt hálsmálið hringinn, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í keðjulykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), síðan eru heklaðir 3 stuðlar um hvern loftlykkjuboga, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið og festið þráðinn. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonlacesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.