Donatella skrifaði:
Non capisco il numero di ferri indicato nel CAMPIONE: 11 maglie in larghezza e 4158 ferri in verticale a maglia rasata 4158 ferri… che cosa significa?
25.12.2024 - 17:11DROPS Design svaraði:
Buonasera Donatella, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
25.12.2024 - 20:01
Bape skrifaði:
Je voudrais faire ce modele en aiguilles normales
02.10.2024 - 18:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bape, on utilise ici des aiguilles circulaire pour tricoter en allers et retours pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, seul le col est tricoté en rond. Il vous suffira alors de ne coudre qu'une seule épaule avant de tricoter le col et de terminer la couture. Cette leçon pourra vous aider à faire les ajustements nécessaires. Bon tricot!
03.10.2024 - 09:16
Karin skrifaði:
Tolle Farbe, toller Schnitt
03.08.2023 - 20:15
Sabine Schmitt skrifaði:
I love Drops Yarn. Ich hoffe Wolle zu gewinnen. Habe gestern wieder bei Algawo Drops Air bestellt. Wolle kann man nie genug haben. LG Sabibe
03.08.2023 - 11:51
Lavender Story#lavenderstorysweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp með ísaumuðum ermum og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-20 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 75 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 3,7. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN HÁLSMÁLI ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR HÁLSMÁLI: Prjónið fyrstu 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri), prjónið þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri) og prjónið 1 kantlykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum, neðan frá og upp. Þegar öll stykkin hafa verið prjónuð til loka, er stykkið sett saman. Í lokin er prjónaður hár kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 69-75-81-87-97-107 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroffprjón frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-20-22-22-26-28 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 og fitjið upp 1 nýja kantlykkju í lok umferðar = 52-56-60-66-72-80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fitjið upp 1 nýja kantlykkju í lok umferðar = 53-57-61-67-73-81 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm, fellið af 1-1-2-4-6-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 51-55-57-59-61-65 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 16-18-18-19-19-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og á bakstykki þar til stykkið mælist 52-54-54-56-56-58 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (= 51-55-57-59-61-65 lykkjur í umferð). Nú eru miðju 11 lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 20-22-23-24-25-27 lykkjur). Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4-4-5-5-6-6 sinnum – lesið ÚRTAKA-2 = 16-18-18-19-19-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 44-44-46-46-50-50 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff, fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-10-10-10-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 14 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 8-6½-6-5-4½-3½ cm millibili alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 49-49-48-46-45-43 cm, eða að óskaðri lengd fyrir ermakúpu (nú eru eftir ca 1-1-2-4-5-7 cm á ermakúpu að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja hvar botninn á handvegi byrjar og eru notuð þegar sauma á ermi við handveg. Prjónið þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Sjá teikningu og saumið ermakúpuna við handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handvegi og affellingarkanti á ermakúpu. Saumið botninn á handvegi – prjónamerkin sem sett voru í ermar eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki – sjá teikningu. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni þar til 12 lykkjur eru eftir neðst í hvora hlið á fram- og bakstykki fyrir klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 50-50-58-58-66-66 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 64-64-72-72-80-80 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Í næstu umferð er aukið út þannig: Prjónið 3 lykkjur í fyrstu sléttu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í aftari lykkjubogann á sömu lykkju og sleppið lykkjunni af vinstri prjóni (= 2 lykkjur fleiri), * prjónið stroff eins og áður yfir næstu 7 lykkjur, prjónið 3 lykkjur í næstu sléttu lykkju (= 2 lykkjur fleiri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 80-80-90-90-100-100 lykkjur. Haldið áfram með stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 13 cm. Fellið af aðeins laust. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderstorysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.