FAYARD Hélène skrifaði:
TOUJOURS PAS D'ACCORD avec vos "conseils" échantillon ! Essayez quand il est trop large de prendre comme vous le dites "des aiguilles plus grosses" : votre échantillon sera ENCORE PLUS LARGE !!! il faut au contraie des aig.plus fines, c'est que vous tricotez lache !
02.03.2024 - 09:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Fayard, si vous avez trop de mailles pour 10 cm, c'est que vos mailles sont trop petites, et qu'il vous faudra donc des aiguilles plus grosses pour les agrandir et atteindre le nombre de mailles pour 10 cm. Si par contre vous n'avez pas assez de mailles, c'est qu'elles sont trop grandes, il vous faut donc les "rétrécir" en utilisant des aiguilles plus fines. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
04.03.2024 - 10:30
Alex skrifaði:
How am I supposed to close 11 stitches equally while knitting the back? Do I close them on each side in every row? Do I just reduce one stitch every other row? I do not understand this part of the pattern and it is only the beginning :)
23.02.2024 - 11:09DROPS Design svaraði:
Hi Alex, you have to decrease 11 stitches in one row. How to increase/decrease evenly you will find HERE. Happy knitting!
23.02.2024 - 12:07
Simone skrifaði:
Hvordan færdiggør man bag halsen tilsidst? Tak for hjælpen
09.10.2023 - 13:43DROPS Design svaraði:
Hej Simone, Det skal bare være en rå kant i glatstrik bag i nakken :)
17.10.2023 - 12:22
Mebarki skrifaði:
Freedom
04.08.2023 - 23:05
Annette Lersbryggen skrifaði:
Litt for vide ermer, ellers fin
03.08.2023 - 12:04
Open Sky Cardigan#openskycardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð basic peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 243-29 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 4, 11, 19 og 27 cm. S: 4, 11, 19 og 27 cm. M: 4, 11, 19 og 27 cm. L: 4, 12, 20 og 28 cm. XL: 4, 12, 20 og 29 cm. XXL: 4, 12, 21 og 30 cm. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp, í stykkjum og saumuð saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 69-77-83-89-97-105 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er stroff prjónað þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3 cm og næsta umferð er frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-11-11-11-13-13 lykkjur jafnt yfir = 60-66-72-78-84-92 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 40-44-46-50-54-58 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3 cm og næsta umferð er frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 35-39-41-45-49-53 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 5-6-5-6-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 4 lykkjur garðaprjón = 35-38-41-44-47-51 lykkjur. Prjónið síðan með 4 lykkjur garðaprjón yfir kant að framan, sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni í hlið þar til stykkið mælist 28-28-28-29-30-31 cm. Nú er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri) og prjónið síðustu 4 lykkjur í garðaprjóni. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 6-7-8-8-8-8 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 3-2-1-2-2-2 sinnum = 26-29-32-34-37-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, fækkið um 3 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 23-26-29-31-34-38 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 40-44-46-50-54-58 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff frá réttu og mitt að framan þannig: 4 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3 cm og næsta umferð er frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið síðan frá réttu þannig: 4 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 35-39-41-45-49-53 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 5-6-5-6-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 1 lykkja garðaprjón = 35-38-41-44-47-51 lykkjur. Prjónið síðan með 1 lykkju í garðaprjóni í hlið, sléttprjón og 4 lykkjur í garðaprjóni yfir kant að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-28-28-29-30-31 cm. Nú er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 6-7-8-8-8-8 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 3-2-1-2-2-2 sinnum = 26-29-32-34-37-41 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, fækkið um 3 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 23-26-29-31-34-38 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 58-60-64-68-72-76 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 10 cm og næsta umferð er frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-16-18-20-20 lykkjur jafnt yfir = 42-44-48-50-52-56 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 14-14-15-13-12-12 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 7-7-8½-6½-6½-8 cm millibili alls 4-4-3-4-4-3 sinnum = 50-52-54-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist alls 47-47-46-44-43-41 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma frá yst á öxl og inn að miðju (miðju 11-11-11-13-13-13 cm á bakstykki er hálsmál). Setjið 1 prjónamerki á framstykkin og bakstykkið 19-20-21-22-23-24 cm frá axlasaum og niður. Saumið ermar í á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki – miðja á ermi á að passa við axlasauminn. Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #openskycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.