DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 30360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Oat Flakes Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í perluprjóni, með sjalkraga, vösum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 244-16
DROPS Design: Mynstur st-038
Garnflokkur B + B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 02, marsipan
450-500-550-600-650-700 g litur 03, sandur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-200-200-225 g litur 20, ljós beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með perluprjóni (A.1) og 2 þráðum DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir) = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 30360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH! Fyrsta umferð í A.1 er prjónuð frá röngu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 103 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 37) = 2,7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í A.1.

LEIÐBEININGAR:
Til að mynstrið komi til með að ganga jafnt upp, prjónið 1 lykkju fleiri á milli vasa og hlið á vinstra framstykki en á hægra framstykki.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragist saman þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og er saumað saman í lokin.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 103-109-119-129-141-153 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit af DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 37-39-41-45-49-53 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (kantlykkja). Skiptið yfir á hringprjón 7. Snúið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur A.1 út umferðina og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (kantlykkja) = 68-72-80-86-94-102 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 2-2-4-5-6-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-68-72-76-82-86 lykkjur. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 26-28-30-31-34-36 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af – lesið AFFELLING.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VASAPOKAR:
Fitjið upp 24 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorum lit af DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasapokinn mælist 7 cm, prjónið mynstur A.1 (fyrsta umferð í A.1 er prjónuð frá röngu) og 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið. Þegar vasapokinn mælist 16 cm, fækkið um 1 lykkju í byrjun á næstu 2 umferðum = 22 lykkjur – stillið af að síðasta umferð sem er prjónuð á vasanum sé 1. umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að mynstrið komi til með að ganga jafnt upp þegar vasapokarnir eru prjónaðir við peysuna). Setjið lykkjur á hjálparprjón og geymið stykkið. Prjónið 3 vasapoka alveg eins = 4 vasapokar.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 73-77-81-91-97-103 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit af DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir).
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 27-29-29-35-37-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (kantlykkja). Skiptið yfir á hringprjón 7. Snúið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 47-49-53-57-61-65 lykkjur.
Haldið áfram með A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 31 cm – stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé síðasta umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að mynstrið komi til með að passa með mynstri á vösum), prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið fyrstu 23-25-27-27-29-31 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið næstu 22 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= 1 prjónamerki hvoru megin við vasaopið), prjónið síðustu 2-2-4-8-10-12 lykkjur eins og áður.
Snúið og prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki.
Nú á að prjóna lykkjur frá vasapokanum saman með lykkjum fyrir vasaopinu, jafnframt því sem lykkjur eru felldar af (passið uppá að rangan á vasapokanum liggi að röngu að hægra framstykki og að lykkjur séu prjónaðar saman í mynstri A.1) þannig: * Prjónið fyrstu/næstu lykkju frá vasaopi saman með fyrstu lykkju á vasapoka, prjónið næstu lykkju frá vasaopi saman með næstu lykkju á vasapoka. Nú hafa verið prjónaðar 2 lykkjur yst á hægri prjóni, lyftið fyrstu lykkjunni sem prjónuð var saman yfir síðustu lykkjuna sem prjónuð var saman *. Prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á vasapokanum og vasaopinu hafa verið prjónaðar saman og felldar af. Prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður. Takið prjónamerkin frá.
Snúið og prjónið fram að vasa, prjónið frá réttu yfir 22 lykkjur frá hinum vasapokanum (passið uppá að mynstur A.1 passi), prjónið út umferðina = 47-49-53-57-61-65 lykkjur.
Nú eru 2 vasapokar á hægra framstykki sem síðar er gengið frá.

Haldið áfram með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 2-2-4-5-6-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá hlið (þ.e.a.s. að næsta umferð sé frá röngu) = 45-47-49-52-55-57 lykkjur. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af fyrstu 26-28-30-31-34-36 lykkjur í næstu umferð frá röngu fyrir öxl, prjónið síðustu 19-19-19-21-21-21 lykkjur á prjóninn.
Nú er kraginn prjónaður þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður yfir 11-11-11-13-13-13 lykkjur.
Endurtakið umferð 1 til 4 þar til kraginn mælist 7-7-7-8-8-8 cm þar sem stykkið er styst (þ.e.a.s. í vinstri hlið séð frá réttu = að öxl).
Fellið af – munið eftir AFFELLING.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 73-77-81-91-97-103 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit af DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir).
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 27-29-29-35-37-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA, skiptið yfir á hringprjón 7. Snúið og prjónið mynstur A.1 út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (kantlykkja) = 47-49-53-57-61-65 lykkjur.
Haldið áfram með A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 31 cm – stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé síðasta umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að mynstrið komi til með að passa við mynstur á vösum), prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið fyrstu 3-3-5-9-11-13 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR, setjið eitt prjónamerki hér, prjónið næstu 22 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= 1 lykkja hvoru megin við vasaopið), prjónið síðustu 22-24-26-26-28-30 lykkjur eins og áður.
Snúið og prjónið til baka frá röngu þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki.
Nú á að prjóna lykkjur frá vasapokanum saman með lykkjum fyrir vasaopi, jafnframt því sem lykkjur eru felldar af (passið uppá að rangan á vasapokanum liggi að röngu á hægra framstykki og að lykkjur séu prjónaðar saman í mynstri A.1) þannig: * Prjónið fyrstu / næstu lykkju frá vasaopi saman með fyrstu lykkju á vasapoka, prjónið næstu lykkju frá vasaopi saman með næstu lykkju á vasapoka. Nú hafa verið prjónaðar 2 lykkjur yst á hægri prjóni, lyftið fyrstu lykkjunni sem prjónuð var saman yfir síðustu lykkju sem prjónuð var saman *. Prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á vasapoka og vasaopi hafa verið prjónaðar saman og felldar af. Prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður. Takið frá prjónamerkin.
Snúið og prjónið fram að vasa, prjónið frá réttu yfir 22 lykkjur frá hinum vasapokanum (passið uppá að mynstur A.1 passi), prjónið út umferðina = 47-49-53-57-61-65 lykkjur.
Nú eru 2 vasapokar á hægra framstykki sem síðar er gengið frá.

Haldið áfram með A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið.
Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 2-2-4-5-6-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá hlið (þ.e.a.s. næsta umferð er frá réttu) = 45-47-49-52-55-57 lykkjur. Prjónið A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fellið af fyrstu 26-28-30-31-34-36 lykkjur í næstu umferð frá réttu fyrir öxl, prjónið síðustu 19-19-19-21-21-21 lykkjur á prjóni.
Nú er kraginn prjónaður þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 8 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 11-11-11-13-13-13 lykkjur.
UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 11-11-11-13-13-13 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður yfir 11-11-11-13-13-13 lykkjur.
Endurtakið umferð 1 til 4 þar til kraginn mælist 7-7-7-8-8-8 cm þar sem stykkið er styst (þ.e.a.s. í hægri hlið séð frá réttu = að öxl).
Fellið af – munið eftir AFFELLING.

ERMI:
Fitjið upp 54-58-58-60-60-64 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit af DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-18-18-18-18-20 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 38-40-40-42-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Nú er prjónað mynstur A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 12 cm, aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4½-3-3-2½-2 cm alls 7-7-9-9-10-11 sinnum = 52-54-58-60-62-66 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-44-42-41-39-37 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja hvar botninn á handvegi byrjar.
Prjónið áfram þar til ermin mælist alls 46-46-45-45-43-43 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.
Saumið saman ermasauminn upp að prjónamerki = klauf 2-2-3-4-4-6 cm efst á ermi. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu, saumið síðan ermina við handveginn.
Saumið hliðarsauminn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni þar til stroffið endar (= 12 cm klauf í hvorri hlið). Endurtakið í hinni hliðinni.
Saumið saman kragann mitt að aftan og saumið síðan kragann við kant í hálsmáli að aftan. Leggið vasapokana að hvorum öðrum og saumið í kringum allan kantinn.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = ermakúpan er saumið við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Anke Hoffmann wrote:

Ich komme mit der Beschreibung zum Stricken des Kragens nicht klar. In Reihe 3 und 4 sind nur die 11 Maschen genannt. Was passiert mit den 8 Maschen? Wie komme ich am Ende auf 7 Maschen? für den Kragen?

24.03.2024 - 14:17

country flag Paola wrote:

Buonasera, nel pattern viene detto di lavorare un intero ferro a dritto sul dritto del lavoro prima di iniziare la maglia a grana di riso doppia; ma dalle foto risulta che il dritto del lavoro sia lavorato con un ferro a rovescio. Potreste cortesemente dirmi quale sia quello corretto? Più che altro perché quando si dovranno lavorare le parti con le tasche risulta difficile capire quale sia quello giusto e quello sbagliato. Grazie mille.

10.03.2024 - 18:50

DROPS Design answered:

Buonasera Paola, si deve lavorare un ferro diritto dal diritto del lavoro. Buon lavoro!

17.03.2024 - 18:50

country flag Lorene wrote:

Merci pour ce tuto. J’ai déjà bien avancé mais je ne comprend pas bien la partie du col. Pourquoi 8 des mailles sont elles à tricoter à l’endroit et non au point fantaisie comme le reste ? Je trouve que c’est moins joli d’avoir ce changement. Merci pour la réponse.

22.02.2024 - 19:14

DROPS Design answered:

Bonjour Lorene, on tricote ces mailles au point mousse pour permettre au point de blé (A.1) de ne pas être perturbé par les rangs raccourcis; ainsi, A.1 continue et l'extérieur du col est au point mousse. Bon tricot!

23.02.2024 - 08:18

country flag Tamara wrote:

Hoi, als ik de vest in een maat S wil breien, hoeveel bolletjes wol heb ik dan nodig? En klopt het dat er drie verschillende bolletjes worden gebruikt?

24.01.2024 - 09:26

DROPS Design answered:

Dag Tamara,

Bovenaan bij de materialenlijst staat per maat aangegeven hoeveel gram je nodig hebt. (Het eerste getal geldt voor maat S, het tweede getal voor maat M, enzovoort). 1 bol weegt meestal 50 gram, maar let erop dat dit per garensoort verschillend kan zijn. Dus als er bijvoorbeeld 400 gram staat dan zou je 8 bollen nodig hebben als 1 bol 50 gram weegt. Bij dit patroon heb je inderdaad 3 verschillende soorten bolletjes nodig; 2 kleuren van Soft Tweed en 1 kleur van Kid-Silk.

28.01.2024 - 19:26

country flag Theresa Spruyt wrote:

Can you tell me what size the model is and what size was knitted, I would like to know the amount of ease to work out which size to knit. Thank you so much.

22.01.2024 - 15:59

DROPS Design answered:

Dear Theresa, the model is an M size, wearing an M size garment. You can see the measurements of the garment in cm in the size charts, at the end of the pattern. You can choose how much ease to have by comparing the measurements of the finished garment to your own. Happy knitting!

22.01.2024 - 23:21

country flag Anna wrote:

Dzień dobry! Skończyłam robić sweter i nie wiem dokładnie jak przyszyć kołnierz do dekoltu i z szyć plecy. Czy istnieje szansa na dostanie bardziej szczegółowej instrukcji? Dziękuję! :)

14.01.2024 - 13:41

DROPS Design answered:

Witaj Anno, spójrz na dół wzoru, gdzie znajdują się instrukcje video. Znajdziesz tak jak się wykonuje prosty szalowy kołnierz i zszywa oraz jak zszyć boki swetra. Pozdrawiamy!

15.01.2024 - 11:02

country flag Susana Araujo wrote:

Hello, I am very confused with the instructions for the pocket. What does it mean "make sure the wrong side on the pouch is towards the wrong side on the front piece". This is happening during a row on the wrong side and the explanation seems very confusing. Thanks a lot for your help

13.01.2024 - 01:17

DROPS Design answered:

Dear Susana, this is a double pocket. Before starting the front piece you should have two pocket pieces for each front piece. The first pocket piece is worked together with the front piece stitches (in this case, the wrong side of the front piece and the wrong side of the pocket piece are facing each other, which is necessary so that all of the visible pocket pieces will be on the right side. Then, on the next row, work 22 stitches from the other pocket piece and then you continue with the front piece. To finish the jacket sew all of the openings in the pocket. Happy knitting!

14.01.2024 - 20:27

country flag Susana Araujo wrote:

Hi there, I am working the last bit in the pouches and I am confused with this part: "When the pouch measures 16 cm, cast off 1 stitch at the beginning of the next 2 rows = 22 stitches – with the last row worked, row 1 in A.1 (this is important so the pattern matches the jacket). " Does my last row needs to be A1 or, do I have to work to the last row and then work A1?

09.01.2024 - 23:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Araujo, the last row worked on pouch should be the first row in A.1, this means start casting off on the 4th row in A.1, turn and work next row = row 1 in A.1 casting off 1 st at the beg of row. Happy knitting!

10.01.2024 - 09:29

country flag Susana Araujo wrote:

Hi there, I am working the back piece in Size S and it says "When the piece measures 68 cm, cast off the middle 10 stitches for the neck and finish each shoulder separately. Then cast off 1 stitch on the next row from the neck = 26 shoulder stitches. " If I am not wrong 68 minus 10 is 58 and divided by each shoulder it should be 29 stitches. Even if I do minus 1 of the stitch that I will be casting off from the neck that would still only be 28. How do we get to 26? Can someone help?

04.01.2024 - 00:09

DROPS Design answered:

Hi Susan, You cast off 2 stitches on each side for the armholes when the back piece measures 50 cm. This leaves you with 64 stitches. Then when you cast off the middle 10 stitches (at 68 cm) you are left with 54 stitches, minus 1 stitch more for the neck, you now have 26 stitches on the shoulder. Hope this helps and happy knitting!

04.01.2024 - 07:41

country flag Majken wrote:

När den andra fickpåsen stickas med, ska den väl vara med avigsidan utåt? Dvs med rätan in mot den första fiskpåsen? Och den borde då ha ett varv mer på sig redan, för att stämma med A-mönstret då man redan stickat ett varv till ( ” ihop och avmaskningsvarvet” till framsidan av fickan. Nu blir det ju fel i A-mönstret.. (lite som på bilden)

17.12.2023 - 02:06

DROPS Design answered:

Hej Majken, du har två fickor för varje framstycke. Första stickas ihop med framstycket (i det här fallet är avigsidan på framstycket och avigsidan på fickstycket vända mot varandra. Sedan, på nästa varv, sticka 22 maskor från det andra fickstycket och sedan fortsätter du med framstycket enligt mönstret.

16.01.2024 - 11:32