Sandra skrifaði:
Wie breit soll der seegrüne Streifen an Rückenteil/Vorderteil zu Beginn der Strickarbeit sein? Die Beschreibung der Streifen beginnt mit puderrosa.
11.09.2024 - 16:35DROPS Design svaraði:
Liebe Sandra, dieses Teil stricken Sie vor die Armlöcher, die Streifen beginnen erst nach 16-18-19-21-23-26 cm beim Rückenteil und nach 14-15-17-18-19-20 beim Vorderteil. Viel Spaß beim Stricken!
12.09.2024 - 09:23
Abby skrifaði:
Does this mean you’re releasing more colors of alpaca boucle?
06.08.2023 - 21:05
Linda skrifaði:
Navn: Free
06.08.2023 - 20:30
Danielle Llorens skrifaði:
Rainbow
06.08.2023 - 16:17
Blumstein skrifaði:
Pourrais je avoir des explications pour ce modèle svp merci
06.08.2023 - 10:48
Andrea skrifaði:
Winter sun
06.08.2023 - 10:18
Nadia Trappeniers skrifaði:
Frosty
04.08.2023 - 08:52
Ould Oufella MC skrifaði:
Pull avec plusieurs couleurs coordonnées superbe
04.08.2023 - 07:13
Monica Flantua skrifaði:
Winter spring
04.08.2023 - 07:03
Libellule01 skrifaði:
Berlingot
03.08.2023 - 19:37
Dream Weaver#dreamweaversweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð oversized peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk, prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, með evrópskri /skáhallandi öxl, röndum, háu hálsmáli og klauf í hliðum.
DROPS 243-34 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). RENDUR – STUTT ÚTSKÝRING: Allt stykkið er prjónað með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir). Einungis litum í DROPS Brushed Alpaca Silk er skipt þegar rendur eru prjónaðar eins og útskýrt er að neðan. Rendur eru prjónaðar í sléttprjóni. RENDUR BAKSTYKKI/FRAMSTYKKI: 6 cm með litnum dovt rosa. 4 cm með litnum ryð. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: 2 cm með litnum skærbleikur. 5 cm með litnum karrý. 7-7-8-8-9-9 cm með litnum ljós sægrænn. 4 cm með litnum stálblár. 3-3-3-4-4-4 cm með litnum ljós sægrænn. 2 cm með litnum karrý. 4-5-5-5-5-6 cm, eða að óskuðu máli með litnum dauf bleikur. RENDUR ERMI: 6 cm með litnum dauf bleikur. 4 cm með litnum ryð. 2 cm með litnum skærbleikur. 5 cm með litnum karrý. 9-8-8-8-7-7 cm, eða að óskuðu máli með litnum ljós sægrænn. LEIÐBEININGAR (endar festir): Þegar skipta á yfir í nýjan lit í næstu rönd, endið þegar 8 lykkjur eru eftir í umferð á undan næstu rönd. Klipptu þráðinn sem þú prjónar með í DROPS Brushed Alpaca Silk ca 10-12 cm frá stykki, hnýtið þennan þráð saman með DROPS Brushed Alpaca Silk í næsta lit (ca 7-8 cm inn á þráðinn sem klippt var af þannig að þú sért með 2 þráðarenda ca 7-8 cm), skiptið upp endunum og prjónið síðustu lykkjur með 2 þráðum í litnum sem þú hefur nýlega prjónað með, eftir hnútinn prjónar þú næstu lykkjur með 2 þráðum í næstu litarönd (þráðarendarnir prjónast núna inn). Þetta er gert í hvert skipti sem skipt er um lit, en passið uppá að skipt sé um lit til skiptis sitt hvoru megin á stykki, þannig að endaskiptin verði ekki alltaf í sömu hlið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund í röndum. Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, áður en stykkið skiptis fyrir klauf í hliðum. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrist prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í kringum hálsmál í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 22-24-24-26-26-26 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjurnar í hverri umferð. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun umferðar (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið alveg eins út bæði frá réttu og frá röngu alls 19-21-23-24-26-28 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 60-66-70-74-78-82 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir sléttprjón án útaukninga. Setjið 1 prjónamerki í ystu lykkju í hvorri hlið, héðan er nú stykkið mælt! Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 4-5-5-6-7-8 cm, mælt yst meðfram handvegi frá prjónamerki (stykkið mælist ca 16-18-19-21-23-26 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan). Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið RENDUR BAKSTYKKI / FRAMSTYKKI (lesið einnig stuttar leiðbeiningar um rendur í útskýringu að ofan). Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka á bakstykki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, mælist stykkið ca 14-15-15-16-17-18 cm frá prjónamerki – mælt yst meðfram handvegi. Klippið þræðina, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Notið 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir) og prjónið upp 19-21-23-24-26-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónuð er upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum 23-25-27-28-30-32 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónaðar til baka frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan. Notið 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir) og prjónið upp 19-21-23-24-26-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5-6-7-8-9-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan síðustu 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum 23-25-27-28-30-32 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónaðar til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 23-25-27-28-30-32 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 14-16-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan sléttprjón yfir 23-25-27-28-30-32 lykkjur frá vinstra framstykki = 60-66-70-74-78-82 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-17-18-19-20 cm, mælt yst meðfram handvegi. Munið eftir LEIÐBEININGAR og prjónið RENDUR FRAMSTYKKI / BAKSTYKKI. Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka á framstykki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, mælist stykkið ca 24-25-27-28-29-30 cm frá þar sem framstykkið og bakstykkið var sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Skiptið yfir í 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð Brushed Alpaca Silk í litnum skærbleikur (2 þræðir). Prjónið sléttprjón yfir 60-66-70-74-78-82 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-2-4-6-8 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 60-66-70-74-78-82 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 2-2-2-4-6-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 124-136-144-156-168-180 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 2-2-2-4-6-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Það á að nota þá síðar þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið fram að 1. merkiþræði – umferðin byrjar núna hér. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan (munið eftir LEIÐBEININGAR og stuttar upplýsingar um rendur). Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, mælist stykkið ca 27-28-29-30-31-32 cm, mælt frá þar sem stykkið var sett saman fyrir fram- og bakstykki og eftir eru ca 10 cm að loknu máli. Nú skiptist stykkið við merkiþræðina og framstykkið / bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 62-68-72-78-84-90 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og skipti yfir í 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum skærbleikur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 78-86-90-98-106-114 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff fram og til baka svona í 8 cm. Skiptið yfir í 1 þráð Alpaca Bouclé og 1 tråd Brushed Alpaca Silk í litnum ryð. Haldið áfram með stroff í 2 cm til viðbótar (alls 10 cm stroff). Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá efsta punkti á öxl. BAKSTYKKI: Setjið lykkjur á hringprjóna 5,5 og prjónið á sama hátt og á bakstykki. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 7 og 1 þráð DROPS Alpaca Bouclé og 1 þráð Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir). Byrjið frá réttu við botninn á handvegi í framstykki og prjónið upp 29-30-32-33-35-36 lykkjur upp að öxl, prjónið síðan upp 29-30-32-33-35-36 lykkjur upp að öxl, prjónið síðan upp 17-18-18-19-21-22 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi á bakstykki = 46-48-50-52-56-58 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er núna mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-1-2-3-3 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Það á að prjóna rendur og fækka lykkjum mitt undir ermi – lestu afganginn af ermi áður en þú prjónar áfram. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 5-5-5-5-6-6 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-4½-4½-4-2½-2½ cm millibili alls 6-7-7-7-9-9 sinnum = 34-34-36-38-38-40 lykkjur. JAFNFRAMT þegar prjónaðir hafa verið 10-10-10-9-9-9 cm frá prjónamerki með litnum ljós sægrænn, prjónið RENDUR ERMI. Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka, mælist ermin ca 35-34-34-32-30-30 cm frá prjónamerki efst á ermi og eftir eru ca 10 cm að loka máli. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og skiptið yfir í 1 þráð Alpaca Bouclé og 1 tråd Brushed Alpaca Silk í litnum skærbleikur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-12-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-48-52 lykkjur. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Skiptið yfir í 1 þráð Alpaca Bouclé og 1 tråd Brushed Alpaca Silk í litnum ryð. Haldið áfram með stroff í 2 cm til viðbótar (alls 10 cm stroff). Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 46-45-45-44-43-43 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, nema prjónið lykkjur upp á gagnstæða vegu, þ.e.a.s. byrjið við botninn á handvegi á bakstykki, prjónið upp 17-18-18-19-21-22 lykkjur upp að öxl og prjónið upp 29-30-32-33-35-36 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi á framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 80 til 96 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 5,5 með 1 þræði Alpaca Bouclé og 1 tråd Brushed Alpaca Silk í litnum ljós sægrænn (2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 18-18-18-21-21-21 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið niður stroffið að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum í hvora hlið við hverja axlalínu. FRÁGANGUR: Saumið botninn á handvegi við fram- og bakstykki – sjá teikningu. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dreamweaversweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.