Fanny Gunawan skrifaði:
Beste, Met hoofdomvang 58cm is 73 lossen (maat L) nog steeds te klein. Hoewel ik die lossen los gehaakt heb (met wat grotere haaknaald). Hoe kan ik deze oplossen? Overigens, zijn er niet zoveel haakpatronen voor herentrui die geschikt voor beginner.
04.08.2023 - 08:41DROPS Design svaraði:
Dag Fanny,
Wat je ook nog zou kunnen proberen is 11 stokjes meer opzettenen het meerderen in toer 2 overslaan. Dus je haakt wel toer 2, alleen meerder je dan niet.
05.08.2023 - 07:28
Fanny Gunawan skrifaði:
Beste, De pas voor maat L is gehaakt uit 73 lossen. Dit is echt te klein als een hoofd erin moet. De pas is toch voor de hals? Of begrijp ik het verkeerd? Groeten, Fanny
02.08.2023 - 22:39DROPS Design svaraði:
Dag Fanny,
Ja dat klopt, die 73 lossen is voor de hals. Het is belangrijk dat je de lossen niet te strak haakt, dus neem eventueel voor deze lossen voor de hals een naald groter en/of zorg ervoor dat je niet op het uiteinde van de haaknaald haakt
03.08.2023 - 21:05
Berenike Wannenmacher- Ginter skrifaði:
Hallo, endlich mal eine Häkelpullover für Männer! Vielen Dank! Ich werde ihn auf jeden Fall häkeln. Aber warum gebt Ihr dem Pullover so einen schrecklich negativen Namen?\r\nLiebe Grüße von Berenike Wannenmacher\r\nP.s ich beschenke regelmäßig alle Bekannten mit Häkelsachen aus Euren Mustern und alle sind immer begeistert!
26.05.2023 - 12:37
Jane Evans skrifaði:
Hi! Could I do this in Drops Nepal? If so, how much yarn would I need? Thanks!
12.05.2023 - 12:48DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Evans, sure, Nepal and Air both belong to same yarn group C - use our yarn converter to let the new yarn amount be calculated for the appropriate size. And remember - as always - to check and keep correct tension. Happy crocheting!
12.05.2023 - 13:23
Keel Over#keeloversweater |
|
![]() |
![]() |
Hekluð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 233-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 69 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 6,27. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 6. hverja lykkju. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR-1 (heklað í hring): Það á að hekla í hring án þess að enda umferðina, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð þannig að auðvelt sé að sjá hvar umferðin byrjar. Í 2. umferð er fyrsti stuðullinn heklaður í 2. loftlykkju frá byrjun á 1. umferð, heklið eins og útskýrt er í uppskrift þar til heklað hefur verið í alla hálfa stuðla frá 1. umferð. Umferðin endar ekki eins og venjulega, heldur er 1. stuðull í byrjun á næstu umferð heklaður í 1. stuðul frá fyrri umferð. Síðan er heklað í hring með 1 stuðul í hvern stuðul. Í síðustu umferð neðst á fram- og bakstykki og ermum er heklað þannig til að koma í veg fyrir skarð / hak í skiptingunni: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun á umferð. HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um kant í hálsmáli): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚRTAKA (á við um ermar): Þegar heklað er í hring kemur umferðin til með að færast til eftir því sem er heklað áfram. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, á milli 2 lykkja og látið þetta prjónamerki fylgja með lóðrétti mitt undir ermi – það verður að færa prjónamerkið til þannig að það verði lóðrétt undir ermi. Leggið stykkið flatt og athugið að prjónamerkið sé mitt undir ermi þegar fækka á lykkjum. Þegar fækka á lykkjum þá á að fækka lykkjum hvoru megin við 2 stuðla við prjónamerkið þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir að prjónamerki, heklið 2 stuðla saman þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (1 lykkja færri). Heklið 1 stuðul í hvorn af 2 næstu stuðlum (prjónamerkið situr á milli þessa 2 stuðla) og endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar og heldur síðan áfram í hring hvort fyrir sig. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli neðan frá og upp efst á berustykki, hálsmálið er brotið saman tvöfalt og saumað niður að innanverðu á stykki. BERUSTYKKI: Heklið 67-70-73-77-80-84 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 5 með DROPS Air og tengið lykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur (kemur í stað 1. hálfa stuðul), heklið 1 hálfan stuðul í hverja loftlykkju þar til heklað hefur verið í allar loftlykkjur, heklið 2 hálfa stuðla um 2 loftlykkjur frá byrjun á umferð = 69-72-75-79-82-86 hálfir stuðlar. Setjið eitt prjónamerki í stykkið, berustykkið er nú mælt héðan! Nú á að hekla stuðla, lestu HEKLLEIÐBEININGAR-1 í útskýringu að ofan, áður en þú heklar áfram! UMFERÐ 2: Heklið stuðla (1 stuðul í hvern hálfan stuðul) og aukið út 11-18-25-31-38-44 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 80-90-100-110-120-130 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 4: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22-24-26 stuðla jafnt yfir = 96-108-120-132-144-156 stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22-24-26 stuðla jafnt yfir = 112-126-140-154-168-182 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 6: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22-24-26 stuðla jafnt yfir = 128-144-160-176-192-208 stuðlar. Nú er heklað áfram mismunandi eftir stærðum: STÆRÐ S, M, L og XL: = 128-144-160-176 stuðlar. UMFERÐ 7: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 8: Heklið stuðla og aukið út 16-18-20-22 stuðla jafnt yfir. Heklið eins og 7. og 8. umferð alls 3-3-3-3 sinnum. Það eru 176-198-220-242 stuðlar í umferð. STÆRÐ XXL og XXXL: = 192-208 stuðlar. UMFERÐ 7: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 8: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. UMFERÐ 9: Heklið stuðla og aukið út 24-26 stuðla jafnt yfir. Heklið eins og 7. og 9. umferð alls 3-3 sinnum. Það eru 264-286 stuðlar í umferð. ALLAR STÆRÐIR: = 176-198-220-242-264-286 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 23-24-25-26-28-30 cm frá prjónamerki, nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 26-28-31-35-39-43 stuðla, heklið 1 hálfan stuðul, hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 stuðla fyrir ermi, heklið 11 loftlykkjur (= undir ermi), heklið 1 hálfan stuðul, heklið 52-57-63-70-79-87 stuðla, heklið 1 hálfan stuðul, hoppið yfir næstu 34-40-45-49-51-54 lykkjur fyrir ermi, heklið 11 loftlykkjur (= undir ermi), heklið 1 hálfan stuðul, heklið 26-29-32-35-40-44 stuðla. Fram- og bakstykki og ermar er nú heklað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 130-140-152-166-184-200 lykkjur. Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju (í fyrstu umferð er heklaður 1 stuðull í hverja og eina af 11 loftlykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum) þar til stykkið mælist 35-36-37-38-38-38 cm frá skiptingu – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1 þegar enda á síðustu umferðina. Klippið þráðinn og festið. Stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Nú er heklað í 34-40-45-49-51-54 lykkjurnar sem hoppað var yfir fyrir ermi í annarri hlið á stykki þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í 6. loftlykkju af 11 loftlykkjum sem heklaðar voru mitt undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 4 loftlykkjum, heklið 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins um hálfa stuðulinn í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Þetta er gert til að það verði eins lítið gat í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að loftlykkjum í hinni hliðinni á ermi, heklið 2 stuðla saman alveg eins í skiptingunni og heklið 1 stuðul í hverja og eina af síðustu loftlykkjum = 45-51-56-60-62-65 lykkjur. Það á að hekla í hring án þess að enda umferðina eins og á fram- og bakstykki, byrjið næstu umferð með að hekla 1. stuðul í 1. fastalykkju frá fyrri umferð – nú er heklað í hring. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 stuðla undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með ca 13-8-5½-4-4-3 cm millibili þar til fækkað hefur verið alls 3-5-7-9-9-10 sinnum = 39-41-42-42-44-45 lykkjur. Heklið þar til ermin mælist ca 41-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu (nú eru eftir 8 cm að loknu máli). Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann í hvern stuðul umferðina hringinn. Heklið hverja umferð svona þar til ermin mælist 49-48-48-47-46-44 cm frá skiptingu – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR-1 þegar enda á síðustu umferðina. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 5 og DROPS Air, festið þráðinn með 1 keðjulykkju ca mitt að aftan. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2 í útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul á milli hverra hálfra stuðla frá 1. umferð = 67-70-73-77-80-84 stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana). UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli. UMFERÐ 5: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana). UMFERÐ 6: Heklið 1 stuðul í aftari lykkjubogann á hverjum stuðli. UMFERÐ 7-9: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul (heklið í gegnum báða lykkjubogana). Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkjuna á heklunálinni. Brjótið kantinn í hálsmáli niður að innanverðu á stykkinu, þannig að kanturinn verði tvöfaldur. Saumið niður með nokkrum smáum sporum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #keeloversweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.