Country Belle Top#countrybelletop |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er heklað ofan frá og niður með pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-30 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. HEKLLEIÐBEININGAR-1 (á við um fram- og bakstykki, en ekki mynsturteikningu): Þegar heklað er fram og til baka, er fyrsta stuðli skipt út í byrjun á hverri umferð með 3 loftlykkjum. HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um fram- og bakstykki, en ekki mynsturteikningu): Þegar heklað er í hring er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Framstykkið og bakstykkið er heklað hvort fyrir sig niður að handvegi, síðan er heklað í hring yfir bæði stykkin. Bönd á öxlum / hlýrar er heklað neðan frá og upp. Að lokum er hekluð pífa fram og til baka á bönd á öxlum / hlýrum, pífan er saumuð við fram-/bakstykki. BAKSTYKKI: Heklið 51-53-53-55-57-59 loftlykkjur (ásamt 3 loftlykkjum til að snúa við með) með heklunál 4 með DROPS Belle. Skiptið yfir á heklunál 4, snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 47-49-49-51-53-55 loftlykkjum = 49-51-51-53-55-57 stuðlar. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT er aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð alls 8-10-11-13-14-15 sinnum = 65-71-73-79-83-87 stuðlar í síðustu umferð. Nú mælist stykkið ca 10-12-13-16-17-18 cm. Klippið þráðinn og festið. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru bæði stykkin hekluð saman þannig: Heklið 4-4-7-8-12-15 loftlykkjur fyrir handveg, 1 stuðull í hvern af 65-71-73-79-83-87 stuðlum frá bakstykki, heklið 8-8-14-16-24-30 loftlykkjur fyrir handveg, 1 stuðull í hvern af 65-71-73-79-83-87 stuðlum frá framstykki, heklið 4-4-7-8-12-15 loftlykkjur fyrir handveg og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-14-16-24-30 loftlykkjur. Héðan er nú stykkið mælt! Heklið síðan stykkið í hring, haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju = 146-158-174-190-214-234 stuðlar. Þegar heklað er í hring, snúið eftir hverja umferð þannig að heklað er í annað hvert skipti frá réttu og frá röngu. Þetta er gert svona til að áferðin verði eins allan toppinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 14-14-14-14-14-15 cm. Nú er heklað í hring eftir mynsturteikningu A.1 janframt er aukið út í fyrstu umferð (umferð merktri með ör í mynsturteikningu) þannig: A.1A, heklið A.1B alls 28-30-34-36-40-44 sinnum í umferð – A.1A sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem við bót við A.1B – JAFNFRAMT er aukið út um 11-11-15-13-13-15 loftlykkjuboga (= 1 stuðull + 1 loftlykkja) jafnt yfir = 84-90-102-108-120-132 loftlykkjubogar (= 1 stuðull + 1 loftlykkja). Haldið áfram hringinn, þ.e.a.s. mynstrið er alltaf heklað frá réttu. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið þráðinn og festið. BAND Á ÖXL / HLÝRI: Nú er heklað band á öxl / hlýri fram og til baka í uppfitjunarkantinn á framstykki yfir fyrstu 9-9-9-10-12-12 stuðla. Helklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til bandið / hlýrinn mælist 10-10-11-11-12-12 cm. Klippið þráðinn og festið. Heklið annað band / hlýra yfir fyrstu 9-9-9-10-12-12 stuðla í hinni hliðinni á sama hátt. Heklið bönd / hlýra á sama hátt á bakstykki. Saumið síðan böndin / hlýrana saman á öxl. Toppurinn mælist ca 46-48-50-53-55-57 cm frá öxl. PÍFA: Það er heklað fram og til baka yfir hverja umferð á bandi á öxl / hlýra (= 20-20-22-22-24-24 cm). Byrjið frá röngu og heklið 1 stuðul í fyrstu umferð, * 1 loftlykkja, 1 stuðul um næstu umferð *, heklið frá *-* meðfram öllu bandinu / hlýra – stillið af að það verða 26-26-28-28-30-30 loftlykkjubogar (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) í þessari umferð = 1 stuðull í hvorri hlið og 26-26-28-28-30-30 loftlykkjubogar. Snúið og heklið frá þannig – frá réttu: A.2A, A.2B alls 13-13-14-14-15-15 sinnum á breidd, endið með A.2C. haldið áfram með þetta mynstur þar til A.2 er lokið á hæðina, klippið þráðinn og festið. Heklið pífu á hitt bandið á öxl / hlýra á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul/2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð meðfram öllu hálsmálinu. KANTUR Í HANDVEGI: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul/ 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð meðfram handvegi – byrjið strax eftir pífu, heklið meðfram handvegi og fram að pífu. Leggið pífukantinn kant í kant við kant í handvegi (á bæði fram- og bakstykki) og saumið niður með smáu, fallegu spori. Heklið hinn kant í handvegi á sama hátt og saumið við pífukantinn. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #countrybelletop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.