DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Boogie Nights Top

Heklaður toppur úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað neðan frá og upp með sólfjaðramynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 241-23
DROPS Design: Mynstur cm-148
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M/L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350 g litur 10, pistasía

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðul), þ.e.a.s. hoppið yfir síðustu lykkju frá fyrri umferð. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.

ÚRTAKA:
A.2 sýnir hvernig fækkað er um 1 mynstureiningu, A.3 sýnir hvernig fækkað er um ½ mynstureiningu.
Öll úrtaka er gerð í umferð frá röngu.
Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá röngu:
Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan keðjulykkjur yfir fyrstu 6 eða 3 lykkjur í fyrstu einingu, heklið 5 loftlykkjur og haldið áfram með A.1B eins og áður.
Fækkið lykkjum í lok umferðar frá röngu þannig:
Endið umferð þegar 3 eða 6 lykkjur eru eftir í umferð (+ 3 loftlykkjur í byrjun á fyrri umferð), snúið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka, hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Heklið 81-93-105-117-129 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 77-89-101-113-125 loftlykkjum = 79-91-103-115-127 stuðlar.
Heklið síðan mynstur þannig (fyrsta umferð er hekluð frá röngu):
A.1C, A.1B heklið alls 11-13-15-17-19 sinnum, endið með A.1A.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum og loftlykkjum (heklið frá röngu):
Heklið 1 loftlykkju, heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 6-12-12-12-12 lykkjur, heklið A.1C, A.1 B heklið 9-9-11-13-15 sinnum, A.1A, nú eru eftir 6-12-12-12-12 lykkjur í umferð, snúið = 67-67-79-91-103 lykkjur – sjá ÚRTAKA!

Í stærð XXL- XXXL heldur úrtaka áfram fyrir handveg þannig:
Fækkið síðan um ½ mynstureiningu frá hlið í hverri umferð frá röngu, fækkið alls 2-4 sinnum í hvorri hlið (nú hefur fækkað um 1-2 mynstureiningu í hvorri hlið) = 79-79 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
= 67-67-79-79-79 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þannig:
A.1A, A.1 B heklið 9-9-11-11-11 sinnum, A.1 C. Þegar stykkið mælist 40-42-44-45-47 cm, heklið öxl þannig – frá réttu: A.1A, heklið 1-1-2-2-2 mynstureiningar af A.1B, heklið A.1C, snúið og heklið til baka = 19-19-25-25-25 stuðlar/lykkjur fyrir öxl.
Heklið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52 cm, endið með 1 umferð frá röngu.

Í hinni öxlinni er heklað frá réttu þannig:
Hoppið yfir miðju 29-29-29-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli (það eru eftir 19-19-25-25-25 lykkjur í umferð), heklið A.1A, 1-1-2-2-2 mynstureiningar af A.1B endið með A.1C, snúið og heklið til baka. Heklið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52 cm, endið með 1 umferð frá röngu.

FRAMSTYKKI:
Heklið alveg eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41 cm = 67-67-79-79-79 lykkjur.
Nú er hekluð öxl þannig – frá réttu: A.1A, heklið 3-3-4-4-4 mynstureiningar af A.1 B = 25-25-31-31-31 stuðlar/lykkjur fyrir öxl. Í fyrstu umferð frá röngu er fækkað um ½ mynstureiningu í byrjun á umferð, endurtakið í næstu umferð frá röngu = 19-19-25-25-25 stuðlar fyrir öxl.
Heklið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52 cm, endið með 1 umferð frá röngu.

Hin öxlin er hekluð frá réttu þannig:
Hoppið yfir miðju 17-17-17-17-17 lykkjur fyrir hálsmáli (nú eru eftir 25-25-31-31-31 lykkjur í umferð), heklið A.1A, 2-2-3-3-3 mynstureiningar af A.1B endið með A.1C, snúið og heklið til baka og fækkið um ½ mynstureiningu í lok fyrstu umferðar frá röngu. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá röngu = 19-19-25-25-25 stuðlar fyrir öxl.
Heklið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52 cm, endið með 1 umferð frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma, skiljið e.t.v. eftir ca 10 cm neðst fyrir klauf.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.05.2023
BAKSTYKKI:...Heklið 1 loftlykkju, heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 6-12-12-12-12 lykkjur, heklið A.1C, A.1 B heklið 9-9-11-13-15 sinnum, A.1A, nú eru eftir 6-12-12-12-12 lykkjur í umferð, snúið = 67-67-79-91-103 lykkjur – sjá ÚRTAKA!

Mynstur

symbols = 1 stuðull í stuðulinn fyrir neðan / í loftlykkju fyrir neðan
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 keðjulykkja
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, byrjið í næstu umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Edith Ilg-Raible wrote:

Wie kann ich die Anleitungen ausdrucken?

14.03.2024 - 17:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ilg-Raible, klicken Sie auf dem "Drucker" Icon, unter Kopfteil und über Anleitungsschritte ,so wird ein neues Fenster öffnen, und da finden Sie die Druckereinstellungen um die Anleitung auszudrucken. Viel Spaß beim Stricken!

15.03.2024 - 08:06

country flag Edith Ilg-Raible wrote:

Wie kann ich die Anleitungen ausdrucken?

14.03.2024 - 17:53

country flag Petitjean wrote:

J'ai due prendre le crochet 3 autrement magnifique

19.02.2024 - 11:21

country flag Danielle LEROUGE SCHOEFFTER wrote:

Impossible de trouver la quantité de coton nécessaire pour ce modèle merci de me répondre

25.01.2024 - 17:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lerouge Schoeffter, vous trouverez la quantité nécessaire pour chaque taille dans l'en-tête, avec les tailles, le crochet et l'échantillon, autrement dit, en taille S par ex il faut 250 g DROPS Cotton Merino / 50 g la pelote= 5 pelotes. Bon crochet!

26.01.2024 - 07:37

country flag Sofie wrote:

Hej:) Jeg er usikker på hvor i arbejdet opdateringen fra 12/5 skal ind og hvad den evt erstatter. Er det beskrevne arbejde det allerførste jeg skal lave på toppen eller kommer det ind et andet sted i opskriften? Mvh Sofie

23.08.2023 - 19:43

DROPS Design answered:

Hei Sofie. Det er blitt gjort en rettelse under avsnittet BAGSTYKKE, se så på 2. avsnitt. Det er denne linjen som er blitt rettet på: Hækl 1 luftmaske, hækl kædemasker over de første 6-12-12-12-12 masker, hækl A.1C, A.1B hækles 9-9-11-13-15 gange, A.1A, der er nu 6-12-12-12-12 masker tilbage på rækken, vend = 67-67-79-91-103 masker- læs LUKKETIPS! (det som stod tidligere er blitt fjernet). mvh DROPS Design

28.08.2023 - 13:05

country flag Darlene Huber wrote:

Re: Front piece- third sentence says: “On the first row from the wrong side decrease a 1/2 repeat at the beginning of the row…”. What exactly does this mean? What is meant by a half repeat? Is it half of the total number of repeats in the we are to crochet for the front? Is it just half of one shell? Is it half of A.1B? You need to be more specific.

06.07.2023 - 05:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Huber, see DECREASE TIP, to decrease 1/2 repeat you will have to crochet A.3, then to crochet at the beg of a row from wrong side, work: 1 chain stitch, work slip stitches over the first 3 stitches in the repeat, work 5 chain stitches (= 1 treble (Uk-English) + 2 chains) and continue A.1B. Happy crocheting!

06.07.2023 - 10:27

country flag Claudia wrote:

Buonasera, chiedo scusa per l'insistenza ma anche applicando i suggerimenti per le diminuzioni non quadra il numero delle maglie. Secondo me avete dimenticato le sei maglie di A.1A con quelle si arriva ad avanzare 12 maglie e gli scalfi sono simmetrici. Per cui io provo a proseguire la riga degli scalfi lavorando 1 catenelle, 12 maglie bassissime, A1C, A1B per 13 volte, A1C che avete scordato e allora si che restano 12 maglie.

07.05.2023 - 18:35

DROPS Design answered:

Buonasera Claudia, inoltriamo la sua richiesta al settore design: se ci dovessero essere delle correzioni troverà il modello corretto direttamente online. Buon lavoro!

11.05.2023 - 22:39

country flag Claudia wrote:

Buongiorno, ho scritto il 26 aprile e non ho ancora ricevuto risposta Di solito mi rispondevate velocemente. Magari vi è sfuggita la mia richiesta di aiuto.

06.05.2023 - 13:29

DROPS Design answered:

Buonasera Claudia, deve seguire quanto riportato nel SUGGERIMENTO PER LE DIMINUZIONI per la lavorazione dello scalfo. Buon lavoro!

06.05.2023 - 22:30

country flag Marie wrote:

Får det inte att stämma vid ärmhålet. Om jag virkar 12 sm så hamnar jag mitt i en solfjäder. På diagrammet ser det ut som att man ska hamna i en stolpe mellan solfjädrarna.

05.05.2023 - 12:05

DROPS Design answered:

Hei Marie. Oppskriften er videresendt til design avd for en dobbeltsjekke. Men for å hjelpe deg best mulig trenger vi å vite hvilken størrelse du hekler? mvh DROPS Design

08.05.2023 - 11:59

country flag Claudia wrote:

Buongiorno, ho bisogno di aiuto sullo scalfo. Taglia XXL. 115 maglie. A 30 cm lavoro 12 maglie bassissime, a1c 6 maglie, a1b 13 volte 78 maglie, e poi me ne rimangono 18 non 12. Dove sbaglio? grazie

26.04.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Buonasera Claudia, deve seguire quanto riportato nel SUGGERIMENTO PER LE DIMINUZIONI per la lavorazione dello scalfo. Buon lavoro!

06.05.2023 - 22:30