DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1122.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Charming Clover Top

Heklaður toppur úr DROPS Cotton Light. Stykkið er heklað með gatamynstri og bandi á öxl / hlýra. Stærð XS - XXL.

DROPS 239-28
DROPS Design: Mynstur cl-126
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-200-200-250-250 g litur 22, kakibrúnn

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1122.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.
STUÐLAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð.
FASTALYKKJUR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkjju sem kemur í stað fyrstu fastalykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10.

LEIÐBEININGAR:
Ef þig langar til að toppurinn hylji aðeins meira að framan, er hægt að hekla brjóstaskálarnar saman með nokkrum fastalykkjum sem skarast fyrir miðju.
Staðsetjið brjóstaskálarnar með óskaðri staðsetningu hvar á að hekla lykkjurnar þar sem stykkið á að skarast og heklið fastalykkjur meðfram neðri hlið.
Stillið fjölda fastalykkja sem á að hekla miðað við hversu mikið stykkið skarast.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Brjóstaskálarnar eru heklaðar fram og til baka hvor fyrir sig, síðan eru þær heklaðar saman í eitt stykki.
Fram- og bakstykkið er heklað fram og til baka, síðan eru brjóstaskálarnar saumaðar eða heklaðar niður við fram- og bakstykki. Það er heklað 1 band á öxl / hlýri fyrir hvora brjóstaskál og snúra til að hnýta toppinn með mitt að aftan.

BRJÓSTASKÁL:
Heklið 14-15-16-20-21-22 loftlykkjur með heklunál 3,5 og DROPS Cotton Light.
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR í ústkýringu að ofan.
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 9-10-11-15-16-17 loftlykkjum (nú er eftir 1 loftlykkja í loftlykkjuröðinni), heklið mynsturteikningu A.1 í síðustu loftlykkjuröðina (toppurinn á brjóstaskálinni). Snúið stykkinu þannig að heklað er meðfram neðri hlið á loftlykkjuröðinni. Heklið 1 stuðul í neðri hlið á hverjum af 11-12-13-17-18-19 stuðlum sem heklaðir voru í annarri hliðinni á loftlykkjuröðinni (síðasti stuðull er heklaður í neðri hlið á 3 loftlykkjum sem koma í stað 1. stuðuls). Það eru 26-28-30-38-40-42 stuðlar og 1 loftlykkja í umferð. Snúið stykkinu.
Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul, en um loftlykkju mitt í A.1 er hekluð mynsturteikning A.1 (4 stuðlar fleiri í umferð). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið svona þar til heklaðar hafa verið alls 5-6-7-8-9-10 umferðir með stuðlum fram og til baka.
Það eru 42-48-54-66-72-78 stuðlar og 1 loftlykkju í umferð.

Nú er heklað eftir mynsturteikningu A.2 til A.6 þannig:
UMFERÐ 1: Heklið A.2 yfir 3 stuðla, heklið A.3 fram að loftlykkju mitt í A.1 (6-7-8-10-11-12 sinnum), heklið A.4 í loftlykkju, heklið A.5 fram þar til 3 stuðlar eru eftir (6-7-8-10-11-12 sinnum) (mynstrið verður alveg eins hvoru megin við A.4), heklið A.6 yfir 3 stuðla. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Heklið A.6 yfir A.6, heklið A.5 á milli hverra stuðlahópa fram að fyrstu loftlykkju í A.4 (5-6-7-9-10-11 sinnum), heklið A.5 um fyrstu loftlykkju í A.4, heklið A.4 um loftlykkju í miðju á A.4, heklið A.3 um síðustu loftlykkju í A.4, heklið A.3 á milli hverra stuðlahópa (5-6-7-9-10-11 sinnum) og heklið A.2 yfir A.2. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá umferð 1 = 52-58-64-76-82-85 stuðlar. Klippið þráðinn og festið.

Heklið 1 brjóstaskál til viðbótar á sama hátt.

FRÁGANGUR Á BRJÓSTASKÁLUM:
Lesið LEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. Notið heklunál 3,5 og DROPS Cotton Light. Heklið ca 29-32-36-39-43-47 fastalykkjur meðfram neðri hlið á fyrri brjóstaskálinni, takið fram hina brjóstaskálina og heklið ca 29-32-36-39-43-47 fastalykkjur meðfram neðri hlið á seinni brjóstaskálinni. Klippið þráðinn.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 123-136-145-168-190-213 loftlykkjur með heklunál 3,5 og DROPS Cotton Light. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. Byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið 1 umferð í mynsturteikningu A.7 til A.10 þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Heklið A.7, heklið til skiptis A.8 og A.9 þar til eftir eru 1-5-5-1-5-1 loftlykkjur, heklið A.9 0-1-1-0-1-0 sinnum og endið með A.10. Það eru 109-121-129-149-169-189 fastalykkjur.
UMFERÐ 2 (rétta): Heklið A.10, heklið A.9 þar til 4 lykkjur eru eftir og endið með A.7.
UMFERÐ 3 (ranga): Heklið A.7, heklið A.9 þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með A.10.
Endurtakið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 16-17-18-16-17-17 cm eða heklið að óskaðri lengd. Klippið þráðinn og festið.

FRÁGANGUR:
Staðsetjið stykkin með brjóstaskálunum á fram- og bakstykki, setjið þær fyrir miðju meðfram loftlykkjum frá byrjun á fram- og bakstykki. Brjóstaskálarnar eru saumaðar eða heklaðar niður við fram- og bakstykki. Saumið í ystu lykkjubogana eða heklið með keðjulykkjum þannig að saumurinn verði flatur og fallegur við frágang.

BAND / HLÝRI:
Notið heklunál 3,5 og 2 þræði DROPS Cotton Light. Heklið loftlykkjur þar til bandið á öxl / hlýri mælist ca 110-115 cm langt eða heklið að óskaðri lengd. Heklið alls 3 bönd / hlýra, eitt fyrir hvora brjóstaskál og eitt til að loka fram- og bakstykki að aftan.
Brjótið saman eitt bandið / hlýra fyrir miðju, stingið endanum á bandinu / hlýra með lykkjunni í gegn efst á brjóstaskálinni, þræðið síðan bandið / hlýra í gegnum lykkjuna og herðið að þannig að lykkjan lokist í kringum bandið / hlýra. Festið annað band / hlýra á sama hátt í hina brjóstaskálina.
Brjótið fram- og bakstykkið saman þannig að skammhliðarnar liggi að hvorri annarri. Þræðið inn endana á síðasta bandinu / hlýra í gegnum hvora hlið efst á fram- og bakstykki, þræðið endana fram og til baka í gegnum hliðarnar þannig að bandið / hlýri myndi kross fyrir miðju. Haldið áfram að þræða þar til endarnir komi út neðst í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Hnýtið endana saman.

Mynstur

symbols = 1. loftlykkja frá byrjun á stykki
symbols = 2 stuðlar um sömu loftlykkju
symbols = 1 loftlykkja
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið í næstu umferð í mynsturteikningu

symbols = stuðull
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 3 stuðlar í sömu lykkju / 3 stuðlar á milli 2 hópa af 3 stuðlum frá fyrri umferð

symbols = 3 loftlykkjur og 2 stuðlar í fyrstu lykkju

symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Ina Bremer wrote:

Problem gelöst! Mit der nötigen Ruhe klappt's dann auch mit der Häkelnanleitung : )

05.04.2024 - 22:14

country flag Ina Bremer wrote:

Hallo ihr Lieben, ich häkle die Größe XL und komme ganz zu Beginn nur auf 37 Stäbchen anstatt auf 40... Was übersehe ich, bzw. was mache ich verkehrt? Ganz liebe Grüße Ina

05.04.2024 - 18:42

DROPS Design answered:

Liebe Ina, auf der 1. Seite haben Sie (3 Lm + 1 Stb in die 4. Lm = 2 Stäbchen + 1 Stäbchen in je die nächsten 16 Lm = 18 Stäbchen + A.1 in die letzte Luftmasche = 2 Stäbchen = 20 Stäbchen auf der 1. Seite, dann auf die 2. Seite: A.1 = 2 Stäbchen (mit 1 Lm davor) + 1 Stäbchen in die nächsten 18 Lm = 20 Stäbchen = 40 Stäbchen insgesamt. Viel Spaß beim Häkeln!

08.04.2024 - 07:33

country flag Dawn wrote:

What measurements are your sizes please for women XS -S -M -L -XL -XXL I’m not sure what size to make ? Thank you

22.03.2024 - 11:58

DROPS Design answered:

Dear Dawn, you will find the measurement chart for finished piece at the bottom of the written pattern, compare to a similar garment you have and like the shape to choose the best appropriate size. Read more here. Happy knitting!

22.03.2024 - 15:13

country flag Alcina Carvalho wrote:

Hello, Thanks for your answer. But you still didn't answer my question: at the end of Row 2 and Row 3, how many stitches do I have? Thanks.

23.06.2023 - 13:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Carvalho , you will have 149 sts after you have worked first row with A.8 and A.9 and then continue with A.9 only between A.10 and A.7 over all 149 sts. Happy crocheting!

23.06.2023 - 15:57

country flag Alcina Carvalho wrote:

Hello, I'm doing the part of the body (size L) of this pattern and I have doughts in how many stitches the row 2 and 3 have at the end. Is it supposed to finish with 168 stitches, as the beginning, or it has to finish with 149? Also, I think that at 2nd row, the A7 and A10 has to have only two stiches, and not three as indicated, otherwise we will increase 2 stitches for row. Could you please clarify? Thanks for your help!

22.06.2023 - 17:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Carvalho, when working diagram A.8 you will skip 1 stitch in each A.8 (4 sts over 5 chains), that's how you will decrease the number of stitches on first row to 149 sts.. Read 1st row from the right towards the left (starting with A.7 and finishing with A.10), then work row 2 starting with A.1, repeat A.9 and end with A.7 (don't work A.8 anymore). And repeat these 2 rows with A.7 over 4 sts on row 2 and3 sts on row 3; A.9 over 4 sts and A.10 over 3sts. Happy crocheting!

23.06.2023 - 07:32

country flag Alexandra wrote:

Row 3 , the treble cluster Rrow comes out with 135 stitches. It would be helpful if you could crochet the 1st 3 rows giving the correct amount of stitches after each row and do the same on the next 3 repeat rows stating amount of stitches after each row. This should have been written in the pattern.

05.06.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Dear Alexandra, which size are you working on? Remember that you don't work the same diagrams on 1st than on 2nd and 3rd row; on the first row you will crochet alternately A.8 and A.9 but on the 2nd and 3rd row you will then crochet only A.9 (A.8 was worked over 5 stitches and you skip 1 stitch so that A.8 ends with only 4 sts. Happy crocheting!

06.06.2023 - 09:04

country flag Alexandra wrote:

Sorry that should read 135 sts not 145. Still a lot more than 109!

05.06.2023 - 01:46

country flag Alexandra wrote:

I can't get the body to work. You are supposed to have 109 stitches throughout. Row 1 and 2 have 109 stitches but row 3 comes out with about 145 sts. . I think I am following the pattern exactly. I don't want to give up on it as I promised it fir my granddaughter.

05.06.2023 - 01:38

DROPS Design answered:

Dear Alexandra, when working row 3 you should just crochet 1 double crochet (UK-English) in each stitch, so if you get 109 sts on 2nd row, you should have 109 sts on 3rd row. Happy crocheting!

05.06.2023 - 10:25

country flag Anne Buckley wrote:

This is the way I got the BODY section pattern to work with the treble clusters lined up vertically every other row: First ROW 2 and 3 as written in pattern and diagram When you repeat ROW 2 (and subsequent repeats) , make first treble cluster in second stitch (DC) from beginning and final cluster in last but one. Otherwise, the clusters and holes do not line up! It would be useful to show some of the subsequent row 2/3 repeats in the diagram.

31.05.2023 - 09:34

country flag Anne Buckley wrote:

I have started on the BODY section. I have completed ROW 1 with the correct number of stitches. I completed Row 2 and 3. My problem is now when I repeat ROW 2 again, the 3 trebles do not line up with the ones in the previous ROW 2 and when I am almost at the end of the row and I count the stitches I have too many stitches. PLease can you explain how this works with the pattern as written? It seems that having the 3 trebles at either end of the row will add to the stitches each time. Thanks

30.05.2023 - 09:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Buckley, starting from WS you will first crochet A.7 and then alternately A.8 and A.9, end with A.9 (in some sizes only), then end with A.10 = there are 109-121-129-149-169-189 double crochets. Now work 2nd row from RS (read diagram from left towards right): A.10, then repeat A.9 and end with A.7. Now work 3rd row from WS (read diagram from right towards left): A.7, repeat A.9 and end with A.10. When repeating 2nd and 3rd row the same way, the treble crochets should be worked lined up with those from first 2nd row. Happy crocheting!

30.05.2023 - 11:37