Sue Forsyth skrifaði:
I have just discovered your gorgeous patterns and I have only recently started crocheting. The boogie Nights vest is my first attempt at a piece of clothing. I started on the back but when I got to the armhole and did the 1st row of diagram I found I had about 20 stitches too many. I then tried one of the fronts and the same again. I’m struggling to follow the diagrams (1st time I’ve tried to read one). What am I doing wrong?
08.07.2023 - 12:27DROPS Design svaraði:
Dear Sue, could you indicate how many stitches you have and which size you are working so that we may better help you? Happy crochetting!
10.07.2023 - 16:54
Boogie Nights Vest#boogienightsvest |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað neðan frá og upp með sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-24 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur (þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul), þ.e.a.s. hoppið yfir síðustu lykkju frá fyrri umferð. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. ÚRTAKA: A.2 sýnir hvernig lykkjum fækkar um 1 mynstureiningu, A.3 sýnir hvernig lykkjum fækkar í ½ mynstureiningu. Öll úrtaka er gerð í umferð frá röngu. Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá röngu þannig: Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan keðjulykkjur yfir fyrstu 6 eða 3 lykkjurnar í fyrstu mynstureiningu, heklið 5 loftlykkjur og haldið áfram með A.1B eins og áður. Fækkið lykkjum í lok umferðar frá röngu þannig: Endið umferð þegar 3 eða 6 lykkjur eru eftir í umferð (+ 3 loftlykkjur í byrjun á fyrri umferð), snúið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin er heklað fram og til baka hvert fyrir sig í stykkjum. BAKSTYKKI: Heklið 81-93-105-117-129 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 77-89-101-113-125 loftlykkjum = 79-91-103-115-127 stuðlar. Heklið síðan mynstur þannig (fyrsta umferð er hekluð frá röngu): A.1C, A.1B er heklað alls 11-13-15-17-19 sinnum, endið með A.1A. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum og loftlykkjum (heklað frá röngu): Heklið 1 loftlykkju, heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 6-12-12-12-12 lykkjur, heklið A.1C, A.1B er heklað 9-9-11-13-15 sinnum, nú eru eftir 6-12-12-12-12 lykkjur í umferð, A.1A, snúið = 67-67-79-91-103 lykkjur – sjá ÚRTAKA! Í stærð XXL- XXXL heldur úrtakan áfram fyrir handveg þannig: Fækkið síðan um ½ mynstureiningu inn frá hlið í hverri umferð frá röngu, fækkið lykkjum alls 2-4 sinnum í hvorri hlið (nú hefur fækkað um 1-2 mynstureiningar í hvorri hlið) = 79-79 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 67-67-79-79-79 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þannig: A.1A, A.1B er heklað 9-9-11-11-11 sinnum, A.1C. Þegar stykkið mælist 40-42-44-45-47 cm, heklið öxl þannig – frá réttu: A.1A, heklið 1-1-2-2-2 mynstureiningar af A.1B, endið með A.1C, snúið og heklið til baka = 19-19-25-25-25 stuðlar/lykkjur fyrir öxl. Heklið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, endið með 1 umferð frá röngu. Hin öxlin er hekluð þannig: Hoppið yfir miðju 29-29-29-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli (nú eru eftir 19-19-25-25-25 lykkjur í umferð), heklið A.1A, 1-1-2-2-2 mynstureiningar af A.1B endið með A.1C, snúið og heklið til baka. Heklið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52 cm, endið með 1 umferð frá röngu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 39-45-51-57-63 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), 1 stuðull í hverja af næstu 35-41-47-53-59 loftlykkjum = 37-43-49-55-61 stuðlar. Síðan er mynstur heklað þannig: A.1A, A.1B er heklað 4-5-6-7-8 sinnum, endið með A.1C. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum og loftlykkjum (heklað frá röngu). Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 6-12-12-12-12 lykkjur, heklið A.1C, A.1B heklið 3-3-4-5-6 sinnum, heklið A.1A = 31-37-37-43-49 lykkjur. Í stærð XXL- XXXL heldur úrtaka áfram fyrir handveg þannig: Fækkað er um ½ mynstureiningu inn frá hlið í byrjun á hverri umferð frá röngu, fækkið lykkjum alls 2-4 sinnum (nú hefur fækkað um 1-2 mynstureiningar í hlið) – munið eftir ÚRTAKA = 37-37 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 31-37-37-37-37 lykkjur. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir hálsmáli: Haldið áfram með mynstur, en í lok hverrar umferðar frá röngu er fækkað um ½ mynstureiningu við miðju að framan. Fækkið lykkjum svona þar til 19-19-25-25-25 lykkjur eru eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52 cm, endið með umferð frá röngu, klippið þráðinn og festið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið eins og hægra framstykki, nema fækkið lykkjum fyrir handveg í lok umferðar frá röngu þannig: Heklið A.1C, A.1B er heklað 3-3-4-5-6 sinnum, nú eru eftir 6-12-12-12-12 lykkjur í umferð, snúið. Þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, er það gert í byrjun á hverri umferð frá röngu – munið eftir ÚRTAKA! FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma, skiljið e.t.v. eftir ca 10 neðst í hvorri hlið fyrir klauf. HEKLUÐ SNÚRA: Heklið umferð með loftlykkjum ca 60 til 80 cm með heklunál 4. Klippið þráðinn og festið. Leggið snúruna saman tvöfalda, þræðið lykkjunni í gegnum gat efst í hálsmáli á öðru framstykkinu, þræðið báða endana í gegnum lykkjuna þannig að snúra festist. Endurtakið á hinu framstykkinu og hnýtið snúruna saman í slaufu mitt að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #boogienightsvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.