Penny wrote:
Hello, I’m just reading through the pattern before I make a start. When you get to the chart pattern in the body, I can’t grasp how the pattern repeat of A1B is only 17 times. Doesn’t that round have 174 stitches up to that point? I can only make out 6 stitches in pattern A1B to repeat. Thank you
20.11.2023 - 13:11DROPS Design answered:
Dear Penny, you need to work A.1B over all of the stitches in the round. You also need to increase 15 chain spaces (1 treble crochet + 1 chain stitch). So you will increase 30 stitches (15 treble crochet, 15 chain stitches). Therefore, you will have 204 stitches (174+30), or also102 groups of (1 treble crochet, 1 chain stitch). Happy crocheting!
26.11.2023 - 23:11Happy wrote:
On your pattern Country Bell what bust size do you consider to be L and XL?
30.08.2023 - 22:36DROPS Design answered:
Dear Happy, you will find all finished measurements in cm taken flat from side to side in the measurement chart at the bottom of the pattern (convert into inches here - measure a similar garment you have and like the size to find out the best matching size, Read more here. Happy crocheting!
31.08.2023 - 09:19Brenda Taylor wrote:
Hello I am working on the flounce which begins on wrong side and, if I am reading the pattern correctly, there is one more row worked (ie right side) then it says turn and work from right side? (I'm already on the right side) . or have I mis-read the pattern...maybe there are 2 more rows in which case the next row is on right side?? Thank you
07.07.2023 - 17:09DROPS Design answered:
Dear Brenda, you start working on the wrong side of the piece and work the flounce stitches on or around the rows ends of the straps. When it says "1 treble crochet in first row," it means to work a treble crochet in the edge stitch/ row end of the first row from the strap. After you finish working this whole row, you will turn and start from the right side with the charts. Happy crochetting!
10.07.2023 - 16:24Lucy Mazurek wrote:
Ik begrijp niet hoe ik het voor en achterpand aan elkaar moet haken. Volgens het patroon moet ik beginnen met 4 losse voor het armsgat en dan 71 stokjes van het achterpand. Ik begrijp niet hoe ik dit aan het voorkant moet vast haken.
18.06.2023 - 16:09Vennat wrote:
Bonjour , Combien de pelottes sont nécessaires pour réaliser cet ouvrage en taille S/M ? Merci par avance
02.05.2023 - 22:07DROPS Design answered:
Bonjour Mme Vennat, vous trouverez la quantité nécessaire, au poids, et pour chaque taille dans la partie haute des explications, avec les tailles, le crochet et l'échantillon, autrement dit, il faut 250 g DROPS Belle en taille S et en taille M / 50 g la pelote -= 5 pelotes pour chacune de ces 2 tailles. Bon crochet!
03.05.2023 - 07:57Gleena Goriel wrote:
Charming Rose
21.01.2023 - 19:16Kate wrote:
Crocheted peplum top with butterfly sleeves. Good title so I can find it when I search.
19.01.2023 - 03:43Amber wrote:
Dear, Valentine
18.01.2023 - 20:52Elke wrote:
Elfenzauber
18.01.2023 - 08:42
Country Belle Top |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er heklað ofan frá og niður með pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-30 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. HEKLLEIÐBEININGAR-1 (á við um fram- og bakstykki, en ekki mynsturteikningu): Þegar heklað er fram og til baka, er fyrsta stuðli skipt út í byrjun á hverri umferð með 3 loftlykkjum. HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um fram- og bakstykki, en ekki mynsturteikningu): Þegar heklað er í hring er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Framstykkið og bakstykkið er heklað hvort fyrir sig niður að handvegi, síðan er heklað í hring yfir bæði stykkin. Bönd á öxlum / hlýrar er heklað neðan frá og upp. Að lokum er hekluð pífa fram og til baka á bönd á öxlum / hlýrum, pífan er saumuð við fram-/bakstykki. BAKSTYKKI: Heklið 51-53-53-55-57-59 loftlykkjur (ásamt 3 loftlykkjum til að snúa við með) með heklunál 4 með DROPS Belle. Skiptið yfir á heklunál 4, snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 47-49-49-51-53-55 loftlykkjum = 49-51-51-53-55-57 stuðlar. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT er aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hverri umferð alls 8-10-11-13-14-15 sinnum = 65-71-73-79-83-87 stuðlar í síðustu umferð. Nú mælist stykkið ca 10-12-13-16-17-18 cm. Klippið þráðinn og festið. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru bæði stykkin hekluð saman þannig: Heklið 4-4-7-8-12-15 loftlykkjur fyrir handveg, 1 stuðull í hvern af 65-71-73-79-83-87 stuðlum frá bakstykki, heklið 8-8-14-16-24-30 loftlykkjur fyrir handveg, 1 stuðull í hvern af 65-71-73-79-83-87 stuðlum frá framstykki, heklið 4-4-7-8-12-15 loftlykkjur fyrir handveg og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-14-16-24-30 loftlykkjur. Héðan er nú stykkið mælt! Heklið síðan stykkið í hring, haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju = 146-158-174-190-214-234 stuðlar. Þegar heklað er í hring, snúið eftir hverja umferð þannig að heklað er í annað hvert skipti frá réttu og frá röngu. Þetta er gert svona til að áferðin verði eins allan toppinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR-2. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 14-14-14-14-14-15 cm. Nú er heklað í hring eftir mynsturteikningu A.1 janframt er aukið út í fyrstu umferð (umferð merktri með ör í mynsturteikningu) þannig: A.1A, heklið A.1B alls 14-15-17-18-20-22 sinnum í umferð – A.1A sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem við bót við A.1B – JAFNFRAMT er aukið út um 11-11-15-13-13-15 loftlykkjuboga (= 1 stuðull + 1 loftlykkja) jafnt yfir = 84-90-102-108-120-132 loftlykkjubogar (= 1 stuðull + 1 loftlykkja). Haldið áfram hringinn, þ.e.a.s. mynstrið er alltaf heklað frá réttu. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina, klippið þráðinn og festið. BAND Á ÖXL / HLÝRI: Nú er heklað band á öxl / hlýri fram og til baka í uppfitjunarkantinn á framstykki yfir fyrstu 9-9-9-10-12-12 stuðla. Helklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til bandið / hlýrinn mælist 10-10-11-11-12-12 cm. Klippið þráðinn og festið. Heklið annað band / hlýra yfir fyrstu 9-9-9-10-12-12 stuðla í hinni hliðinni á sama hátt. Heklið bönd / hlýra á sama hátt á bakstykki. Saumið síðan böndin / hlýrana saman á öxl. Toppurinn mælist ca 46-48-50-53-55-57 cm frá öxl. PÍFA: Það er heklað fram og til baka yfir hverja umferð á bandi á öxl / hlýra (= 20-20-22-22-24-24 cm). Byrjið frá röngu og heklið 1 stuðul í fyrstu umferð, * 1 loftlykkja, 1 stuðul um næstu umferð *, heklið frá *-* meðfram öllu bandinu / hlýra – stillið af að það verða 26-26-28-28-30-30 loftlykkjubogar (= 1 loftlykkja + 1 stuðull) í þessari umferð = 1 stuðull í hvorri hlið og 26-26-28-28-30-30 loftlykkjubogar. Snúið og heklið frá þannig – frá réttu: A.2A, A.2B alls 13-13-14-14-15-15 sinnum á breidd, endið með A.2C. haldið áfram með þetta mynstur þar til A.2 er lokið á hæðina, klippið þráðinn og festið. Heklið pífu á hitt bandið á öxl / hlýra á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul/2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð meðfram öllu hálsmálinu. KANTUR Í HANDVEGI: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul/ 2 fastalykkjur um hverja stuðlaumferð meðfram handvegi – byrjið strax eftir pífu, heklið meðfram handvegi og fram að pífu. Leggið pífukantinn kant í kant við kant í handvegi (á bæði fram- og bakstykki) og saumið niður með smáu, fallegu spori. Heklið hinn kant í handvegi á sama hátt og saumið við pífukantinn. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Amanda wrote:
There should be some kind of videos about how to make every part
03.03.2024 - 11:37