Helle Pedersen skrifaði:
Når arbejdet er delt og der skal strikkes frem og tilbage, skal der så strikkes vrang tilbage?
27.12.2024 - 15:34DROPS Design svaraði:
Hei Helle. Du strikker slik at mønstret stemmer, så da blir det vrang tilbake. mvh DROPS Design
03.01.2025 - 11:50
Helle Pedersen skrifaði:
Hvor og hvordan tages der ud på bagstykket efter at man har delt arbejdet i ryg, ærmer, forstykke?
27.12.2024 - 15:01DROPS Design svaraði:
Hei Helle. Ta en titt på video: Hvordan slås nye masker op i kanten af arbejdet. Du finner hjelpevideo til høyre eller under bildene, klikk på Videoer. mvh DROPS Design
03.01.2025 - 11:36
Verhoeven skrifaði:
Waarom brei je van boven (hals) naar onder i.p.v.van boven naar onder ?
10.11.2024 - 16:35
Pia Olsen skrifaði:
Kan i oplyse hvad dette hulmønstre kaldes og har i evt. en vidoe hvor I viser strikkemetoden. Red Mistery Strikket bluse i DROPS Cotton Light. Arbejdet strikkes oppefra og ned med raglan, hulmønster og slids i siderne. Størrelse XS - XXL.
27.09.2024 - 10:36DROPS Design svaraði:
Hei Pia. Vi har ikke et eget navn på dette hullmønstret. Ta en titt på video: Mønster: Tre varianter af samme enkle hulmønster. Videoen viser blant annet hvordan dette hullmønstret strikkes. mvh DROPS Design
07.10.2024 - 11:26
Lo skrifaði:
Hej igen! Tack så jättemycket för snabbt svar. Vad menas med mönster på vart annat varv? Ska man alltså följa samma mönster som första varvet exakt, bara att man stickar de fyra maskorna räta? I mönstret står det inget om vart annat varv.
15.08.2024 - 12:16DROPS Design svaraði:
Jo du ser i diagrammet att varannant varv är mönster (omslag ihop omslag ihop) och varannat varv är slätstickat (rät från rätsidan) :)
21.08.2024 - 09:22
Lo skrifaði:
Hej! När man är på de varven man inte ökar, utan stickar fyra maskor i slätstickning, ska man ändå innan dessa maskor sticka två maskor tillsammans och göra ett omslag?
13.08.2024 - 10:38DROPS Design svaraði:
Hej Lo, du ökar til raglan på hver side af de 4 slätstickade m på 6.varv, alle andre masker strikkes ifølge diagrammet, med mønster på hver 2.varv :)
15.08.2024 - 10:05
Petra Volkmerova skrifaði:
Dobry den, přijde mi že všechny 3 vzory A1 A2 A3 jsou stejné je to tak?
11.07.2024 - 00:43DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Petro, v principu ano, schémata znázorňují rozšiřování a polohu nahození/spletení na začátku/konci řad u jednotlivých vzorů. Hodně zdaru! Hana
13.07.2024 - 21:28
Gritta skrifaði:
Hallo, ich habe den Pulli schon gestrickt, ist super geworden. Jetzt meine Frage: kann ich ihn auch ganz auf der Rundnadel stricken? Also Vorder- und Rückenteil zusammen? Nur die Ärmel extra? Danke im voraus
02.07.2024 - 15:15DROPS Design svaraði:
Liebe Gritta, wahrscheinlich aber beachten Sie die Seitenschlitze an beiden Seiten, dh die untersten 16-20 cm werden hier nicht zusammengenäht, so sollten Sie diese letzten cm beim Vorder und Rückenteil separat stricken. Viel Spaß beim Stricken!
02.07.2024 - 16:01
Kaisa skrifaði:
Voisitteko selventää miten kohdassa ”KOKO M” lisätään silmikoita. Siinä vaiheessa on siis M-koossa 244 silmukkaa ja ohje sanoo ”Tee sitten hihojen lisäykset kuten aiemmin (työhön lisättiin 8 silmukkaa) = 252 silmukkaa.”. Miten tuo lisäys tapahtuu? Raglanlisäyksissä kun tulee 16 uutta silmukkaa.
04.01.2024 - 21:41DROPS Design svaraði:
Raglanlisäykset tehdään kuten aiemmin, mutta vain hihojen puolella. Eli etukappaleen ja takakappaleen lisäykset jätetään tekemättä.
08.01.2024 - 16:51
Henrietta skrifaði:
Hej! Jag har en till fråga. När man stickar oket och är på de varven där man inte ska öka med raglan, ska man fortfarande, innan de två maskorna innan och efter de två maskorna efter markören, sticka två maskor tillsammans och göra ett omslag (alltså A1 eller A3)? Allt gott
25.12.2023 - 19:07DROPS Design svaraði:
Hej Henrietta, ja du fortsætter mönstret precis som tidiagare :)
02.01.2024 - 10:11
Red Mistery#redmisterysweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 240-26 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LASKALÍNA: Það eru 4 lykkjur í sléttprjóni í hverri laskalínu. Prjónamerkin sitja mitt á milli þessa 4 lykkja. Aukið er út um 4 lykkjur í hverri laskalínu, þ.e.a.s. aukið er út um 2 lykkjur til hægri á undan prjónamerki og 2 lykkjur til vinstri á eftir prjónamerki. Aukið út þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkja er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, prjónið 1 lykkju slétt, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan og prjónið lykkjuna alveg eins og í fyrra skiptið, prjónið 1 lykkju slétt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið 1 lykkju slétt, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann, prjónið 1 lykkju slétt, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan og prjónið lykkjuna alveg eins og í fyrra skiptið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir framstykki, bakstykki og ermar. Hvert stykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Að lokum eru stykkið saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Það er klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-132 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Cotton Light. Prjónið 12 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert án þess að lykkjur séu prjónaðar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja þannig: Teljið 16-18-18-18-20-22 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20-20-20-22-22-22 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 34-36-38-38-40-44 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 20-20-20-22-22-22 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki. Það eru 18-18-20-20-20-22 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki). Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 alls 6-7-7-7-8-9 sinnum, A.3, aukið út fyrir LASKALÍNA á undan og á eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (4 lykkjur fleiri), A.1, prjónið A.2 alls 6-6-6-7-7-7 sinnum, A.3 (ermi), aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir prjónamerki, A.1, prjónið A.2 alls 13-14-15-15-16-18 sinnum, A.3, aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir prjónamerki, A.1, prjónið A.2 alls 6-6-6-7-7-7 sinnum, A.3, aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir prjónamerki, A.1, prjónið A.2 alls 7-7-8-8-8-9 sinnum = 124-128-132-136-140-148 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í 6. hverri umferð. Í hvert skipti sem aukið er út, þá kemur til með að myndast pláss fyrir tvær mynstureiningu fleiri með A.2 á breiddina – þ.e.a.s. gatamynstrið kemur alltaf til með að vera prjónað alveg inn að 4 lykkjum í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 7-8-8-9-9-10 sinnum á hæðina þá eru 220-240-244-264-268-292 lykkjur í umferð. Útaukning er nú lokið í stærð XS og S. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR í XS og S. Í hinum stærðunum heldur útaukning áfram þannig: STÆRÐ M: Útaukning er nú lokið á framstykki/bakstykki. Haldið áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 5 umferðir í mynstri eins og áður á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu. Nú er aukið út 1 sinni til viðbótar á sama hátt og áður, en einungis á ermum (8 lykkjur fleiri) = 252 lykkjur. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ L, XL og XXL: Útaukningu er nú lokið á ermum. Haldið áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 5 umferðir í mynstri eins og áður á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu. Nú er aukið út 1 sinni til viðbótar á sama hátt og áður, en einungis á framstykki/bakstykki (8 lykkjur fleiri) = 272-276-300 lykkjur. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 220-240-252-272-276-300 lykkjur. Haldið áfram með gatamynstur hringinn án útaukninga þar til stykkið mælist 19-20-21-22-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál – endið þegar næsta umferð sem á að prjóna er umferð með mynstri. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Haldið eftir fyrstu 32-36-36-40-42-46 lykkjum á hringprjóni 4 (hálft bakstykki), setjið næstu 44-48-52-54-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, setjið næstu 66-72-74-82-84-92 lykkjur á þráð fyrir framstykki, setjið næstu 44-48-52-54-54-58 lykkjur á þráð fyrir ermi og haldið síðustu 34-36-38-42-42-46 lykkjum á prjóni (hálft bakstykki). Bakstykkið, framstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. BAKSTYKKI: = 66-72-74-82-84-92 lykkjur. Byrjið frá réttu, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur á hringprjón 4, prjónið mynstur eins og áður yfir 66-72-74-82-84-92 lykkjur í umferð og fitjið í lokin upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 74-80-86-94-100-108 lykkjur. Haldið áfram með gatamynstur fram og til baka eins og áður með 4 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar bakstykkið mælist 26-27-28-28-28-28 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og aukið jafnframt út um 26-30-32-34-36-42 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 100-110-118-128-136-150 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur á hringprjón 4, prjónið mynstur eins og áður yfir 66-72-74-82-84-92 lykkjur af þræði á framstykki, fitjið að lokum upp 4-4-6-6-8-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 74-80-86-94-100-108 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Byrjið frá réttu, fitjið 4-4-6-6-8-8 lykkjur á hringprjón 4, prjónið mynstur eins og áður frá réttu yfir 44-48-52-54-54-58 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki, fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur í lok umferðar = 52-56-64-66-70-74 lykkjur. Haldið áfram með gatamynstur fram og til baka með 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – passið uppá að mynstrið haldi beint áfram yfir lykkjur frá berustykki. Þegar ermin mælist 38-38-38-37-36-34 cm frá skiptingu og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og aukið jafnframt út um 22-22-26-26-28-28 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 74-78-90-92-98-102 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 40-41-40-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma í ystu lykkjubogana, svo saumurinn verði flatur. Saumið hliðarsauma alveg eins – byrjið efst við handveg og saumið þar til ca 16-16-18-18-20-20 cm eru eftir neðst í hvorri hlið fyrir klauf. Saumið saman op undir báðum ermum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redmisterysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.