Marie-Armelle AQUILINA skrifaði:
Comment commencer le 1er rang sur l'endroit après avoir monté les mailles puisque on a forcément un premier rang envers après le montage des 102 mailles ?
06.04.2023 - 12:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Aquilina, dans ce modèle, le 1er rang sera tricoté en mailles envers sur l'envers pour que le 2ème rang soit le 1er rang sur l'endroit. Bon tricot!
11.04.2023 - 11:35
Sophia skrifaði:
Good afternoon.can I use cotton yarn for this pattern..?thank you
04.04.2023 - 15:13DROPS Design svaraði:
Hi Sophie, If you choose a cotton yarn from the same yarn group as Drops Air (Group C; or 2 strands of a cotton yarn from group A), you can use the pattern and stitch number as it stands. We do recommend that you work a swatch before beginning your work to test your knitting tension. You can find the yarn groups to the right and slightly below the photograph. Happy Easter!
05.04.2023 - 06:56
Christina skrifaði:
Merry Berry
21.01.2023 - 07:37
Donna skrifaði:
Ocean View
20.01.2023 - 19:27
Paulina skrifaði:
Ocean Waves
20.01.2023 - 12:41
Charlotte skrifaði:
Wavy
18.01.2023 - 09:39
Corradina skrifaði:
Vento di maggio
18.01.2023 - 07:37
Lavender Lightning#lavenderlightningsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með öldumynstri og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-21 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvort fyrri sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að byrjun á ermakúpu, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hring í hálsmáli í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 102-106-118-122-134-150 lykkjur á hringprjón 5,5 með litnum fjólublá þoka í DROPS Air. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1, 0-2-0-2-8-3 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2 alls 4-4-4-4-4-6 sinnum, 0-2-0-2-8-3 lykkjur í garðaprjóni, A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 94-98-110-114-126-138 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1, 0-2-0-2-8-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 alls 4-4-4-4-4-6 sinnum, 0-2-0-2-8-3 lykkjur sléttprjón, A.1. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATH: Í hverri umferð sem prjónuð er slétt frá röngu í A.3, eru prjónaðar sléttar lykkjur frá röngu yfir allar lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 3-3-4-4-4-4 sinnum á hæðina, byrja rendurnar. Jafnframt því sem rendurnar og mynstur er prjónað á að fækka lykkjum fyrir handveg og hálsmáli. Lestu því kaflann RENDUR, HANDVEGUR og HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. RENDUR: Skiptið yfir í litinn natur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1, 0-2-0-2-8-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 4-4-4-4-4-6 sinnum, 0-2-0-2-8-3 lykkjur sléttprjón, A.1. Haldið svona áfram með mynstur. ATH: Þegar skipt er um lit í A.4, á þetta við um frá byrjun á umferð og í hverri umferð sem er prjónuð slétt frá röngu í A.4, prjónið slétt frá röngu einnig yfir 0-2-0-2-8-3 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið. Þegar A.4 hefur verið prjónað alls 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, prjónið A.5 alveg eins yfir lykkjur í A.4 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alveg eins yfir lykkjur í A.5 með litnum fjólublá þoka þar til stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti þar sem boginn sveigist niður (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður í litnum fjólublá þoka). Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur að loka máli (= ca 2 cm sléttprjón yfir allar lykkjur). HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm mælt frá uppfitjunarkanti þar sem boginn sveigist niður, fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 90-94-102-106-114-126 lykkjur eftir. Nú heldur mynstrið áfram eins og áður með 6-8-4-6-10-5 lykkjur sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni yst í hvorri hlið (í hverri umferð sem er prjónuð slétt frá röngu í A.5 og A.3, prjónið slétt frá röngu yfir allar lykkjur í umferð). HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm mælt frá uppfitjunarkanti þar sem boginn sveigist niður, á að fella af fyrir v-hálsmáli – stillið lengdina af þannig að byrjað sé í umferð frá réttu í sléttprjóni. Fellið af miðju 32-32-32-36-36-36 lykkjur fyrir hálsmái og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 2 lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á næstu umferð frá hálsmáli 27-29-33-33-37-43 lykkjur eftir á öxl (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í 1 mynstureiningu á breidd með A.3 eru prjónaðar í sléttprjóni). ATH: Munið eftir að mynstrið endar þegar stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti þar sem boginn sveigist niður, síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm frá uppfitjunarkanti þar sem boginn sveigist niður, fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist ca 49-51-52-54-55-56 cm mælt frá uppfitjunarkanti þar sem boginn sveigist niður – stillið lengdina af þannig að byrjað sé að prjóna í umferð frá réttu í sléttprjóni. Setjið miðju 22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 27-29-33-33-37-43 lykkjur eftir á öxl (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp með 1 mynstureiningu á breiddina með A.3, eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm, prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (stillið af eftir bakstykki). Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 63-63-67-67-71-71 lykkjur á sokkaprjóna 5,5 með litnum fjólublá þoka í DROPS Air. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Prjónið 0-0-2-2-4-4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2 alls 3 sinnum (veldu mynsturteikningu með 21 lykkjum í öllum stærðum), 0-0-2-2-4-4 lykkjur í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 57-57-61-61-65-65 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: 0-0-2-2-4-4 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.3 alls 3 sinnum (veldu mynsturteikningu með 19 lykkjum í öllum stærðum), 0-0-2-2-4-4 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATH: Í hverri umferð sem prjónað er brugðið yfir lykkjur í A.3, prjónið brugðið yfir allar lykkjur í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 9-7-9-9-11-9 lykkjur jafnt yfir = 48-50-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 16 cm mælt frá uppfitjunarkanti, þar sem boginn sveigist niður, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-5-4-3½-2½-2½ cm millibili alls 6-7-8-9-10-10 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-48-45-45-42-40 cm mælt frá uppfitjunarkanti þar sem boginn sveigist niður, prjónið stykkið fram og til baka á hringprjóna frá miðju undir ermi þar til ermakúpan mælist ca 1-1-3-3-4-4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 49-49-48-48-46-44 cm frá uppfitjunarkanti þar sem boginn sveigist niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma – byrjið við handveg og saumið kant í kant í ystu lykkjubogana, en skiljið eftir ca 20 cm neðst í hvorri hlið fyrir klauf. Saumið ermakúpuna við handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu, ca 82-82-84-92-94-96 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði) á stuttan hringprjón 4,5 með litnum fjólublá þoka. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderlightningsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.