Anna skrifaði:
Ach ja. Am Schalkragen habe ich auch noch Maschen abgenommen nachdem die Verzopfung weggelassen wurde. Es hat sich bei mir sonst unschön gewellt. Meiner Schwägerin steht die Jacke hervorragend.
02.10.2024 - 11:29
Anna skrifaði:
Falls es jemanden interessiert: die Jacke ist seit ein paar Wochen fertig und gut geworden. Eine sehr schöne Farbe. Ich habe nur 64 Maschen für die Vorderteile aufgenommen und dann dementsprechend nur 13 M abgenommen. Zum Glück. Hinten hatte ich nur 108 M aber es hätten auch da weniger sein können. Bei dem vergleichbaren Pullover wurden auch nur 100M! aufgenommen. Den Armausschnitt habe ich 21cm hoch gemacht, damit der Ärmel reinpasst (und mein Arm natürlich auch ;-) So sitzt sie prima.
02.10.2024 - 11:24
Anna skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team. Ich verstehe nicht, was das mit Größe S zu tun hat. Ich habe doch immer Größe L angegeben. Haben Sie evtl. den ersten Teil nicht gelesen?
30.07.2024 - 14:00
Anna skrifaði:
Ich bin gerade auf die Anleitung des Pullovers 241-33 gestoßen. Da wird der Armausschnitt bei 35 cm begonnen. Das würde dann ja passen. Zum Glück geht es hier ja nur um eine Masche. Da kann man ein bisschen schummeln ;-) , denn das Rückenteil ist bereits fertig. Oder übersehe ich doch noch was? Könnten Sie mir nur kurz mitteilen, ob ich richtig liege, damit ich weiter komme. Eigentlich dachte ich: dicke Nadeln, einfacher Schnitt - das geht schnell.
29.07.2024 - 14:39DROPS Design svaraði:
Liebe Anna, in S werden die Armausschnitte nach 35 cm bearbeitet (genau, 1 M beidseitig abketten); dann stricken Sie bis 50 cm von der Anschlagskante und dann wird man die Schulterschrägung mit verkürzten Reihen stricken und gleichzeitig für den Halsausschnitt abketten. Die Jacke wird dann ca 54 cm von der Schulter beim Hals bis zur Anschlagskante messen. Viel Spaß beim Stricken!
30.07.2024 - 08:26
Anna skrifaði:
Außer ein paar kleineren unwichtigen Fehlern (z.B ist einmal A3 statt A5 beim linken Vorderteil angegeben: In dieser Weise weiterstricken, d.h. 1 Masche kraus rechts an der Seite, glatt rechts, A.3 und 7 Blenden-Maschen kraus rechts.), kann auch die Höhe des Armausschnitts nicht stimmen. Bei Größe L wird bei 39 cm für den Armausschnitt abgenommen und bei 56 cm die Schulterschrägung begonnen. Das sind 17 cm. Also ein Umfang von 34 cm. Das passt nicht zum Umfang des Ärmels (ca 42 cm).
29.07.2024 - 14:24
Anna skrifaði:
Hauptsache man kommt hinterher auf die 53 Maschen. (32 Maschen Schulter+ 1 Masche Armausschnitt + 20 Maschen Schalkragen.) ;-)
16.07.2024 - 17:26
Anna skrifaði:
Oh. Das ist aber unglücklich für mich, da es ein Geburtstagsgeschenk werden soll. Ich glaube, ich werde einfach mit 68 Maschen anfangen. Dann passt auch der Rest (Maschen für die Schulter etc). Hoffentlich habe ich nichts übersehen. Viel Grüße und schöne Urlaubszeit
16.07.2024 - 17:17
Anna skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team. Nach dem Bündchen der Vorderteile sind 74 Maschen (Größe L) auf der Nadel. Wenn ich 7 Blenden-Maschen + 13 Maschen Muster A3 + 49 Maschen glatt rechts + 1 Rand-Masche zusammenzähle komme ich aber nur auf 70 Maschen. Was übersehen ich? Außerdem verstehe ich nicht, warum beim linken Vorderteil sogar nur 48 Maschen glatt rechts gestrickt werden. Dann käme man ja nur auf 69 Maschen.
09.07.2024 - 15:11DROPS Design svaraði:
Antwort siehe unten! :-)
16.07.2024 - 17:13
Anna skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team, ich habe bei den Vorderteilen ein rechnerisches Problem. Nach dem Bündchen sind 74 Maschen (Größe L) auf der Nadel. Wenn ich 7 Blenden-Maschen + 13 Maschen Muster A3 + 49 Maschen glatt rechts + 1 Rand-Masche zusammenzähle komme ich aber nur auf 70 Maschen. Was übersehen ich? Außerdem verstehe ich nicht, warum beim linken Vorderteil sogar nur 48 Maschen glatt rechts gestrickt werden. Dann käme man ja nur auf 69 Maschen. Ich finde meinen Fehler nicht.
04.07.2024 - 09:23DROPS Design svaraði:
Liebe Anna, da scheint tatsächlich etwas unstimmig zu sein. Die Anleitung wird noch einmal geprüft, allerdings ist gerade Urlaubszeit, sodass das noch etwas dauern kann. Ich bitte daher noch um Geduld.
15.07.2024 - 22:19
Peach Blossom Cardigan#peachblossomcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, sléttprjóni og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 241-34 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndast göt (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 6, 14, 22 og 30 cm. S: 6, 14, 22 og 30 cm. M: 6, 14, 23 og 32 cm. L: 7, 16, 25 og 34 cm. XL: 7, 14, 21, 28 og 35 cm. XXL: 7, 14, 21, 28 og 35 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, hringinn á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 96-100-108-116-128-140 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 28-28-30-32-36-40 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 68-72-78-84-92-100 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg = 66-70-76-82-90-98 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Nú á að fækka lykkjum fyrir hálsmáli og prjóna skáhallandi öxl, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 27-29-31-33-37-40 lykkjur sléttprjón og setjið þessar lykkjur á þráð fyrir öxl, fellið af næstu 12-12-14-16-16-18 lykkjur fyrir hálsmáli = 27-29-31-33-37-40 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli = 26-28-30-32-36-39 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til 6-7-7-8-9-9 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 12-14-14-16-18-18 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 18-21-21-24-27-27 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið brugðið. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Bakstykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 7 og prjónið hina öxlina á sama hátt, en fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-64-68-72-76-80 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT er fellt af fyrir hnappatötum – lesið HNAPPAGAT að ofan. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hafa verið auknar út 2 lykkjur í A.2 = 62-66-70-74-78-82 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið mynstur þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, prjónið 41-45-49-53-57-61 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 17-19-20-21-21-21 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 45-47-50-53-57-61 lykkjur. Prjónið svona áfram með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni, A.3, sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni í hlið. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41, cm fellið af 1 lykkju í hlið fyrir handveg = 44-46-49-52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Nú er prjónuð skáhallandi öxl í byrjun á næstu umferð frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 6-7-7-8-9-9 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 12-14-14-16-18-18 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 18-21-21-24-27-27 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 18-18-19-20-20-21 lykkjur eru eftir við hálsmál og setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir sjalkraga = 26-28-30-32-36-39 lykkjur eftir á prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. SJALKRAGI: Setjið 18-18-19-20-20-21 lykkjur frá þræði á stuttan hringprjón 7. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 0-0-0-1-1-2 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram (þ.e.a.s. köðlum er ekki snúið við lengur) og prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 14-14-15-15-15-16 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir 14-14-15-15-15-16 lykkjur. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur. Endurtakið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm innst þar sem stykkið er styst – stillið e.t.v. lengdina af – sjalkraginn á að ná mitt að aftan þegar strekkt er létt á honum. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-64-68-72-76-80 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og brugðnar lykkjur út umferðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 þar til 18 lykkjur eru eftir, prjónið A.4 og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hafa verið auknar út 2 lykkjur í A.4 = 62-66-70-74-78-82 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 9 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 41-45-49-53-57-61 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 17-19-20-21-21-21 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.5 yfir lykkjur í A.4 og endið með 7 kantlykjum að framan = 45-47-50-53-57-61 lykkjur. Prjónið með 1 lykkju í garðaprjóni í hlið, sléttprjón, A.3 og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 1 lykkju í hlið fyrir handveg = 44-46-49-52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Nú er prjónuð skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá röngu þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 6-7-7-8-9-9 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 12-14-14-16-18-18 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið mynstur eins og áður þar til 18-21-21-24-27-27 lykkjur eru eftir, snúið. UMFERÐ 6 (rétta): Prjónið mynstur eins og áður þar til 18-18-19-20-20-21 lykkjur eru eftir við hálsmál og setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir sjalkraga = 26-28-30-32-36-39 lykkjur eftir á prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með brugðnum lykkjum frá röngu. SJALKRAGI: Setjið 18-18-19-20-20-21 lykkjur frá þræði á stuttan hringprjón 7. Prjónið með byrjun frá réttu þannig: 0-0-0-1-1-2 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram (þ.e.a.s. köðlum er ekki snúið við lengur) og prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 14-14-15-15-15-16 lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir 14-14-15-15-15-16 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur. Endurtakið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 7-8-8-9-9-9 cm innst þar sem stykkið er styst – stillið lengdina eftir sjalkraga á hægra framstykki. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 21-20-22-21-24-22 lykkjur jafnt yfir = 35-36-38-39-40-42 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón eða sokkaprjóna 7 og setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 14-13-13-12-11-13 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5½-4½-4½-4-3½-3 cm millibili alls 6-7-7-8-9-9 sinnum = 47-50-52-55-58-60 lykkjur. Fellið af þegar ermin mælist 44-44-44-43-41-39 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við 1 lykkju meðfram kanti. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður að stroffi svo það myndist klauf í hvorri hlið. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peachblossomcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.