Katleen skrifaði:
Goedemiddag, ik begrijp niet goed wat dat wil zeggen (Elke keer dat A.1 en A.3 klaar zijn in de hoogte, breit u nog 2 herhalingen van A.2 in de breedte. ) moet ik dan over gans de breedte het tel patroon van A.2 volgen ? alvast bedankt mvg Katleen
15.03.2023 - 14:42DROPS Design svaraði:
Dag Katleen,
Als je het telpatroon in de hoogte hebt gebreid, zijn er een aantal steken bij gekomen, waardoor je nog een herhaling van A.2 van 6 steken in de breedte kunt breien.
16.03.2023 - 20:39
Janneke skrifaði:
Goedemorgen, Kunt u mij misschien het telpatroon A2 en A3 uitleggen? Het dakje (1 afh, 2 r samen etc) valt buiten het aantal steken. Hoe werkt dat precies? Alvast dank!
11.03.2023 - 10:28DROPS Design svaraði:
Dag Janneke,
Op de plek waar het 'dakje' uitsteekt bij A.2, leent A.2 een steek van A.1, je ziet daar bij A.1 ook een inham.
12.03.2023 - 11:50
Wendy Van Der Flier skrifaði:
Hoi. Jullie hebben dit seizoen veel nieuwe brei patronen, helaas kan ik alleen maar haken. Dit is een geweldige trui, kan hier ook een haakpatroon van gemaakt worden?
09.03.2023 - 17:49DROPS Design svaraði:
Dag Wendy,
Dankjewel! Helaas kunnen we geen patronen aanpassen naar persoonlijke wensen. Wellicht kun je een ander haakpatroon vinden dat je leuk vindt. Vlak boven de filter opties kun je filteren op haken of breien.
09.03.2023 - 20:30
Gwenael skrifaði:
Bonjour, Pour ce modèle et le cardigan associé, que voulez-vous dire, concernant la manche, par le fait de tricoter en jersey les mailles qui ne peuvent être tricotées en point fantaisie A2? Merci.
05.03.2023 - 12:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Gwenael, quand on tricote les manches en rond après la division, le nombre de mailles ne va pas tomber juste pour permettre de tricoter A.2 tout le tour. Tricotez A.2 sur autant de mailles que possible en début de tour et en fin de tour et tricotez simplement les mailles restantes au milieu sous la manche en jersey (à l'endroit tous les tours, sans le point ajouré). Bon tricot!
06.03.2023 - 09:51
Henriette Bildt Pedersen skrifaði:
Virkelig en smuk bluse
22.01.2023 - 16:34
Melanie skrifaði:
Saint-Tropez
21.01.2023 - 11:40
Jenny Peters skrifaði:
Cloudberry
19.01.2023 - 21:05
Elke skrifaði:
Free and Cozy
18.01.2023 - 08:48
Blandine skrifaði:
Douceur de sable
18.01.2023 - 08:45
Adelene skrifaði:
Boho Chic
18.01.2023 - 01:20
Morgenbris Sweater#morgenbrissweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-12 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjóni (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (8 lykkjur fleiri). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á framstykki og á bakstykki og inn í mynstur á ermum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður og aukið er út fyrir laskalínu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 100-104-108-112-116-120 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur í 3 cm, í síðustu umferð í stroffi er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 98-102-106-110-114-118 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, stykkið er nú mælt héðan. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Teljið 15-16-17-18-19-20 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 19 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki, teljið 30-32-34-36-38-40 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki, teljið 19 lykkjur (ermi), setið 1 prjónamerki, það eru 15-16-17-18-19-20 lykkjur á prjóni á eftir síðasta prjónamerki (hálft bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón yfir lykkjur á framstykki og á bakstykki og 1 lykkju slétt, A.1, A.2, A.3, 1 lykkja slétt yfir lykkjur á hvorri ermi, jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Í hvert skipti sem A.1 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 mynstureiningar fleiri af A.2 á breiddina. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-23-25-28-31-33 sinnum = 274-286-306-334-362-382 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er prjónað áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 23-24-25-28-31-33 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-40-43-47-51-54 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 61-63-67-73-79-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-14-16-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-80-86-94-102-108 lykkjur (framstykki), setjið næstu 61-63-67-73-79-83 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-14-16-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-40-43-47-51-54 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-196-216-236-256 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 16-17-18-17-16-16 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-40-48-52-52-56 lykkjur jafnt yfir = 212-224-244-268-288-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 61-63-67-73-79-83 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 71-75-79-87-95-103 lykkjur. Haldið áfram með A.2 eins og áður, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 31-31-30-27-25-23 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morgenbrissweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.