Ina Van Velzen skrifaði:
Goedemiddag ,als ik drops 237-9 wil gaan breien op de magic loop manier brei je dan ook de voor en achterpand apart .? Blijft de totale uitleg van het patroon hetzelfde?. Evenveel steken opzetten? U begrijpt wel dat ik er moeite mee heb. Graag enig uitleg over bovenstaande. Met vriendelijke groet, ina.
22.09.2022 - 16:33DROPS Design svaraði:
Dag Ina,
De magic loop is een truucje wat je kunt gebruiken wanneer je rondbreinaald net iets te lang is voor de steken die je op de naald hebt. Er verandert verder niets aan het patroon.
24.09.2022 - 12:28
Sandra Ring skrifaði:
Vielen Dank für diese schöne Anleitung! Leider sieht man auf den Fotos den Rippenbund nicht. Ich will es dennoch wagen und probiere erst mit anderer Wolle. Habe nur ein Problem mit den Diagrammen, da stehen keine Zahlen vor den Reihen und ich weiß nicht ob ich zb bei A1 10 oder 20 Reihen Bund stricke oder bei A3, ob ich 5 oder 10 Reihen bis zum nächsten Kreuzen stricke. Sind auf den Diagrammen nur die Hinreihen abgebildet? LG
18.09.2022 - 19:07DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ring, alle Reihen sind in den Diagrammen gezeichnet, dh 1 Kästchen = 1 Masche x 1 Reihe, so ist A.1 10 Reihen, A.2 8 Reihen, usw. Viel Spaß beim stricken!
19.09.2022 - 10:48
Diana skrifaði:
Funktioniert es auch, wenn man an der Schulter normal abkettet ohne I-Cord-Rand?
07.09.2022 - 12:17DROPS Design svaraði:
Liebe Diana, wahrscheinlich, der I-Cord-Rand macht eine schöne Fertigstellung bei den Schultern - dieses Video zeigt, wie er gestrickt wird, es kann Ihnen sicher weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
07.09.2022 - 13:19
Timea skrifaði:
Maple hug
05.08.2022 - 15:49
Kim Miller skrifaði:
Cable me a honeycomb
04.08.2022 - 22:50
Helen Balshen skrifaði:
Iced coffee
04.08.2022 - 22:11
Eva skrifaði:
Maple waffle
04.08.2022 - 14:48
Cracked Walnuts Short Sleeve#crackedwalnutsshortsleeve |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Kid-Silk og DROPS Puna / DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, garðaprjóni, köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 237-9 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PRJÓNAÐ SAMAN: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu er prjónað brugðið og þegar prjónað er frá réttu er prjónað slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka hvort fyrir sig. Að lokum er prjónaður upp tvöfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-110-110-122-134-146 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 114-128-128-142-156-170 lykkjur eftir í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.3 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.3 á hæðina þar til stykkið mælist 16-17-19-19-21-22 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.4 þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 27-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 87-92-92-102-112-122 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.5 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. A.5 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 99-104-104-114-124-134 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni að réttu máli. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 33-35-36-38-39-41 cm. Prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.6 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 150-158-158-174-190-206 lykkjur í umferð. Prjónið mynstur þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7 þar til 7 lykkjur eru eftir, 7 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.7 alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 45-47-48-50-51-53 cm. Prjónið mynstur þannig: 7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.8 þar til 7 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 51-54-54-60-66-72 lykkjur jafnt yfir, 7 lykkjur í garðaprjóni = 99-104-104-114-124-134 lykkjur. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.8a á hæðina að loka máli. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 27-30-30-32-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (36-37-37-41-46-50 lykkjur) er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja í byrjun á umferð = 35-36-36-40-45-49 lykkjur. Í næstu umferð við hálsmál eru felldar af fyrstu 7 lykkjur = 28-29-29-33-38-42 lykkjur. Prjónið síðan skáhallandi öxl með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: * Prjónið mynstur eins og áður þar til 7-7-7-8-9-10 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Þ.e.a.s. prjónað er yfir 7-7-7-8-9-10 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli. Í næstu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 30-31-31-35-40-44 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur. Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkju SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman við fyrstu / næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóni sem eru með þráðinn að röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn herðist ekki of mikið *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp. Fellið af 2 lykkjur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm = 99-104-104-114-124-134 lykkjur. Nú eru miðju 15-18-18-20-20-22 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl (42-43-43-47-52-56 lykkjur) er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur alls 2 sinnum og 1 lykkju alls 3 sinnum = 35-36-36-40-45-49 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan hvora öxl áfram eins og á bakstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við 1 lykkju í kanti og saumið í lykkjur í garðaprjóni að hvorri annarri. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 76 til 104 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) frá réttu, á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir allar lykkjur. Þegar kantur í hálsmáli mælist 14 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með hringprjón 5,5 (þetta er gert til að affellingarkanturinn dragist ekki saman). Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crackedwalnutsshortsleeve eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.