DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1430.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1430.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= ermin er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Cornflower Blues |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 3 þráðum DROSP Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, í sléttprjóni með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-10 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. V-HÁLSMÁL: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan A.2 þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Stykkin eru saumuð saman. Að lokum er prjónuð i-cord affelling aftan í hnakka á bakstykki. BAKSTYKKI: Fitjið upp 72-80-84-92-104-112 lykkjur á hringprjón 5,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-10-10-10-14-16 lykkjur jafnt yfir = 64-70-74-82-90-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 58-62-66-72-78-82 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, setjið miðju 24-24-24-26-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 16-18-20-22-25-27 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 72-80-84-92-104-112 lykkjur á hringprjón 5,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-10-10-10-14-16 lykkjur jafnt yfir = 64-70-74-82-90-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 3-4-4-5-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 58-62-66-72-78-82 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, prjónið A.1 yfir miðju 8 lykkjur í umferð. Þegar 2. umferð í mynsturteikningu hefur verið prjónuð til loka, skiptist stykkið mitt að framan fyrir hægra og vinstra framstykki og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 29-31-33-36-39-41 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir að hálsmáli, fækkið um 1 lykkju fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2 yfir síðustu 4 lykkjur. Prjónið sléttprjón, haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 7-7-6-7-7-6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 3-3-4-4-4-5 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 19-21-23-25-28-30 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, setjið ystu 3 lykkjur við hálsmál á þráð og þær 16-18-20-22-25-27 lykkjur sem eru eftir, eru felldar af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 29-31-33-36-39-41 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: A.3 yfir fyrstu 4 lykkjur, fækkið um 1 lykkju fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón út umferðina. Prjónið sléttprjón, haldið áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 7-7-6-7-7-6 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 3-3-4-4-4-5 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 19-21-23-25-28-30 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, setjið ystu 3 lykkjur við hálsmál á þráð og þær 16-18-20-22-25-27 lykkjur sem eru eftir eru felldar af. ERMI: Fitjið upp 42-46-46-50-50-54 lykkjur á hringprjón 5,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 0-3-3-5-3-6 lykkjur jafnt yfir = 42-43-43-45-47-48 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 26-21-21-21-18-18 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-2-2-2-1½ cm millibili alls 6-7-9-9-10-11 sinnum = 54-57-61-63-67-70 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-46-46-45-43-43 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við affellingarkantinn á ermum og 1 kantlykkja á fram- og bakstykki – sjá teikningu. Saumið sauminn undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma – saumið innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 32 til 34 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á milli axlasauma aftan í hálsmáli með hringprjón 5,5 og 3 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Melody. Klippið þráðinn. Prjónið nú i-cord kant þannig: Setjið 3 lykkjur af þræði frá hægra framstykki á hringprjón 5,5. Prjónið i-cord frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu lykkju snúna slétt saman með fyrstu/næstu lykkju í kanti sem prjónað er upp á bakstykki. Færið til baka 3 lykkjur af hægri prjóni yfir á vinstri prjón (í þeirri röð sem þær eru). Haldið áfram meðfram öllum kanti í hálsmáli á bakstykki þar til ekki eru fleiri lykkjur til að prjóna í. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Saumið síðustu 3 lykkjur saman með 3 lykkjum af þræði á vinstra framstykki með lykkjuspori. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11518 mynstur - 7032 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (34)
Inger skrifaði:
Where can I bye your yarn in usa
21.07.2024 - 01:38DROPS Design svaraði:
Dear Inger, you can see a list of shops that sell or ship to the USA here: https://www.garnstudio.com/findastore.php?id=17&cid=19. Happy knitting!
21.07.2024 - 22:49Mariluz skrifaði:
Mi pregunta es si este patron se puede tejer en circular sin costuras, un saludo.
08.07.2024 - 09:27Mariluz skrifaði:
Se puede hacer el patrón sin costuras de los lados, gracias
04.07.2024 - 23:36DROPS Design svaraði:
Hola Mariluz, este patrón no se puede hacer sin costuras, debido al tipo de manga usada. La manga pegada requiere el uso de costuras. Se puede trabajar sin costuras hasta la sisa, pero la parte superior requerirá costuras (para las mangas y los hombros).
07.07.2024 - 22:46Cornelia skrifaði:
Ist das Muster kraus rechts oder glatt rechts? Auf dem Foto sieht es nach glatt rechts aus?
17.06.2024 - 23:41DROPS Design svaraði:
Liebe Cornelia, der Pullover wird glatt rechts gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
18.06.2024 - 07:52Chantal LAGOUTTE skrifaði:
Bonjour, Je souhaiterai tricoter ce modèle avec un fil glitter associé au Kid Silk mais je ne sais pas la quantité de fil glitter qu'il me faudrait. Quelqu'un pourrait -il m'aider ? Je souhaiterai le tricoter en vert perroquet mais le glitter or ou argent ? Merci à toutes pour vos conseils. Bien à vous et bonne journée Une passionnée de tricot !
17.06.2024 - 12:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lagoutte, calculez d'abord le métrage nécessaire pour votre taille dans la laine principale (Kid-Silk ou Melody) et divisez cette quantité par le métrage d'une bobine de Glitter pour avoir le nombre de bobines nécessaires avec 1 fil Glitter. Votre magasin saura vous conseiller si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
17.06.2024 - 15:13Hilde skrifaði:
Bonjour, je dois rallonger les manches de 7-8cm, quel est votre conseil?
08.03.2024 - 13:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Hilde, vous pouvez les répartir au choix sur toute la longueur de la manche (espace entre les augmentations inclus) ou bien les ajouter à la fin de la manche, quand toutes les augmentations sont faites. Bon tricot!
08.03.2024 - 13:43Trish skrifaði:
Hello, I am wondering if you would recommend blocking each piece, front,back, and sleeves individually before sewing together or is it better to join it all and then block it when completed? Thank you for your help! Trish
24.07.2023 - 15:48DROPS Design svaraði:
Hi Trish, join it all and then block it when completed. Happy knitting!
24.07.2023 - 16:21Maria skrifaði:
Posso fare questo modello con filato Air? Il risultato è lo stesso? Quanti gomitoli Air per una taglia s ? Grazie
23.07.2023 - 20:42DROPS Design svaraði:
Buonasera Maria, questo modello può essere realizzato utilizzando 3 capi di un filato appartenente al nostro gruppo di filati A oppure con 1 capo di un filato che appartiene al gruppo D, in questo caso Melody. Air appartiene al gruppo C, con una tensione diversa. Buon lavoro!
24.07.2023 - 19:20Stéphanie Kaufmann skrifaði:
Re bonjour et merci pour votre réponse, mais ce détail là je l'avais compris. Ma question est : nous avons 20 mailles sur chaque épaule. Nous allons assembler les épaules mais mettre 3 mailles en attente sur celles de devant. Nous assemblons donc 17 mailles. Question : que fait-on des 3 mailles en trop sur les épaules côté dos ? Encore merci pour tout.
28.04.2023 - 09:06Stéphanie Kaufmann skrifaði:
Bonjour, Je ne comprend pas l'encolure. On doit rabattre la totalité des mailles des épaules côté dos et en garder 3 en attente côté devant. Celles-ci serviront à faire l'encolure. Que fait-on des 3 mailles rabattues en plus au dos de chaque côté ? Elles n'entre pas dans la fabrication de l'encolure. De plus on doit relever entre 32 et 34 mailles. Il y en a 24 au dos et 3 en attente de chaque côté =30. On rajoute seulement 4 mailles de plus. Merci pour votre rapide réponse.
26.04.2023 - 18:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Kaufmann, cette vidéo montre comment rabattre les mailles avec cette technique (en bas d'un pull); dans notre cas ici, vous allez d'abord relever les mailles le long de l'encolure dos (32 -34 m), puis coupez le fil, reprenez les 3 mailles conservées à la fin du devant droit et tricotez la bordure i-cord en rabattant les mailles comme dans la vidéo (où on a 4 m, mais la technique est la même), quand vos 32-34 m ont été tricotées et rabattues en I-cord, assemblez les 3 m restantes aux 3 mailles de l'épaule gauche du devant. Bon tricot!
27.04.2023 - 08:38