Emmalee skrifaði:
How much yardage in Big Merino needed to knit grace field top in small size?
01.10.2024 - 19:25DROPS Design svaraði:
Dear Emmalee, you will find the total yarn required under header, read more about Big Merino here and use yarn converter to get all alternatives as well as new required amount. Happy knitting!
02.10.2024 - 08:21
Emmalee skrifaði:
How much yardage of Alaska or other yarn in this group will I need to knit the grace field top in Small size?
01.10.2024 - 19:22
Alva skrifaði:
Jag förstår inte vad det innebär: Sticka 1 varv rätt och minska samtidigt 46 maskor jämnt fördelat = 136 maskor. Sätt 1 markör i början av varvet och 1 markör efter 68 maskor (i sidorna på fram- och bakstycket). Hur många maskor ska jag minska varje varv?
31.07.2023 - 13:55DROPS Design svaraði:
Hej Alva, det är på samma varv du minskar 46 maskor, du har 182-46= 136
07.08.2023 - 11:42
Nicole Vandenberghe skrifaði:
Málaga summer
15.01.2022 - 13:16
Grace Field Top#gracefieldtop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-39 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um handveg): Fækkið lykkjum fyrir handveg innan við 4-4-6-6-8-8 lykkjur í stroffprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 4-4-6-6-8-8 LYKKJUR Í STROFFPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 4-4-6-6-8-8 LYKKJUR Í STROFFPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru á undan 4-4-6-6-8-8 lykkjum, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4-4-6-6-8-8 lykkjur stroffprjón. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig, neðan frá og upp þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið eru prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: Fitjið upp 91-99-107-121-135-149 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur – ATH: Fyrsta og síðasta lykkjan í umferð er prjónuð slétt frá réttu og brugðið frá röngu. Prjónið þar til stroffið mælist 6 cm, endið eftir umferð frá röngu og geymið stykkið og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki. Nú eru stykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið framstykkið og bakstykkið á sama hringprjón 5 = 182-198-214-242-270-298 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um 46-50-54-62-70-78 lykkjur jafnt yfir = 136-148-160-180-200-220 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 68-74-80-90-100-110 lykkjur (í hlið á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, prjónamerkin eru notuð þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 18-18-19-19-20-20 cm = 144-156-168-188-208-228 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-33 cm, prjónið stroffprjón í hvorri hlið þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 9-11-13-15-19-21 lykkjur, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 8-10-12-14-18-20 lykkjur á undan næsta prjónamerki, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 17-21-25-29-37-41 lykkjur, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 8-10-12-14-18-20 lykkjur í umferð, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir síðustu 8-10-12-14-18-20 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og stroffprjóni. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-35 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 4-6-6-8-10-12 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 9-13-13-17-21-25 lykkjur fyrir handveg, prjónið 63-65-71-77-83-89 lykkjur eins og áður og setjið þessar lykkjur á þráð eða hjálparprjón, fellið af 9-13-13-17-21-25 lykkjur fyrir handveg og prjónið 63-65-71-77-83-89 lykkjur eins og áður. Bakstykkið og framstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 63-65-71-77-83-89 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4-4-6-6-8-8 lykkjur stroffprjón í hvorri hlið – ATH: Fyrsta og síðasta lykkjan í umferð er prjónuð slétt frá réttu og brugðið frá röngu. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 6-7-9-10-12-16 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 3-3-2-2-1-0 sinnum = 45-45-49-53-57-57 lykkjur. Prjónið 4-4-6-6-8-8 lykkjur í stroffprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir miðju 37-37-37-41-41-41 lykkjur = 53-53-57-61-65-65 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) yfir allar lykkjur – munið eftir að ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð brugðið frá röngu og slétt frá réttu. Þegar stroffið mælist 3 cm (stykkið mælist ca 42-44-45-47-48-50 cm), fellið af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið stroffprjón eins og áður yfir fyrstu 9-9-11-11-13-13 lykkjur og setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir axlabandi, fellið af næstu 35-35-35-39-39-39 lykkjur, prjónið stroffprjón eins og áður yfir síðustu 9-9-11-11-13-13 lykkjur fyrir axlabandi. Prjónið hlýra eins og útskýrt er að neðan. HLÝRI: Haldið eftir 9-9-11-11-13-13 lykkjum á hringprjón 4 og prjónið stroffprjón fram og til baka þar til hlýrinn mælist 6-6-7-7-8-8 cm. Fellið af. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm. Prjónið hinn hlýrann á sama hátt. FRAMSTYKKI: Setjið til baka 63-65-71-77-83-89 lykkjur af þræði/hjálparprjóni á hringprjón 5. Prjónið framstykkið og hlýra á sama hátt og á bakstykki. FRÁGANGUR: Saumið hlýra innan við affellingarkantinn. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gracefieldtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.