DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Outdoor Love

Prjónaður toppur úr 2 þráðum DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð XS - XXL.

DROPS 230-43
DROPS Design: Mynstur e-339
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tillheyrir garnflokki A)
100-150-150-150-150-150 g litur 18, natur
100-150-150-150-150-150 g litur 65, pistasía

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur í byrjun á umferð þannig:
Lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur í lok umferðar þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp.
Stykkin eru saumuð saman á öxlum og í hlið. Prjónaður er kantur á ermum og kantur í kringum hálsmál í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 84-92-100-108-116-132 lykkjur á hringprjóna 4 með 1 þræði í hvorum lit með DROPS Safran (2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru efir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 5 cm og næsta umferð er frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 14-16-16-18-18-22 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur) = 70-76-84-90-98-110 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-24-25-26-26 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 66-72-76-82-86-98 lykkjur.

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir handveg, en áður en öll útaukning hefur verið gerð til loka er lykkjum einnig fækkað fyrir hálsmáli. Sjá ÚRTAKA!
Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu alls 12-13-13-15-15-19 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-36-37-39-40-42 cm og næsta umferð er frá réttu eru felldar af miðju 18-20-20-20-20-22 lykkjur fyrir hálsmáli. Axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig – setjið fyrstu lykkjur á þráð (hægri öxl).
Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til fækkað hefur verið alls 5-5-6-6-7-7 sinnum fyrir hálsmáli – munið eftir ÚRTAKA. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og hálsmáli eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HÆGRI ÖXL (bakstykki):
Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 5, byrjið frá röngu og haldið áfram með úrtöku fyrir handveg og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til fækkað hefur verið alls 5-5-6-6-7-7 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir handveg og hálsmáli hefur verið gerð eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 21-23-24-25-26-26 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er frá réttu.
Fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 66-72-76-82-86-98 lykkjur.

LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir handveg, en áður en öll útaukning hefur verið gerð til loka er lykkjum einnig fækkað fyrir hálsmáli. Sjá ÚRTAKA!
Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu alls 12-13-13-15-15-19 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-29-30-32-33-35 cm og næsta umferð er frá réttu eru felldar af miðju 10-12-14-14-16-18 lykkjur fyrir hálsmáli. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig – setjið fyrstu lykkjur á þráð (vinstri öxl).
Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til fækkað hefur verið alls 9 sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og hálsmáli eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRI ÖXL (framstykki):
Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 5, byrjið frá röngu og haldið áfram með úrtöku fyrir handveg og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu þar til fækkað hefur verið alls 9 sinnum fyrir hálsmáli. Þegar öll úrtaka fyrir handveg og hálsmáli hefur verið gerð eru 7-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma og skiljið eftir 5 cm klauf neðst.

KANTUR ERMI:
Byrjið við hliðarsaum og frá réttu, notið hringprjón 4 og prjónið upp ca 76-84-92-96-104-116 lykkjur í kringum allan handveginn – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt – 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

KANTUR HÁLSMÁL:
Byrjið við axlasauminn og frá réttu, notið hringprjón 4 og prjónið upp 92-100-104-108-112-116 lykkjur í kringum allan kant í hálsmáli – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Outdoor Love

Giada Simonetti, United Kingdom

Outdoor Love

Anita Fjærestrand, Norway

Outdoor Love

Elyse Knox, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Lena wrote:

Hallo zusammen, Ich habe dieses Top gestrickt und mich exakt an die Angaben gehalten. Leider passen die Maße vorne und hinten nicht. Das Top ist viel zu kurz und die Armausschnitte viel zu eng!! Meine Maschenprobe ist korrekt und das Strickstpck passt mit den Maßen von dem Diagramm exakt zusammen. Also aufpassen beim Sticken, man muss hier etwas phantasievoll variieren. Ansonsten super Wolle und schönes Muster, aber den Pullover habe ich jetzt einer Fünfjährigen mitgebracht ;-)

04.10.2023 - 20:19

country flag Anne Dachelet wrote:

Bonjour, je viens de lire qu'une d\'une dame trouve le top trop court. Sur les explications il est indiqué : Tricoter jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 21-23-24-25-26-26 cm depuis le rang de montage ... ensuite : Rabattre pour les emmanchures 2-2-4-4-6-6 mailles au début des 2 rangs suivants = 66-72-76-82-86-98 mailles. Est ce qu'il n'y a pas une erreur sur le nombre de cm pour commencer les emmanchures ? Cela me semble bien tôt pour rabattre. Merci d'avance.

07.08.2023 - 23:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dachelet, il n'y a pas d'erreurs dans les mesures indiquées dans les explications, vérifiez les mesures finales d'après le schéma en vous basant sur un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme pour pouvoir adapter, si besoin, les différentes mesures. Bon tricot!

08.08.2023 - 09:31

country flag Amanda wrote:

Hej! När man minskar till ärmhål (och hals), ska första maskan på varven vara rätstickning? Dvs, ska första och sista maskan stickas räta när man stickar från avigsidan?

09.07.2023 - 08:41

DROPS Design answered:

Hei Amanda I denne oppskriften er det kun sidesømmene som har kantmaske i rille (rett på hver rad). Disse sidesømmene skal senere sys sammen. På erm og halskanten, der skal det plukkes opp masker for videre å strikke en vrangbord er det ingen kantmaske. mvh DROPS Design

24.07.2023 - 11:59

country flag Mairy wrote:

Assez déçue de ce modelé, je me retrouve avec un crop top et pourtant j’ai suivi à la lettre. Je fais même souvent un peu plus long, mais on parle de 5 à 10cm manquant et malheureusement je n’ai plus 16ans!

27.06.2023 - 15:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mairy, désolée que ce modèle n'ait pas répondu à vos attentes, aviez-vous pensé à bien vérifier les mesures du schéma? En fonction de la taille, il doit mesurer de 41 à 51 cm de hauteur totale. Bon tricot!

27.06.2023 - 15:41

country flag Cha wrote:

Hi. Does the decreasing for the neck comes before or after the bind off of the neck? “Continue to decrease for the armhole and decrease 1 stitch for the neck on each row from the right side 5-5-6-6-7-7 times” I have decreased 13x for the armholes but hasn’t reached 36cm yet so I’m wondering how can I proceed. Thanks.

31.05.2023 - 23:02

country flag Cha wrote:

Hi. Does the decreasing for the neck comes before or after the bind off of the neck? “Continue to decrease for the armhole and decrease 1 stitch for the neck on each row from the right side 5-5-6-6-7-7 times” I have decreased 13x for the armholes (as per decrease tip) but hasn’t reached 36cm yet so I’m wondering how can I proceed. Thanks.

31.05.2023 - 22:59

DROPS Design answered:

Dear Cha, neck will be shaped when piece measures 36 cm from cast on edge, if you have finished to decrease for armhole, just continue working until piece measures 36 cm, then start cast off stitches for neck. Happy knitting!

01.06.2023 - 09:12

country flag Patricia wrote:

Hola, en la explicación, al comienzo dice: hasta que resten 4 puntos, tejer 2 derechos y 1 punto de orillo en punto musgo. Me queda 1 punto y no se que hacer con el. Me ayudan?

15.11.2022 - 00:55

DROPS Design answered:

Hola Patricia, parece que hay una errata, debería ser hasta que queden 3 puntos, no 4.

20.11.2022 - 22:57

country flag Sylvie Audet wrote:

Est ce que on peux faire ce model sans couture

18.06.2022 - 02:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Audet, vous pouvez fort probablement adapter les explications, mais notez bien qu'il y a ici 5 cm de fente de chaque côté du bas du top; et qu'il faudra coudre les épaules à la fin, avant de tricoter le col/la bordure des emmanchures; Bon tricot!

20.06.2022 - 08:23

country flag Sophy L wrote:

Sunshine On My Shoulders!

18.01.2022 - 23:19

country flag Eva Carlsson wrote:

Perfect for a hot summer

16.01.2022 - 09:12