François I skrifaði:
Bonjour La longueur des manches 19 cm a partie de sous les bras ? Béatrice
29.04.2025 - 13:38DROPS Design svaraði:
Bonjour François l, les 19 cm en taille L pour diminuer à intervalles réguliers sont à mesurer à partir du rang de montage, autrement dit à partir du tout 1er rang tricoté pour la manche. Vous tricotez ensuite jusqu'à ce qu'elle mesure 27 cm et diminuez de nouveau à intervalles réguliers, puis vous tricotez en côtes 1 m torse à l'endroit/1 m envers pendant 3 cm avec les aiguilles 2,5. Bon tricot!
29.04.2025 - 13:46
Sofia Ch skrifaði:
Ska det inte vara ett till omslag och 2 r tillsammans i A3? Där den nedre är i A2?
11.08.2024 - 06:44DROPS Design svaraði:
Hej Sofia, nej, for så får du ikke samme afstand imellem hullerne :)
15.08.2024 - 08:47
Alex skrifaði:
When decreasing for the armholes in the back piece it says to cast off at the beginning of every row on reach side. Does this mean I should count one repeat as casting off 3 at the start of the right side and casting off 3 at the start of the wrong side? Or should I cast off the first three and the last three stitches on each row. I am not sure how to hit the stitch count if I only cast off at the start of each row. Thank you!
03.06.2024 - 10:22DROPS Design svaraði:
Dear Alex, yes that's right, if you have to cast of 3 sts at the beg of each row on each side 1 time, you will cast off 3 sts at the beg of next 2 rows = 3 sts on each side, from both right and wrong side so that armholes are symmetrical. Happy knitting!
03.06.2024 - 12:49
Kelly skrifaði:
Bij lijf maat S staat er : Brei dan als volgt: * 0 steken in tricotsteek, brei A.2 17 keer, A.3, 0 steken in tricotsteek, markeerdraad *, brei van *-* een keer. Maar met 17 keer A.2 (6steken) kom ik toch niet aan 105 steken, maar aan 102 steken. Zie ik iets over het hoofd?
19.07.2023 - 13:57
ANGELIKI PAPANIKOLAOU skrifaði:
Although you have in the patterns the sizes, how can I find which size to choose?
02.06.2023 - 08:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Papanikolaou, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the one in the chart, this might help you finding the best matching size. Read more here. Happy knitting!
02.06.2023 - 08:21
Brigittte Diderich skrifaði:
Bij het meerderen van de mouw kom ik niet uit met het meerderen en de hoeveelheid steken. Bij maat xl start ik met 58 steken na de eerste meerdering en zou ik moeten eindigen met totaal 124 steken maar ik kom maar tot 104 steken zoals staat beschreven in patroon. Waar kan ik het beste dan de 20 extra steken meerderen?
26.12.2022 - 13:58DROPS Design svaraði:
Dag Brigitte,
Je zet 1 keer 3 steken op, 5 keer 2 steken, 7 keer 1 steek, 5 keer 2 steken en 1 keer 3 steken. Dit zijn in totaal 33 steken. Dit doe je aan beide kanten, dus komen er 66 steken bij. Hierdoor kom je op 124 steken.
27.12.2022 - 21:02
Sonja skrifaði:
Sehr hübsch. waiting for spring wäre ein schöner Name. 3/4 Ärmel und Lochmuster sind passend für den Übergang
08.02.2022 - 19:27
Jildou skrifaði:
Gypsophila
15.01.2022 - 22:01
Charm Valley Top#charmvalleytop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum / t-shirt úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-32 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli. Ermákúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 264-285-312-342-375-411 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn yfir allar lykkjur í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 54-55-62-68-73-81 lykkjur jafnt yfir = 210-230-250-274-302-330 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 105-115-125-137-151-165 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan þannig: * 0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 alls 17-18-20-22-24-27 sinnum, A.3, 0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónamerki *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. Haldið áfram með þetta mynstur hringinn yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, Fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Bakstykkið og framstykkið er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 99-109-119-131-145-159 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka og fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 4-6-6-9-10-11 sinnum = 83-85-89-91-93-95 lykkjur – ATH: gatamynstur sem kemur alveg inn við handveg er skipt út fyrir sléttprjón). Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm. Fellið nú af miðju 33-35-37-39-41-43 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (stillið af að fellt sé af þegar prjónuð hefur verið að minnsta kosti ein umferð sléttprjón eftir gataumferð). Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni = 22-22-23-23-23-23 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 99-109-119-131-145-159 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka og fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-3-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 4-6-6-9-10-11 sinnum = 83-85-89-91-93-95 lykkjur – ATH: gatamynstur sem kemur alveg inn við handveg er skipt út fyrir sléttprjón). Þegar stykkið mælist 37-38-40-41-43-44 cm, setjið miðju 13-15-17-19-21-23 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (stillið af að prjónuð hefur verið að minnsta kosti ein umferð sléttprjón eftir gataumferð áður en lykkjur eru settar á þráð). Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 22-22-23-23-23-23 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur sléttprjón, prjónið 1 lykkju slétt bæði framan í og aftan í hverja af næstu 18-20-22-24-26-28 lykkjum (= 18-20-22-24-26-28 lykkjur fleiri), prjónið 5 lykkjur sléttprjón = 46-50-54-58-62-66 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4-4-4-5-5-4 sinnum, 1 lykkja 4-5-8-7-11-16 sinnum, 2 lykkjur 4-5-4-5-4-4 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 98-108-114-124-132-142 lykkjur. Setjið stykkið saman, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn á stuttan hringprjón 3. Þegar ermin mælist 18-18-19-20-22-24 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir = 80-88-92-100-106-114 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 26-27-27-27-28-28 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð er fækkað um 8-13-14-19-22-24 lykkjur jafnt yfir = 72-75-78-81-84-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Í lykkjuna fyrir neðan snúnu sléttu lykkjuna (þ.e.a.s. í lykkju frá fyrri umferð) er prjónuð 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (2 lykkjur fleiri), síðan eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið saman (1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 96-100-104-108-112-120 lykkjur. Prjónið síðan klukkuprjón með uppslætti hringinn yfir allar lykkjur þannig: UMFERÐ 1: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2: * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kanturinn í klukkuprjóni mælist ca 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 32-33-33-33-34-34 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju – skiptið fallega niður auka efni efst á ermakúpu yfir miðju 10 cm efst í handvegi. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 102-108-114-120-126-129 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 2,5. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 3. Prjónið A.1 hringinn í 3 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #charmvalleytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.