Carina Degner Steffen skrifaði:
Jeg forstår ikke hvad man gør med den maske i diagrammet som er “sort firkant/masken eksisterer ikke, gå videre til næste symbol i diagrammet\r\nHvad gør jeg med den maske fra vrangsiden,?
19.05.2023 - 15:45
Clemens skrifaði:
Hallo gibt es auch Drops desinge auch in Koreanischer Sprache?
06.11.2022 - 12:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Clemens, leider noch nicht - es sind doch viele anderen Sprachen erhältlich: klicken Sie auf dem drop-down Menu unter dem Foto. Viel Spaß beim stricken!
07.11.2022 - 09:08
Solveig Bergvall skrifaði:
Stickar strl. XL och 353 m och ska minska 66 m till 285 men jag får det till 287 m. Vad är det rätta maskantalet
20.06.2022 - 16:34DROPS Design svaraði:
Hej Solveig. På sista varvet i A.1 så ökar du 1 maska (omslag) och minskar 2 maskor (2 aviga tillsammans i början och slutet). Så du har 1 minskad maska per A.1, dvs 353-66-1-1= 285 m. Mvh DROPS Design
21.06.2022 - 11:47
Aly De Boer skrifaði:
Begin ik het achterpand nou in A4 of A7 (in het patroon staat A4 maar dan sluit het patroon niet goed aan) ikzelf ben met A7 begonnen op het achterpand en gewoon hier mee doorgegaan tot het linker voorpand en dan nog 4 steken tricot en dan is het net zoals op de foto
13.06.2022 - 03:12DROPS Design svaraði:
Dag Aly,
Als je af hebt gekant voor de armsgaten en je breit het achterpand verder, dan ze je het patroon voort zodat de gaatjes op dezelfde manier boven elkaar komen als daarvoor.
25.08.2022 - 11:47
Ingrid Ehret skrifaði:
Hallo, das heisst ich nehme am V Ausschnitt vorne auch gleichzeitig für den Armausschnitt ab. Alos nicht erst am Ende des Vorderteils wo der Armausschnitt normalerwiese wäre.
09.06.2022 - 14:24DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ehret, wenn die Arbeit verteilt wird, sind die Halsausschnitt noch nicht fertig, also diese sollen Sie wie zuvor weiterstricken (siehe ABNAHMETIPP-1 (gilt für den V-Ausschnitt):) und nach der Verteilung stricken Sie gleichzeitig die Abketten/Abnahmen für den Armausschnitt und die Abnahmen für den Halsausschnitt wie zuvor. Viel Spaß beim stricken!
09.06.2022 - 16:03
Ingrid Ehret skrifaði:
Hallo, das heußt ich nehme am Anfang der Reige für den V-Ausschnitt . Ich verstehe nicht, wo ich die zwei Maschen am Vorderteil 3 mal abnehmen soll., also wo nehme ich die zwei Maschen ab und dann am Armausschnitt kommt die nächste Abnahme. Ich kann doch nicht für den Arm zwei maschen abnehmen und dann nochmals nenebn den zwei Maschen (wo befinden sich diese) abnehmen. Danke für die Auskunft.
09.06.2022 - 11:52DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ehret, beim linken Vorderteil ketten Sie die Maschen für den Armausschnitt am Anfang einer Hinrreihe ab, nehmen Sie für den Halsausschnitt am Ende einer Hinreihe + am Anfang der Hinreihe (nach den 2 ersten Maschen) ab - beim rechten Vorderteil ketten Sie für den armausschnitt am Anfang der Rückreihe ab und nehmen Sie dann vor den 2 letzten Maschen am Ende einer Hinreihen (Halsausschnitt wie zuvor). ab. siehe auch ABNAHMETIPP-2 (gilt für die Armausschnitte):. Kann das Ihnen helfen?
09.06.2022 - 13:29
Ingrid Ehret skrifaði:
Hallo, wie ist dies zu verstehen an der Seite des Vorderteils und an der Seite der Jacke, wo befindet sich dieser teil ? Danke für die Antwort.
08.06.2022 - 22:36DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ehret, die Seite vom Vorderteil ist die Seite gegen Rückenteil dann Armausschnitt: am Anfang der Hinreihe beim linken Vorderteil und am Ende der Hinreihen (am Anfang der Rückreihen wenn man abketten muss) beim rechten Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!
09.06.2022 - 08:32
Ingrid Ehret skrifaði:
Hallo, bin an der armabnahme am Vorderteil, wie werden die zwei Maschen abgenommen und dann neben zwei Maschen abnehmen, wie ist dies zu verstehen ? Also am Anfang jeder Reihe wird doch der V-Ausschnitt abgenommen welches sind die zwei Maschen wo man daneben abnimmt ? Auf baldige Antwort freue ich mich.
08.06.2022 - 22:31DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ehret, am Anfang jeder Reihe von der Seite werden Sie Maschen abketten (= Hinreihen beim li. Vorderteil/Rückreihen beim re. Vorderteil) und dann werden Sie innerhalb 2 Maschen für Armausschnitt jeder Hinreihe (= Anfang der Reihe beim li. Vorderteil/Ende der Reihe beim re. Vorderte) abnehmen. Dazu kommen immer noch die Abnahmen für den V-Ausshnitt = wie zuvor. Kann das Ihnen helfen?
09.06.2022 - 08:31
Aly De Boer skrifaði:
Na de boord als met het kantpatroon wordt begonnen moet op het achterpand dan niet met a7 begonnen worden ipv A4 anders loopt het patroon niet door. Dit sluit dan ook aan op bet linker voorpand
03.06.2022 - 07:42DROPS Design svaraði:
Dag Aly,
Nee, je begint met A.7 (en je eindigt met A.4). Dit is ook te zien aan de foto; bij de eerste rij met gaatjes zit het eerste gaatje meer van de knoopbies af.
12.06.2022 - 21:12
Ingrid Ehret skrifaði:
Hallo, ich muss dsmich nochmals melden. Ich stricke dies in Größe L, also muss ich nach der ersten abnahme nochmals nochmals glatt rehts stricken, dann die zweite abnahme tätigen und nach dieser abnahme mit dem Rippenmuster beginnen. Ist dies so richtig? Liebe Grüesse auf baldige antwort
01.06.2022 - 17:36DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ehret, in L nehmen Sie 22 Maschen regelmäßig verteilt ab wenn die Ärmel 19 cm von der Anschlagskante misst, dann nehmen Sie 14 Maschen regelmäßig verteilt ab wenn die Ärmel 27 cm misst. Dann stricken Sie 3 cm Rippenmuster (1 M rechts verschränkt, 2 M links) mit Nadeln 2,5; dann nehmen Sie zu und stricken Sie 3 cm Vollpatent. Viel Spaß beim stricken!
02.06.2022 - 08:39
Charm Valley Cardigan#charmvalleycardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri, V-hálsmáli og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-31 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um V-hálsmál): Fækkið lykkjum innan við ystu 16 lykkjur við miðju að framan, þ.e.a.s. innan við A.3 + kant að framan. Allar úrtökur eru gerðar frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 16 LYKKJUM: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 16 LYKKJUM: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 16 lykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju við handveg jafnframt sem lykkjur eru fléttaðar þannig: FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið 2 fyrstu lykkjur eins og áður, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni (= 1 lykkja færri), prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Prjónið 3 fyrstu lykkjur í umferð slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er lykkjan á undan uppslætti prjónuð slétt saman með uppslætti, þannig að það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 11, 17 og 23 cm M: 6, 12, 18 og 24 cm L: 5, 12, 19 og 25 cm XL: 6, 13, 20 og 26 cm XXL: 6, 13, 20 og 27 cm XXXL: 6, 13, 21 og 28 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp. Fellt er af fyrir handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkin prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig að loknu máli. Ermákúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 278-302-326-353-389-422 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1, prjónið A.2 þar til 18 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.2, prjónið A.1 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur (það eru einungis 4 fyrstu umferðir í A.1 sem eru endurteknar á hæðina). Þegar stykkið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu umferð í A.1 yfir lykkjur í A.1, prjónið sléttprjón þar til 17 lykkjur eru eftir í umferð og fækkið jafnframt um 53-59-63-66-74-79 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu umferð í A.1 yfir lykkjur í A.1 og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 223-241-261-285-313-341 lykkjur í umferð. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og snúna brugðna lykkju yfir snúna brugðnar lykkju og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 59-63-68-74-81-88 lykkjur inn frá hvorri hlið (105-115-125-137-151-165 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan yfir lykkjur frá fram- og bakstykki þannig (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu): Hægra framstykki: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3, 4-6-6-6-6-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 6-6-7-8-9-11 sinnum, A.5, 0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónamerki, haldið áfram yfir lykkjur á bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Bakstykki: 0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 17-18-20-22-24-27 sinnum, A.5, 0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónamerki, haldið áfram yfir lykkjur á vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan: Vinstra framstykki: 0-2-1-1-2-0 lykkjur sléttprjón, A.6, prjónið A.7 alls 6-6-7-8-9-11 sinnum, 4-6-6-6-6-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. JAFNFRAMT þegar lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli, byrjar úrtaka fyrir handveg. Lestu kaflann V-HÁSLMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 6 kantlykkjur að framan á hægra framstykki (aðrar lykkjur eru ekki prjónaðar), prjónið 1 umferð frá réttu eins og áður yfir allar lykkjur. Snúið, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 6 kantlykkjur að framan á vinstra framstykki, snúið, prjónið til baka frá röngu eins og áður yfir allar lykkjur. Þetta er gert til að kantur í garðaprjóni komi ekki til með að beygjast, þegar úrtaka fyrir V-hálsmáli byrjar. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir V-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 15-13-14-14-15-16 sinnum og síðan er 6. hverri umferð alls 5-6-6-6-6-6 sinnum. ATH: Til að koma í veg fyrir gatamynstur alveg við úrtöku fyrir hálsmáli, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur þegar fækka á lykkjum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af fyrir handvegi – stillið af að fellt sé af frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til 3-4-5-6-7-8 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerki, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-4-5-6-7-8 lykkjur á undan næsta prjónamerki, fellið af 6-8-10-12-14-16 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá röngu og prjónið mynstur fram og til baka eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir V-hálsmáli frá réttu eins og áður. Að auki eru lykkjur felldar af fyrir handvegi frá hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur í byrjun hverrar umferðar frá réttu alls 1-2-3-4-5-6 sinnum. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg innan við 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA-2, þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð frá réttu alls 6-7-7-9-12-15 sinnum (gatamynstur sem kemur alveg inn við handveg er skipt út fyrir sléttprjón). Eftir alla úrtöku fyrir V-hálsmáli og handveg eru 28-29-30-31-31-31 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af ystu 22-23-24-25-25-25 lykkjur á öxl = 6 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 5-5-5-5-6-6 cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá röngu og prjónið mynstur fram og til baka eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir V-hálsmáli frá réttu eins og áður. Að auki eru lykkjur felldar af fyrir handvegi frá hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu alls 1-2-3-4-5-6 sinnum. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg innan við 2 lykkjur – sjá ÚRTAKA-2, þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu alls 6-7-7-9-12-15 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir V-hálsmáli og handveg eru 28-29-30-31-31-31 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af ystu 22-23-24-25-25-25 lykkjur á öxl = 6 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 5-5-5-5-6-6 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: = 99-107-115-125-137-149 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið mynstur fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT eru felldar af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á hverri umferð alls 1-2-3-4-5-6 sinnum í hvorri hlið = 95-99-103-109-117-125 lykkjur. Síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu alls 6-7-7-9-12-15 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 83-85-89-91-93-95 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm. Fellið nú af miðju 33-33-35-35-37-39 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður (gatamynstur sem kemur alveg inn við handveg er skipt út fyrir sléttprjón) og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni = 22-23-24-25-25-25 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur sléttprjón, prjónið 1 lykkju slétt bæði framan í og aftan í hverja af næstu 18-20-22-24-26-28 lykkjum (= 18-20-22-24-26-28 lykkjur fleiri), prjónið 5 lykkjur sléttprjón = 46-50-54-58-62-66 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4-4-4-5-5-4 sinnum, 1 lykkja 4-5-8-7-11-16 sinnum, 2 lykkjur 4-5-4-5-4-4 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 98-108-114-124-132-142 lykkjur. Setjið stykkið saman, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn á stuttan hringprjón 3. Þegar ermin mælist 18-18-19-20-22-24 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir = 80-88-92-100-106-114 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 26-27-27-27-28-28 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð er fækkað um 8-13-14-19-22-24 lykkjur jafnt yfir = 72-75-78-81-84-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Í lykkjuna fyrir neðan snúnu sléttu lykkjuna er prjónuð 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (2 lykkjur fleiri), síðan eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 96-100-104-108-112-120 lykkjur. Prjónið síðan klukkuprjón með uppslætti hringinn yfir allar lykkjur þannig: UMFERÐ 1: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2: * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kanturinn í klukkuprjóni mælist ca 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 32-33-33-33-34-34 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju – skiptið fallega niður auka efni efst á ermakúpu yfir miðju 10 cm efst í handvegi. Saumið saman kant í hálsmáli mitt að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #charmvalleycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.