ORSINI Martine skrifaði:
Lorque l'on glisse sur maille endroit sur l'autre comme sur le schéma, cela diminue d'une maille, or en suivant le diagramme il n'y a pas de diminution (après la flèche 2)
15.08.2023 - 18:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Orsini, effectivement, mais juste après cette diminution, vous faites 1 jeté = votre nombre de mailles reste ainsi le même, vous allez tricoter ce rang de A.4 ainsi: *1 m end, glissez 1 m à l'end, 1 m end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 2 m ens à l'end* = 6 mailles à répéter de *à*. Bon tricot!
16.08.2023 - 09:01
Corinne skrifaði:
Bonjour. Lorsqu’on assemble les manches au dos et devant pour l’empiècement , le début du tour est le même qu’au début ? Ou doit on commencer d’un autre endroit ? Merci
22.08.2022 - 23:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Corinne, lorsque vous tricotez l'empiècement, vous pouvez commencer soit au milieu dos, soit à la transition entre le dos et l'une des manches (avant le dos ou après le dos). Bon tricot!
23.08.2022 - 08:00
Karolina skrifaði:
Cześć, zrobiłam już dół i rękawy. Oczka w rękawach i dole przełożone na nitkę. Wszystko trzeba przenieść na druty. Czy, żeby wzór wyszedł równo, przerabianie należy zacząć od jednego z końców podkroju rękawów ? Jak zacząć ? Przywiązać nitkę ? Będę wdzięczna za pomoc. Pozdrawiam Karolina
22.08.2022 - 20:35DROPS Design svaraði:
Witaj Karolino, gdy wykonujesz karczek, początek okrążenia może być albo na środku tyłu, albo w przejściu między tyłem i jednym z rękawów (przed rozpoczęciem tyłu, albo po wykonaniu tyłu). Co do nitki, to albo ją przywiązujesz, albo (to robię częściej) po prostu dołączasz nitkę, zostawiając jej dłuższą końcówkę i na końcu ładnie wrabiasz w robótkę (będzie niewidoczna). Pozdrawiamy!
23.08.2022 - 08:33
Lisbeth Simonsen skrifaði:
Jeg synes at det lyder forkert at kroppen kun skal være 25 cm før end ærmerne skal sættes på og bærestykket strikkes. Jeg synes også at blusen på fotoet ser længere ud end 25-27 cm inden mønsteret strikkes.
29.07.2022 - 19:42DROPS Design svaraði:
Hej Lisbeth, det stemmer helt fint ifølge måleskitsen. Se målene i måleskitsen nederst i opskriften og bestem selv om du vil have kroppen længere. God fornøjelse!
04.08.2022 - 07:39
Doris skrifaði:
Sehr schönes Muster! Mein Pulli in Safran Kreide ist wunderschön geworden. Vielen Dank an die Designerin und bitte weiterhin so tolle Anleitungen. Freue mich schon auf die Herbst- Winter Kollektion.
17.07.2022 - 09:38
Annabell Karatzas skrifaði:
Wo beginnt die neue Runde, wenn ich die Ärmel eingesetzt habe? Also, wo fange ich mit A3 an? Vielen Dank!
12.07.2022 - 21:40DROPS Design svaraði:
Liebe Annabell, Beginnen Sie besser am Übergang zwischen Ärmel und Rücken. Auch hier beginnt A.3.
24.07.2022 - 20:06
Carol McMillan skrifaði:
Love this Simply classy
01.03.2022 - 16:42
Olga skrifaði:
Pyramid or egipt tower
16.01.2022 - 18:48
Tora skrifaði:
Verdant
15.01.2022 - 04:14
Charlaine skrifaði:
"Pyramides d'été"
14.01.2022 - 19:13
Treasure Hunt Top#treasurehunttop |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum / t-shirt úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með hringlaga berustykki, gatamynstri og mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-41 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4). ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 228 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 11,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis ca 10. og 11. hverja lykkju og 11. og 12. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Fram- og bakstykki og ermar eru sett saman, áður en berustykkið er prjónað í hring að loka máli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 228-252-273-300-330-363 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-22-25-26-30-33 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 208-230-248-274-300-330 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-26-27-27-27-27 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur, prjónið 98-107-116-127-140-153 lykkjur sléttprjón, fellið af 6-8-8-10-10-12 lykkjur, prjónið 98-107-116-127-140-153 lykkjur sléttprjón, fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur. Klippið þráðinn frá. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 68-72-74-78-82-84 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með DROPS Safran. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-5-8-11-12-13 lykkjur jafnt yfir = 72-77-82-89-94-97 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5-5-4-4-3½-3½ cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4.-4.-2.-1.-½.-½. cm millibili alls 2-2-4-6-6-6 sinnum = 76-81-90-101-106-109 lykkjur. Þegar ermin mælist 13-12-12-10-9-7 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur, prjónið 70-73-82-91-96-97 lykkjur sléttprjón, fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur. Klippið þráðinn frá. Prjónið hina ermina á sama hátt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón 3 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi (þetta er gert án þess að prjóna lykkjur) = 336-360-396-436-472-500 lykkjur. Prjónið 2-2-2-2-4-10 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan A.3 hringinn á berustykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.4 hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.4, fækkið lykkjum jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚRTAKA: Ör-1: Fækkið um 12-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 324-348-384-420-456-480 lykkjur. Ör-2: Fækkið um 24-24-36-42-54-54 lykkjur jafnt yfir = 300-324-348-378-402-426 lykkjur. Ör-3: Fækkið um 28-36-44-36-42-48 lykkjur jafnt yfir = 272-288-304-342-360-378 lykkjur. Ör-4: Fækkið um 40-40-48-62-72-74 lykkjur jafnt yfir = 232-248-256-280-288-304 lykkjur. Ör-5: Fækkið um 40-40-40-48-48-56 lykkjur jafnt yfir = 192-208-216-232-240-248 lykkjur. Ör-6: Fækkið um 42-52-56-64-68-68 lykkjur jafnt yfir = 150-156-160-168-172-180 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20-21-22-24-26-28 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman (það eru ca 2-3-4-4-5-5 cm sléttprjón eftir A.4) – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 30-32-32-34-34-36 lykkjur jafnt yfir = 120-124-128-134-138-144 lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 2,5. Prjónið A.2 hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #treasurehunttop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.