Summer Date |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-44 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR: Fyrsta umferð er hekluð frá réttu á stykki. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptist í umferð frár réttu og í umferð frá röngu. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju frá fyrri umferð. Í hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Síðasta fastalykkjan í umferð er hekluð í fyrstu loftlykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. ÚTAUKNING-2 (á við um í hlið á fram- og bakstykki): Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næstu lykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 2 lykkjum, heklið 2 stuðla í næstu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð, þannig að heklað er bæði frá réttu og frá röngu, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn, frá réttu og frá röngu. Ermar eru heklaðar fram og til baka og saumaðar saman í lokin. BERUSTYKKI: Heklið 152-164-176-176-188-200 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Safran – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR. Heklið nú mynstur og aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið A.1 yfir 18-20-20-20-20-22 lykkjur (hálft bakstykki), A.2, A.1 yfir 36-40-44-44-48-52 lykkjur (ermi), A.2, A.1 yfir 36-38-40-40-42-44 lykkjur (framstykki), A.2, A.1 yfir 36-40-44-44-48-52 lykkjur (ermi), A.2, A.1 yfir 18-18-20-20-22-22 lykkjur (hálft bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í 4. umferð í A.1 og A.2 er aukið út þannig: Heklið yfir lykkjur frá hálfu bakstykki og aukið út um 0-0-6-0-6-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, A.2 eins og áður, heklið yfir ermi og næsta A.2 eins og áður, heklið yfir framstykki og aukið út um 0-2-10-0-12-22 lykkjur jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður, heklið yfir ermi og næsta A.2 eins og áður, heklið síðustu lykkjur á bakstykki og aukið út um 0-0-4-0-6-12 lykkjur jafnt yfir. Útauknar lykkjur eru síðan heklaðar inn í A.1. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka, eru 248-262-292-288-324-358 lykkjur í síðustu umferð. Heklið A.3 yfir miðjulykkjur af A.2, þær lykkjur sem eru eftir eru heklaðar í A.1. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 316-330-360-388-424-458 lykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 9-9-9-10-10-10 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 41-43-49-52-58-66 lykkjur, hoppið yfir næstu 76-80-84-90-94-98 lykkjur fyrir ermi, heklið 8 loftlykkjur undir ermi, 1 stuðul í hverja af næstu 82-86-96-104-118-130 lykkjur, hoppið yfir næstu 76-80-84-90-94-98 lykkjur fyrir ermi, heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 41-41-47-52-60-66 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-186-208-224-252-278 lykkjur. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 nýrra lykkja undir ermi. Þegar fram- og bakstykki mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá skiptingu, aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2! Aukið svona út með 5-2-2-2-2-2 cm millibili alls 3-6-6-6-6-6 sinnum = 192-210-232-248-276-302 lykkjur. Þegar fram- og bakstykki mælist ca 27-28-29-28-29-30 cm, heklið A.1 yfir allar lykkjur. Klippið þráðinn og festið þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. PÍFA Á BERUSTYKKI: Nú er hekluð pífa í fyrstu umferð með gatamynstri á berustykki, með byrjun frá réttu þannig: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta stuðul mitt að aftan séð frá réttu, 1 loftlykkja (kemur í stað fyrstu fastalykkju), * heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta stuðul *, heklið frá *-* í kringum allt berustykkið og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið A.4 um hvern loftlykkjuboga, fram og til baka, en hver umferð er hekluð saman. Klippið þráðinn og festið þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið alveg eins pífu í hina umferðina með gatamynstri á berustykki. PÍFA Á KANTI Á ERMUM: Nú er hekluð pífa yfir lykkjur sem hoppað var yfir á ermi, með byrjun frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju sem hoppað var yfir á ermi, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* yfir allar lykkjur sem hoppað var yfir á ermi og endið með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju sem var hekluð undir ermi = 38-40-42-45-47-49 loftlykkjubogar. Heklið A.4 fram og til baka um hvern loftlykkjuboga. Klippið þráðinn og festið þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið alveg eins pífu meðfram hinum kanti á ermi. ERMI: Byrjið með að hekla kant í kringum handveg þannig: Brjótið pífuna til baka þannig að hægt sé að hekla frá röngu í fyrstu umferð á pífukanti og heklið um fyrstu umferð á pífukanti yst á ermi (þ.e.a.s. með 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur). Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í 5. lykkju mitt undir ermi, heklið 1 loftlykkju (kemur í stað fyrstu fastalykkju), * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* yfir 4 næstu lykkjur undir ermi, heklið * 1 loftlykkju, 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* yfir 1 umferð pífukant og heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð = 42-44-46-49-51-53 loftlykkjubogar. Klippið þráðinn. Heklið frá réttu þannig: Byrjið í 6. loftlykkju niður frá öxl séð frá réttu (þ.e.a.s. brjótið stykkið við öxl og teljið 6 loftlykkjuboga niður frá toppi). Heklið 1 fastalykkju um loftlykkju, heklið 2 stuðla um næstu loftlykkju (þ.e.a.s. upp að axlasaumi), heklið 2 stuðla um hverja af næstu 9 loftlykkjum og endið með 1 keðjulykkju um næstu loftlykkju = 20 stuðlar. Snúið og heklið frá röngu þannig: Heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um næstu loftlykkju, 2 stuðlar í hvern stuðul og endið með 1 keðjulykkju um næstu loftlykkju í hinni hlið á stykki = 40 stuðlar. Snúið. Heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um næstu loftlykkju, 2 stuðlar í fyrsta stuðul, 1 stuðul í hvern stuðul þar til 1 stuðull er eftir, 2 stuðlar í næsta stuðul og endið með 1 keðjulykkju um næstu loftlykkju = 42 stuðlar. Haldið svona áfram og aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið í hverri umferð alls 10-10-12-12-14-14 sinnum = 60-60-64-64-68-68 lykkjur. Þ.e.a.s. nú eru eftir alls 8-10-8-11-9-11 loftlykkjubogar. STÆRÐ S-M-L: Í næstu umferð er heklaður 1 stuðul í hvern stuðul og til skiptis 1 stuðull og 2 stuðlar um hverja af síðustu loftlykkjum niður að miðjulykkju undir ermi. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul og til skiptis 1 stuðul og 2 stuðla um þær loftlykkjur sem eru eftir í hinni hlið á stykki = 72-75-76 stuðlar. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Í næstu umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul og 2 stuðlar um hverja af síðustu loftlykkjum niður að miðjulykkju undir ermi. Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 2 stuðla um þær loftlykkjur sem eru eftir í hinni hlið á stykki = 86-86-90 stuðlar. ALLAR STÆRÐIR: Í næstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður til 66-72-80-86-92-98 stuðla. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 16-17-15-15-15-15 cm þar sem stykkið er styst. Heklið 2 umferðir með fastalykkjum. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant, með byrjun mitt að aftan frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju í kringum hálsmál. Klippið þráðinn og festið. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Justyna wrote:
Dlaczego przy karczku, w rozmiarze M, pierwszy rząd słupków nie odpowiada ilości oczek łańcuszka? Po sumie oczek nad którymi mamy dodawać pierwsze oczka na reglan brakuje mi 8 oczek pierwszego rzędu. Zaczynamy od 177 oczek , a w następnym akapicie po sumie wychodzi 169.
20.05.2024 - 23:21DROPS Design answered:
Witaj Justyno, suma oczek w pierwszym rzędzie (czyli słupków) będzie inna niż liczba oczek łańcuszka, ponieważ już wtedy dodajemy oczka na reglany (schemat A.2 x 4). Pozdrawiamy!
22.05.2024 - 09:04Jazmin Muñoz wrote:
Beatifull
23.05.2023 - 15:00Daniela wrote:
Buonasera, non riesco a capire bene le istruzioni per dividere il corpo e le maniche: le 8 catenelle sotto la manica devono essere "attaccate" nella catenella che c'è nella maglia centrale dell'ultima riga di A3, in modo che venga "spigolo con spigolo"? Grazie
22.05.2023 - 21:12DROPS Design answered:
Buonasera Daniela, le 8 catenelle rappresentano la parte sotto lo scalfo, saltando le catenelle delle maniche. Buon lavoro!
22.05.2023 - 21:54Annica Larsson wrote:
Vad betyder ”Virka 1 framkant …”? Är det fast maska/stolpe/ något annat? Kommer inte vidare😬
30.11.2022 - 20:49DROPS Design answered:
Hej Annica, det skal stå 1 stolpe og det er rettet - tak for info :)
01.12.2022 - 13:58Monika wrote:
Wzór świetny i bardzo twarzowy. Dobrze opisany i łatwy. Jedyną uwagę mam do fasonu rękawów. wg mnie w drugim rzędzie rękawa dodawane jest za duzo oczek i z tego powodu rękaw nieładnie się fałduje. Dodałam tylko 4 oczka zamiast 20 (w dwóch pierwszych i w dwóch ostatnich słupkach) i rękaw teraz ładnie i gładko leży a wciąż jest wystarczająco szeroki. Dekolt mógłby byc nieco mniejszy ale zrobiłam szersze wykończenie (2 rzędy słupków) i teraz jest idealny
25.07.2022 - 09:02DROPS Design answered:
Witaj Moniko, miło nam jest to słyszeć. Dziękujemy za zainteresowanie naszymi wzorami. Koniecznie udostępnij link do Twojego sweterka w naszej galerii TUTAJ. Pozdrawiamy!
25.07.2022 - 17:09Aleksandra wrote:
Witam, ile oczek należy dodać w schemacie A3? Że schematu wynika, że 16, ale w opisie wychodzi, że po przerobieniu schematu A1 i A3 będzie 330 oczek, czyli o 4 oczka więcej niż wynikałoby z obliczeń dla rozmiaru m. Czy zatem gdzieś w okrążeniach trzeba dodać 4 oczka?
12.06.2022 - 11:55DROPS Design answered:
Witaj Olu, przed rozpoczęciem schematu A.3, który przerabiasz na 6 oczkach schematu A.2, 10 oczek z każdej strony schematu A.2 wchodzi teraz do przodu tyłu i rękawów i są one przerabiane wg schematu A.1. Schemat A.3 kończy się 23 oczkami. Łącznie po zakończeniu schematu A.3 powinno być 330 oczek. Pozdrawiamy!
13.06.2022 - 19:00Annie wrote:
Magnifique
22.02.2022 - 09:04Carol wrote:
Flirty frills
19.01.2022 - 06:09Maria wrote:
Ruffle love
14.01.2022 - 22:34Olga wrote:
Romería
14.01.2022 - 21:21