DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Letters to Juliet

Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með litnum kúlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-20
DROPS Design: Mynstur e-337
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tillheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-250 g litur 18, natur

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 3.
DROPS PRJÓNAR NR 2,5.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um í hliðum á framstykki og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 2 lykkjur frá hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um handveg):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI OG 6-6-8-8-10-10 LYKKJUR Í STROFFPRJÓNI ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 6-6-8-8-10-10 LYKKJUM Í STROFFPRJÓNI OG 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 7-7-9-9-11-11 lykkjur, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 6-6-8-8-10-10 lykkjur stroffprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Böndin á öxlum eru prjónuð á framstykki og síðan saumuð við bakstykkið. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 100-112-122-136-150-166 lykkjur á prjóna 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-11-13-15-13-15 lykkjur jafnt yfir = 91-101-109-121-137-151 lykkjur.
Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 5 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-3-2-3-1-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 alls 8-9-10-11-13-14 sinnum, A.2, prjónið 3-3-2-3-1-3 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur.
Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 99-109-117-129-145-159 lykkjur.

Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 12-14-16-18-20-22 lykkjur, prjónið eins og áður þar til eftir eru 13-15-17-19-21-23 lykkjur í umferð, (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) yfir næstu 12-14-16-18-20-22 lykkjur og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATH: Ef það kemur kúla alveg við stroffprjónið í hvorri hlið, prjónið sléttprjón yfir lykkjur í kúlu til að koma í veg fyrir þetta. Þetta á einnig við þegar lykkjum er fækkað við handveg í hvorri hlið.
Haldið áfram með mynstur með 12-14-16-18-20-22 lykkjur stroffprjóni og 1 kantlykkju í hvorri hlið.

Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 6-8-8-10-10-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu tveimur umferðum = 87-93-101-109-125-135 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með 6-6-8-8-10-10 lykkjur í stroffprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð alls 3-4-4-6-10-13 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-5-4-3-2 sinnum = 73-77-83-89-99-105 lykkjur.
Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir á eftir síðustu úrtöku, prjónið 1 umferð frá réttu þegar auka á út um 8-10-10-10-10-14 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir ystu 7-7-9-9-11-11 lykkjur í hvorri hlið) = 81-87-93-99-109-119 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 7-8-9-9-10-11 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Skiptið yfir á prjón 2,5.
Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Fellið af aðeins laust. Bakstykkið mælist ca 35-37-39-40-42-44 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki, en í stað þess að fella af allar lykkjur eftir stroff efst á bakstykki, prjónið band á öxl / hlýra frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og setjið þessar lykkjur á þráð fyrir band á öxl / hlýra, fellið af 59-65-67-73-79-89 lykkjur og prjónið eins og áður yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur.
Prjónið síðan band á öxl / hlýra eins og útskýrt er að neðan.

BAND Á ÖXL /HLÝRI:
= 11-11-13-13-15-15 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með prjón 2,5, stroffprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til band á öxl / hlýri mælist ca 14-14-14-16-16-16 cm (helmingur af lengdinni tilheyrir bakstykki). Fellið af. Prjónið hitt band á öxl / hlýra á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið bönd á öxlum / hlýra við bakstykkið – yst í hvorri hlið.
Saumið hliðarsauminn innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = hnútur: Prjónið 3 lykkjur brugðið saman, ekki sleppa lykkjum af vinstra prjóni, prjónið sömu 3 lykkjur slétt saman og síðan brugðið saman, sleppið að lokum öllum 3 lykkjum af vinstra prjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Josephine Genna wrote:

Comment choisir sa taille merci

19.03.2024 - 20:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Genna, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma en bas de page; cette leçon vous en dit encore plus. Bon tricot!

20.03.2024 - 08:01

country flag Mikka Nielsen wrote:

Hej, jeg er i tvivl om hvad der menes med “Når arbejdet måler 23-24-25-26-27-28 cm, strikkes næste pind således fra retsiden: 1 kantmaske retstrik, (1 ret / 1 vrang) over de næste 12-14-16-18-20-22 masker”. Skulle der stå RIB over de næste…? Eller hvad hentyder parantesen til?

02.06.2023 - 14:06

DROPS Design answered:

Hej Mikka, ja det stemmer, skiftevis 1 ret og 1 vrang over det antal masker der står i din størrelse :)

02.06.2023 - 14:46

country flag Viviana Nappo wrote:

Buongiorno, vorrei lavorare in tondo, ho visto il primo suggerimento dato ma non capisco perché si consiglia di lavorare la maglia legaccio alla maniera usata per lavorare in tondo....dove sono le maglie legaccio? È tutto maglia rasata! Gli aumenti e le diminuzioni si fanno allo stesso modo? Ai due lati di ogni segnapunti va bene, ma si aumenta e si diminuisce allo strssomodo? Grazie

21.07.2022 - 17:58

DROPS Design answered:

Buongiorno Viviana, le maglie di vivagno sono per le cuciture laterali, se lavora in tondo non deve lavorarle. Per gli aumenti può lavorarli nello stesso modo. Buon lavoro!

23.07.2022 - 14:15

country flag Melissa wrote:

Is it also possible to start this top in the round? And if so, do you have a tip on adjusting the pattern to do so? Thanks in advance!

01.07.2022 - 18:15

DROPS Design answered:

Dear Melissa, yes, you could work in the round, working the back and the front together. Remember to take out 1 edge stitch from each side of each piece from the number counts. Also remember to work garter stitch as in the round, not as explained in the tips above. Also, the increases on each side need to be worked on both sides of the markers placed in the sides. Happy knitting!

02.07.2022 - 15:57

country flag Mar wrote:

Hola! Tanto al principio de este patrón como de otros que he estado mirando, indica que tras montar los puntos se haga una hilera del revés por el lado del revés. Tras montar los puntos estoy en el derecho de la labor, por tanto tengo que hacer revés ida y vuelta o como hago esa primera hilera antes de poder hacer la hilera del revés que se indica?

29.06.2022 - 12:50

country flag Mar wrote:

Hola! Tanto al principio de este patrón como de otros que he estado mirando, indica que tras montar los puntos se haga una hilera del revés por el lado del revés. Tras montar los puntos estoy en el derecho de la labor, por tanto tengo que hacer revés ida y vuelta o como hago esa primera hilera antes de poder hacer la hilera del revés que se indica?

29.06.2022 - 12:49

DROPS Design answered:

Hola Mar, esta técnica se usa para que el borde de montaje quede mejor. Según esta técnica, la fila de montaje se cuenta como si fuera una fila de derecho. La primera fila de trabajo cuenta como si fuera una fila por el lado revés. Hemos empezado a aplicar esta técnica en algunos de los últimos modelos; antes se consideraba que la primera fila trabajada es una fila por el lado derecho.

30.06.2022 - 21:19

country flag Andreea B wrote:

Hi, for the back, M Size...when we start the ribbing we have 2 simetrical parts totalizing 45x2=90 stiches...and in between until 109 stiches we just make the pattern the way it was before?

27.06.2022 - 13:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Andreea B, there was a mistake in the English pattern - it has been now edited, thanks for noticing, you should work as follows: 1 edge st, 14 sts in rib (K1, P1), stitches as before, 14 sts in rib (P1, K1), 1 edge = 1+14+79 +14+1=109 sts. Happy knitting!

27.06.2022 - 15:25

country flag Andreea H wrote:

Hi, after yo increase, we still make the bublle after 3 knit stiches or after 4...5 etc? If not after few increases I beleive we need to add one more bubble at the end of the row. Thank you

18.06.2022 - 14:58

DROPS Design answered:

Dear Andreea, when increasing on the sides, the increased stitches are included in the pattern in the next rows. When you have enough stitches to make 1 more repeat of the pattern, you work an extra bubble. Happy knitting!

18.06.2022 - 15:49

country flag Marine Mazelier wrote:

Bonjour, je ne comprends pas la partie suivante pour le dos: Tricoter le rang suivant sur l'endroit ainsi: 1 maille lisière au point mousse, (1 maille endroit, 1 maille envers) au-dessus des 12-14-16-18-20-22 mailles suivantes, tricoter les 13-15-17-19-21-23 mailles suivantes comme avant Quelle est cette histoire de "au-desus des ... mailles suivantes? Et que veut dire "tricoter comme avant"? Enfin, qu'en est-il des rangs envers, comment les tricoter (au point mousse?)? Merci

09.06.2022 - 22:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mazelier, vous tricotez ce rang sur l'endroit avec les 13-15-17-19-21-23 mailles centrales en continuant les diagrammes comme précédemment, et les 12-14-16-18-20-22 mailles de chaque côté en côtes 1/1. Sur l'envers, tricotes les mailles des côtes comme elles se présentent et continuez les diagrammes au milieu. Bon tricot!

10.06.2022 - 08:54

country flag Manue wrote:

Bien hâte de commencer ce patron

02.06.2022 - 12:11