DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Country Cheer

Heklaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-41
DROPS Design: Mynstur vs-091
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-250-300-300-350 g litur 04, fífill

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 9 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkja/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur (þær koma í stað fyrsta stuðuls), þ.e.a.s. hoppið yfir fyrsta stuðul frá fyrri umferð. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja (hún kemur í stað fyrstu fastalykkju), þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Síðasta fastalykkja í umferð er hekluð í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á framstykki og bakstykki):
Aukið út með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. Aukið út innan við 1 stuðul í hvorri hlið. Útauknar lykkjur halda áfram í stuðlum.

ÚRTAKA:
HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN ÞANNIG:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

HEKLIÐ 3 STUÐLA SAMAN ÞANNIG:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Heklið 74-80-88-96-108-118 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 70-76-84-92-104-114 loftlykkjur = 72-78-86-94-106-116 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 4 sinnum = 80-86-94-102-114-124 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, heklið kant þannig:
UMFERÐ 1:
Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðul í 2. stuðul, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 2:
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju.
UMFERÐ 3:
Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðul í 2. stuðul, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkja í hvern stuðul og 1 fastalykkju um hverja loftlykkju. Klippið þráðinn og festið.

FRAMSTYKKI:
Heklið 74-80-88-96-108-118 loftlykkjur, með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 70-76-84-92-104-114 loftlykkjur = 72-78-86-94-106-116 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 4 sinnum = 80-86-94-102-114-124 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, heklið næstu umferð þannig: Heklið keðjulykkjur yfir fyrstu 8-8-9-10-13-15 stuðla í umferð, heklið þar til eftir eru 8-8-9-10-13-15 stuðlar í umferð = 64-70-76-82-88-94 stuðlar. Snúið stykkinu. Nú á að skipta framstykkjum og hvort framstykki er heklað til loka hvort fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Heklið frá hlið þannig: Heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið 2 næstu stuðla saman (= 1 stuðull færri) – sjá ÚRTAKA, heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 25-28-31-34-37-40 stuðla, heklið 3 næstu stuðla saman, heklið 1 stuðul í síðasta stuðul. Snúið og heklið frá miðju að framan, JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur við miðju að framan og 1 lykkju í hlið í hverri umferð eins og útskýrt er að neðan. Fækkið lykkjum svona þar til 5 stuðlar eru eftir í umferð. Í næstu umferð eru 2 fyrstu stuðlarnir heklaðir saman í 1 stuðul og 3 síðustu stuðlarnir eru heklaðir saman í 1 stuðul = 2 stuðlar. Klippið þráðinn og festið.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Byrjið mitt að framan þar sem framstykkið skiptist, heklið 1 stuðul í fyrsta stuðul, heklið 3 næstu stuðla saman (= 2 stuðlar færri), heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 25-28-31-34-37-40 stuðla, heklið 2 næstu stuðla saman (= 1 stuðull færri), heklið 1 stuðul í síðasta stuðul. Snúið og heklið frá hlið, JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur við miðju að framan og 1 lykkju við miðju að hlið í hverri umferð eins og útskýrt er að ofan. Fækkið lykkjum svona þar til 5 stuðlar eru eftir í umferð. Í næstu umferð eru heklaðir 2 fyrstu stuðlarnir saman í 1 stuðul og 3 síðustu stuðlar saman í 1 stuðul = 2 stuðlar. Klippið þráðinn og festið.

HEKLAÐUR KANTUR FRAMSTYKKI-1:
Það á að hekla 4 umferðir með stuðlum / stuðlar + loftlykkjur efst í opi mitt að framan.
Það er byrjað efst á vinstra framstykki, heklað er niður að miðju að framan og upp meðfram hlið á hægra framstykki.
UMFERÐ 1: Byrjið efst í horni á vinstra framstykki: Heklið 3 loftlykkjur efst í fyrsta stuðul, 1-2-1-2-1-2 stuðlar í næsta stuðul við miðju að framan (nú hefur verið heklað í 2-3-2-3-2-3 í 2 stuðla frá horni á vinstra framstykki), síðan eru heklaðir 3 stuðlar um hverja umferð með stuðlum niður að skiptingu, heklið 2 stuðla á milli stykkja (mitt að framan), en þessir stuðlar eru heklaðir saman í 1 stuðul, síðan eru heklaðir 3 stuðlar um hverja umferð með stuðlum upp að toppi á hægra framstykki, heklið 2-3-2-3-2-3 stuðlar á toppi á hægra framstykki = 32-36-38-42-44-48 stuðlar hvoru megin við miðju stuðul sem var heklaður saman og alls 65-73-77-85-89-97 stuðla í umferð, snúið.
UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðul í 2. stuðul, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir niður að miðju að framan, hoppið yfir næstu 5 stuðla (miðju af þessum 2 stuðlum sem heklaðir voru saman í 1 stuðul), heklið 1 stuðul í næsta stuðul, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 1 loftlykkju og hoppið yfir næsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvorn af síðustu 2 stuðlum = 60-68-72-80-84-92 lykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju þar til 2 stuðlar eru eftir mitt að framan, hoppið yfir 4 næstu stuðla, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 loftlykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 56-64-68-76-80-88 stuðlar.
UMFERÐ 4: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 2. stuðul, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* þar til 2 stuðlar eru eftir niður að miðju að framan, hoppið yfir næstu 4 stuðla, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 1 loftlykkju og hoppið yfir næsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvorn af síðustu 2 stuðlum = 52-60-64-72-76-88 lykkjur. Klippið þráðinn.

BAND Á ÖXL / HLÝRI:
Byrjið efst í horni á hægra framstykki, heklið 3 loftlykkjur + 2 stuðlar um ysta stuðul (= 3 stuðlar). Haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul (fyrsta stuðli er skipt út fyrir 3 loftlykkju) þar til band á öxl / hlýri mælist ca 18-19-20-21-22-23 cm, mátið e.t.v. toppinn og stillið lengdina á bandinu / hlýra. Klippið þráðinn og heklið alveg eins band á öxl / hlýra á vinstra framstykki.

HEKLAÐUR KANTUR FRAMSTYKKI-2:
Það á að hekla umferð með fastalykkjum meðfram öllu opinu á framstykki. Byrjið í hægri hlið þar sem hoppað var yfir stuðla fyrir handveg (séð að framan þegar stykkið liggur flatt), heklið upp meðfram vinstra framstykki / band á öxl, yfir stuðla efst á bandi á öxl, niður meðfram bandi á öxl / vinstra framstykki, upp meðfram hægra framstykki / band á öxl, yfir stuðla efst á bandi á öxl, niður meðfram bandi á öxl / hægra framstykki og yfir stuðla sem hoppað var yfir fyrir handveg í vinstri hlið. Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 2 fastalykkjur um hverja umferð með stuðlum. Klippið þráðinn og festið.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma, en skiljið eftir 6 cm neðst í hvorri hlið = klauf. Saumið bönd á öxl / hlýra frá framstykki að bakstykki.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Landre wrote:

Bonjour je comprend pas votre explication: «RANG 1: 1-2-1-2-1-2 brides dans la bride suivante côté encolure (on a ainsi 2-3-2-3-2-3 brides dans les 2 brides de la pointe du devant gauche), puis crocheter 3 brides autour de chaque rang de brides en descendant jusqu'à la pointe en bas de l'encolure, à la division de l'ouvrage, crocheter 2 brides entre les deux demi-devants (milieu devant),

12.10.2023 - 22:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Landre, commencez par 3 ml (= 1ère bride), puis 1 ou 2 brides (cf taille) dans la bride suivante en haut du devant (pour avoir 2 ou 3 brides à la pointe du devant gauche), crochetez ensuite 3 brides autour de la 1ère /de la dernière bride de chacun des rangs le long du devant gauche, entre les 2 devants (en bas de l'encolure), crochetez 2 brides écoulées ensemble, vous remontez ensuite le long du devant droit comme pour le devant gauche = 3 brides autour de chaque 1ère/dernière bride le long du devant droit et vous terminez par 2 ou 3 brides en haut du devant droit (comme au début du rang). Bon crochet!

13.10.2023 - 08:40

country flag Katell wrote:

Bonjour je bloque je ne comprend pas ce qu'il faut faire a ce moment là :"Tourner. Diviser maintenant le devant, et terminer chaque partie séparément." Est ce que c'est l'idée qu'il faut crocheter une demie partie du devant jusqu'à une bretelle ?

22.07.2023 - 14:29

DROPS Design answered:

Bonjour Katell, vous allez maintenant former l'encolure et donc terminer chaque côté séparément: crocheter d'abord le devant gauche puis le devant droit. Bon crochet!

27.07.2023 - 11:51

country flag Rouzic wrote:

Bonjour, comment s\'explique le fait que côté gauche devant il y ait des mailles coulées mais pas côté droit devant ?\r\nMerci de votre réponse

25.06.2023 - 15:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rouzic, c'est une technique fréquemment utilisées pour diminuer des mailles de chaque côté; retrouvez-en la démonstration dans cette vidéo; si vous ne souhaitez pas de mailles coulées, il vous faudra couper le fil, sauter le nombre de mailles indiquées au début du rang puis joindre le fil et continuer comme indiqué (sans crocheter les dernières mailles du rang pour former les emmanchures de la même façon de chaque côté). Bon crochet!

26.06.2023 - 09:18

country flag Maggi wrote:

Fin oppskrift! Jeg skjønte ikke hellingen langs kanten, hekle 1-2-1-2, hva betyr det?😊

29.04.2023 - 07:59

country flag Anna wrote:

Beautiful pattern thanks Jeanette!!!!! Here are my photos and credit to you, you can use my photos: instagram.com/p/Chw2Zhos9GS/?igshid=YmMyMTA2M2Y=

31.08.2022 - 14:06

DROPS Design answered:

Thank you very much Anna, please submit your pictures using that form here to our DROPS Gallery. Thanks again!

31.08.2022 - 15:15

country flag Anna wrote:

Beautiful pattern \r\nHere are my photos and credit to you\r\n instagram.com/p/Chw2Zhos9GS/?igshid=YmMyMTA2M2Y=

31.08.2022 - 14:05

country flag Maria wrote:

So in every row from the armpit side I start with 1 treble and after decreasing 2 stitches and for every mid side im decreasing 3 stitches and finishing with 1 treble stitch until to have 5? Or I should start with ch 3? Sorry for the spam!!

13.06.2022 - 15:20

DROPS Design answered:

Dear Maria, you will decrease on every row: 2 sts towards neck (either after the first stitch (3 chains) at the beginning of the row from neck or before the last treble at the end of the row from armhole towards neck) and at the same time, decrease 1 stitch before the last stitch as the end of the row (from the neck towards armhole) or after the first stich (3 chains) at the beg of row from the armhole towards neck). Happy crocheting!

13.06.2022 - 16:31

country flag Maria wrote:

LEFT FRONT PIECE, Turn and work from mid front, AT THE SAME TIME decrease 2 stitches towards mid front and 1 stitch towards the side on every row( what do you mean here) as explained above. I can't understand this at all, am I doing any chain at the beginning of every row? And after this it's in every row at the beginning decrease 2 and at the end 3? Thank you 🙂

10.06.2022 - 22:58

country flag Cathleen Castaneda wrote:

When measuring to do the next increase, do I measure from the bottom of the last increase row or the top of the last increase row?

06.06.2022 - 01:35

DROPS Design answered:

Dear Cathleen, you measure from the beginning of the row. Happy knitting!

06.06.2022 - 13:31

country flag Mariel wrote:

In the tension the width is correct but the height is wrong! (More than 10cm) I cant understand what im doing wrong 🙃

04.06.2022 - 10:43

DROPS Design answered:

Dear Mariel, if you have more than 10 cm in 9 rows, it means you are working too loosely in height. You can calculate to work fewer rows than indicated, according to your gauge. Happy crocheting!

04.06.2022 - 18:13