DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Date

Heklaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og pífu. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-43
DROPS Design: Mynstur e-328
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 62, sítróna

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

HEKLFESTA:
22 stuðlar á breidd og 12 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR:
Fyrsta umferð er hekluð frá réttu á stykki. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki.
Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptist í umferð frár réttu og í umferð frá röngu.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
Í hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Síðasta fastalykkjan í umferð er hekluð í fyrstu loftlykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul.

ÚTAUKNING-2 (á við um í hlið á fram- og bakstykki):
Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næstu lykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 2 lykkjum, heklið 2 stuðla í næstu lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er heklað í hring, en snúið er við í hverri umferð, þannig að heklað er bæði frá réttu og frá röngu, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn, frá réttu og frá röngu. Að lokum er hekluð pífa í kringum berustykki og 1 pífa meðfram hvorum kanti á ermum.

BERUSTYKKI:
Heklið 152-164-176-176-188-200 loftlykkjur - lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Safran – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR.

Heklið nú mynstur og aukið út fyrir laskalínu þannig:
Heklið A.1 yfir 18-20-20-20-20-22 lykkjur (hálft bakstykki), A.2, A.1 yfir 36-40-44-44-48-52 lykkjur (ermi), A.2, A.1 yfir 36-38-40-40-42-44 lykkjur (framstykki), A.2, A.1 yfir 36-40-44-44-48-52 lykkjur (ermi), A.2, A.1 yfir 18-18-20-20-22-22 lykkjur (hálft bakstykki).
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Í 4. umferð í A.1 og A.2 er aukið út þannig:
Heklið yfir lykkjur frá hálfu bakstykki og aukið út um 0-0-6-0-6-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, A.2 eins og áður, heklið yfir ermi og næsta A.2 eins og áður, heklið yfir framstykki og aukið út um 0-2-10-0-12-22 lykkjur jafnt yfir, heklið A.2 eins og áður, heklið yfir ermi og næsta A.2 eins og áður, heklið síðustu lykkjur á bakstykki og aukið út um 0-0-4-0-6-12 lykkjur jafnt yfir. Útauknar lykkjur eru síðan heklaðar inn í A.1.
Þegar A.2 hefur verið heklað til loka, eru 248-262-292-288-324-358 lykkjur í síðustu umferð.
Heklið A.3 yfir miðjulykkjur af A.2, þær lykkjur sem eru eftir eru heklaðar í A.1.
Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 316-330-360-388-424-458 lykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 9-9-9-10-10-10 cm.

Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 41-43-49-52-58-66 lykkjur, hoppið yfir næstu 76-80-84-90-94-98 lykkjur fyrir ermi, heklið 8 loftlykkjur undir ermi, 1 stuðul í hverja af næstu 82-86-96-104-118-130 lykkjur, hoppið yfir næstu 76-80-84-90-94-98 lykkjur fyrir ermi, heklið 8 loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 41-41-47-52-60-66 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 180-186-208-224-252-278 lykkjur.
Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 nýrra lykkja undir ermi.
Þegar fram- og bakstykki mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá skiptingu, aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2!
Aukið svona út með 5-2-2-2-2-2 cm millibili alls 3-6-6-6-6-6 sinnum = 192-210-232-248-276-302 lykkjur.
Þegar fram- og bakstykki mælist ca 27-28-29-28-29-30 cm, heklið A.1 yfir allar lykkjur.
Klippið þráðinn og festið þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina.

PÍFA Á BERUSTYKKI:
Nú er hekluð pífa í fyrstu umferð með gatamynstri á berustykki, með byrjun frá réttu þannig:
Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta stuðul mitt að aftan séð frá réttu, 1 loftlykkja (kemur í stað fyrstu fastalykkju), * heklið 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta stuðul *, heklið frá *-* í kringum allt berustykkið og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
Heklið A.4 um hvern loftlykkjuboga, fram og til baka, en hver umferð er hekluð saman.
Klippið þráðinn og festið þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina.
Heklið alveg eins pífu í hina umferðina með gatamynstri á berustykki.

PÍFA Á KANTI Á ERMUM:
Nú er hekluð pífa yfir lykkjur sem hoppað var yfir á ermi, með byrjun frá réttu þannig:
Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju sem hoppað var yfir á ermi, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* yfir allar lykkjur sem hoppað var yfir á ermi og endið með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju sem var hekluð undir ermi = 38-40-42-45-47-49 loftlykkjubogar. Heklið A.4 fram og til baka um hvern loftlykkjuboga.
Klippið þráðinn og festið þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina.
Heklið alveg eins pífu meðfram hinum kanti á ermi.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið kant, með byrjun mitt að aftan frá réttu þannig:
Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju í kringum hálsmál. Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga

symbols = loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju
symbols = 1 fastalykkja, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fastalykkju

symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir einungis hvernig næsta umferð er hekluð í/um lykkjurnar
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Malin wrote:

Hej! Jag har samma fråga som Emma Åberg ovan. Dessutom undrar jag om/varför man ska virka oket på rät och avigsida istället för att bara virka runt från rätsidan?

11.08.2023 - 20:12

DROPS Design answered:

Hej Malin, Du har 152 m. A.1 over 18 (halve bakstykke), A.2 = 2m, A.1 over 36 masker (erme), A.2 = 2m, A.1 over 36 masker (forstykke), A.2 = 2m, A.1 over 36 masker (erme), A.2 = 2m, A.1 over 18 masker (halve bakstykke).

16.08.2023 - 11:20

country flag María Jesús wrote:

Me gustaría que pusiera mejor un vídeo de cómo se hace por las explicaciones no se hacerlo yo es mejor en video gracias

25.04.2023 - 11:25

country flag Hannie wrote:

Wat betekent in het gedeelte RUCHE PAS: "... Maar haak iedere toer samen." Ik heb dit nog nooit ergens gelezen en heb geen idee wat dit inhoud.

27.01.2023 - 17:33

DROPS Design answered:

Dag Hannie,

Je haakt heen en weer, maar aan het eind van iedere toer haak je de steken samen, zodat er geen hiaat ontstaat omdat je heen en weer haakt. Op die manier loopt de ruche rondom door.

29.01.2023 - 18:36

country flag Ola wrote:

Witam, czy pierwsze przerobione oczko pod rękawem to jest jedno z tych ośmiu dodanych oczek?

27.06.2022 - 08:46

DROPS Design answered:

Witaj Olu, tak, pierwsze oczko łańcuszka przerobione pod rękawem to jest jedno z tych ośmiu dodanych oczek. Pozdrawiamy!

27.06.2022 - 21:25

country flag Pia Husted wrote:

Den dr umumig at forstå den opskrift, især starten, jeg er meget øvet hækler, her må jeg give op. 15 nøgler i indkøbt til ingen nytte.

08.06.2022 - 17:54

country flag Emma Åberg wrote:

Vet inte vad jag gör för fel när jag ska virka oket. Jag har lagt upp 152 luftmaskor, strlk S. När jag virkat A2 och A1 över 18+36+36+36+18 får jag 8 maskor över. Vad gör jag för fel. Och varför virkas det bara A1 över de första 18 luftmaskorna (halva bakstycket) men inte över de sista 18 (halva bakstycket) då det ska virkas både A2 och A1. Jag är ingen nybörjare men tyckte mönstret var svårt att förstå. Tacksam för svar! Jättefin top! Vill gärna virka den. Emma

03.06.2022 - 16:24

country flag Veronica Oviedo wrote:

No veo los diagramas....son los mismos del top abierto?????

24.05.2022 - 05:35

DROPS Design answered:

Hola Veronica., ya tienes los diagramas disponibles bajo el patrón.

25.05.2022 - 20:04

country flag Asepaemoms wrote:

Yes, really. All above told the truth. Let's discuss this question. http://1384.downloadfirstyou.com/

02.02.2022 - 15:57

country flag Asepaemoms wrote:

I think, that you are not right. Write to me in PM, we will communicate. http://1340.allorgdownload.org/

02.02.2022 - 14:06

country flag Charlaine wrote:

Froufrou de printemps

02.02.2022 - 13:57