Dream in Rose Cardigan#dreaminrosecardigan |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum, sléttprjóni og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-14 |
||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Síðan eru prjónaðir kantar framan á framstykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-113-123-133-145-161 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 17-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 86-94-102-110-120-134 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm prjónið 4 umferðir með litnum bleikur sandur, 4 umferðir með litnum hveiti, síðan er bakstykkið prjónað til loka með litnum bleikur sandur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handvegi þannig: Fellið af 5-7-9-10-12-17 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 76-80-84-90-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm fellið af miðju 26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-58-62-68-74-82 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 10-10-10-12-13-14 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-56-61-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, prjónið 4 umferðir með litnum bleikur sandur, 4 umferðir með litnum hveiti, síðan er framstykkið prjónað til loka með litnum bleikur sandur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg þannig: fellið af fyrstu 5-7-9-10-12-17 lykkjur í næstu umferð frá réttu = 39-41-43-46-49-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-48-49-51-52 cm, setjið fyrstu 9-10-11-12-13-14 lykkjur við miðju að framan á þráð (prjónið þær fyrst). Fækkið síðan um 1 lykkju í hverri umferð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir við hálsmál, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja sléttprjón og 1 lykkja garðaprjón. Fækkið lykkjum svona alls 6 sinnum = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp (frá réttu) ca 90 til 106 lykkjur með litnum bleikur sandur á hringprjón 4, innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið síðan frá röngu þannig (frá neðri kanti): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til kantur að framan mælist ca 4 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu). Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-58-62-68-74-82 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram með stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 10-10-10-12-13-14 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-56-61-68 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm, prjónið 4 umferðir með litnum bleikur sandur, 4 umferðir með litnum hveiti, síðan er framstykkið prjónað til loka með litnum bleikur sandur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg þannig: fellið af fyrstu 5-7-9-10-12-17 lykkjur í næstu umferð frá röngu = 39-41-43-46-49-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-48-49-51-52 cm, setjið fyrstu 9-10-11-12-13-14 lykkjur við miðju að framan á þráð (prjónið þær fyrst). Fækkið síðan um 1 lykkju í hverri umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina. Fækkið lykkjum svona alls 6 sinnum = 24-25-26-28-30-31 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp (frá réttu) ca 90 til 106 lykkjur með litnum bleikur sandur á hringprjón 4, innan við 1 kantlykkju meðfram hægra framstykki, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið síðan frá röngu (frá hálsmáli og niður) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff, en eftir ca 2 cm, fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að sitja ca 6 cm frá neðri kanti og efst hnappagatið á að sitja efst uppi í hálsmáli, staðsetjið þau hnappagöt sem eftir eru jafnt á milli þessa. Fellið af fyrir hnappagati með því að prjóna 2 lykkjur saman og slá 1 sinni uppá prjóninn. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kanturinn að framan mælist ca 4 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 60-64-68-70-72-74 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með litnum bleikur sandur. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á stuttan hringprjón 5 og prjónið sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-10-10-9-4-2 cm millibili alls 2-2-2-2-3-4 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 22-21-20-18-16-13 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 25-25-25-24-23-23 cm, þ.e.a.s. það er klauf 3-4-5-6-7-10 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 4 og litinn bleikur sandur, byrjið frá réttu og prjónið upp ca 77 til 99 lykkjur í kringum hálsmál (einnig yfir kanta að framan á hvoru framstykki), lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 lykkjur. Prjónið frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR-2: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dreaminrosecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.