George skrifaði:
For the sleeve : where it saying cast off at beginning of each row - is that only on the right side? or should it be wrong side too? Tak!
11.09.2022 - 12:53DROPS Design svaraði:
Dear George, you have to cast off the stitches for the sleeve cap at the beginning of each row both from RS and from WS. Happy knitting!
12.09.2022 - 12:16
George skrifaði:
Hi, So in response to your answer on sleeve. Is 35 cm in width the circumference? of the sleeve. thank you,
11.09.2022 - 12:40DROPS Design svaraði:
Dear George, 35 cm is the circumference of the sleeve before working the sleeve cap, ie not the total width/length of the sleeve when casting off stitches for sleeve cap. Happy knitting!
12.09.2022 - 11:02
George skrifaði:
Hello! Could you clarify what the width of the top of our sleeve should be? The arm hole is same as your pattern 21 cm, but the sleeve top seems much smaller at 16 cms. (at its widest part), Doe s this work for the pattern when sewing? or have i done something wrong? I am not a very experienced sleeve maker. Tak ! for your help
07.09.2022 - 17:53DROPS Design svaraði:
Dear George, after all increases are done, sleeve should be approx. 35 cm in width, then you will cast off for sleeve cap and all the stitches cast off will be sewn along the armhole, so that you will have the correct width to fit the armhole. Happy knitting!
08.09.2022 - 09:05
Gerda Jersombeck skrifaði:
Hallo, gern würde ich diesen Pullover mit drops soft tweed stricken, da ich davon noch einiges übrig habe. was muss ich beachten bei der maschenanzahl. oder soll ich einfach eine andere Größe nehmen. ich habe S. geht das? lg, Gerda
08.08.2022 - 16:10DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Jersombeck, dieses Modell wird mit einem Garn der Garngruppe C (Bomull-Lin oder Paris) gestrickt, Soft Tweed gehört der Garngruppe B und ist dafür nicht die richtige Alternative; wenn Sie Soft Tweed zusammen mit Kid-Silk können Sie vielleicht die richtige Maschenprobe bekomen (aber zuerst mal schauen ob Ihnen die Textur gefällt), sonnst sollen Sie die ganze Anleitung neu umrechnen - oder ein anders Modell aussuchen. Viel Spaß beim stricken!
09.08.2022 - 08:33
Elin Hauksdottir skrifaði:
V-hálsmál, “ í síðustu umferð” frá réttu byrjar úrtaka, á þetta ekki að vera fyrstu umferð?
06.08.2022 - 11:13DROPS Design svaraði:
Blessuð Elín. Þetta er alveg rétt hjá þér. Það er búið að lagfæra þetta. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli. Takk fyrir.
08.08.2022 - 21:49
Julia Fletcher skrifaði:
I’m really struggling with your patterns, what is the second row of the rib for the front and back if it’s being worked back and forth as stated please
01.08.2022 - 13:37DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Fletcher, you work from RS *K1 twisted, P2*, from WS work stitches as they appear, ie rib will be worked *K2, P1 twisted*, starting from WS with P1 twisted - see this video. Happy knitting!
01.08.2022 - 16:18
Rinat skrifaði:
How do I - cast on 8 stitches at the end of the row by the neck, for the right front part. whit out it hanging loos?
02.06.2022 - 09:35DROPS Design svaraði:
Dear Rinat, you need to adjust the thread so that they don't get too loose. You can check out how to cast on at the end of a row here: https://www.garnstudio.com/video.php?id=94&lang=en Happy knitting!
04.06.2022 - 18:59
Hari skrifaði:
Thank you for clarification, but the pattern remains as clear as mud. Might be helpful a video of lace v neck. This is not coming out right .
30.04.2022 - 13:26
Hari skrifaði:
Could you also clarify on lace instructions - when you do a double YO is one of the stitches including in that i.e. first row double YO knit 4. (I have 5 stitches at that point).
28.04.2022 - 20:02DROPS Design svaraði:
Dear Hari, the double yarn over on 1st row count as 2 stitches = there are 9 sts at the end of 1st row (left side); on 2nd row work: K3, P1, then knit the first yarn over in the front loop (= K1), and knit the 2nd yarn over twisted (= K1 twisted), K3 (= 9 sts). The double yarn over worked on row 4 will be worked only one time on row 4. Happy knitting!
29.04.2022 - 08:18
Hari B skrifaði:
The directions for front are very confusing. Can you clarify them please. You seem to suggest to work the V neck lace on first section, but then say in front piece work piece on thread. \r\n\r\nIts a lovely pattern but I am floundering here.
28.04.2022 - 19:50DROPS Design svaraði:
Dear Hari B, to work the V-neck you will slip one half of the stitches on a thread and work the remaining stitches (= left shoulder when jumper is worn). You then work the 7 sts on the left side of piece (first 7 sts seen from WS, last 7 sts seen from RS) as explained under LACE EDGE LEFT SIDE decreasing from RS 17-22 times (see size), at the same time, you will have to cast off for neck at the beg of row from RS - When left shoulder is done, cast off and work right shoulder the same way with LACE EDGE RIGHT SIDE over the 7 first sts from RS and cast off for armhole at the beg of WS rows. Happy knitting!
29.04.2022 - 08:16
Wild and Free#wildandfreesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, í sléttprjóni með blúndukanti og V-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-35 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. BLÚNDUKANTUR HÆGRI HLIÐ: UMFERÐ 1 (frá réttu): 3 lykkjur slétt, 1 tvöfaldur uppsláttur, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (frá röngu): 5 lykkjur slétt, 1 lykkja snúin slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri), 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3: Fellið af 2 lykkjur (= 1 lykkja eftir á hægri prjóni), 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 tvöfaldur uppsláttur, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja snúin slétt. UMFERÐ 4: 2 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt í tvöfalda uppsláttinn, annar uppslátturinn er látinn falla niður, 4 lykkjur slétt. BLÚNDUKANTUR VINSTRI HLIÐ: UMFERÐ 1 (frá röngu) = 3 lykkjur slétt, 1 tvöfaldur uppsláttur, 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (frá réttu): 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja snúin slétt, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3: Fellið af 2 lykkjur (= 1 lykkja eftir á prjóni), 3 lykkjur slétt, 1 tvöfaldur uppsláttur, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja snúin slétt. UMFERÐ 4: 3 lykkjur slétt (annar uppslátturinn er látinn falla niður), 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að handvegi, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 83-92-98-107-119-131 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1. umferð = rétta): 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkja snúin slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú sléttprjón, JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 7-8-8-9-9-11 lykkjur jafnt yfir = 76-84-90-98-110-120 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 30-32-34-36-38-40 lykkjur í umferð. Fellið síðan af miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón við hálsmál þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur eins og á bakstykki og prjónið eins og bakstykkið þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm. Það eru 76-84-90-98-110-120 lykkjur í umferð. Nú skiptist framstykkið fyrir V-hálsmál, það á að prjóna blúndukant og lykkjum er fækkað fyrir handveg. Þetta er gert samtímis, lestu því V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Setjið síðustu 34-38-41-45-51-56 lykkjur á prjóni (séð frá réttu) á þráð. Prjónið síðan yfir fyrstu 42-46-49-53-59-64 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki innan við 8 lykkjur við miðju að framan. Fyrsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: Prjónið BLÚNDUKANTUR VINSTRI HLIÐ yfir fyrstu 7 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli – það er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við lykkjur í blúndukanti + 1 lykkja sléttprjón við miðju að framan (prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið blúndukant). Endurtakið úrtöku í hverri umferð frá réttu alls 17-18-19-20-21-22 sinnum. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá réttu: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 19-20-21-21-22-23 lykkjur (talið eftir 4. umferð í blúndumynstri) eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka 34-38-41-45-51-56 lykkjur af þræði á prjóninn. Prjónið 1 umferð frá réttu, í næstu umferð (ranga) fitjið upp 8 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál = 42-46-49-53-59-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki innan við 8 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp á prjóninn. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið BLÚNDUKANT HÆGRI HLIÐ yfir fyrstu 7 lykkjur, prjónið 1 lykkju sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir og prjónið út umferðina eins og áður. Fyrsta úrtaka fyrir V-hálsmáli er nú lokið. Endurtakið úrtöku í hverri umferð frá réttu (prjónið lykkjur með blúndukanti, prjónið 1 lykkju sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð) alls 17-18-19-20-21-22 sinnum. HANDVEGUR: Samtímis þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá réttu: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum. Eftir allar affellingar eru 19-20-21-21-22-23 lykkjur (talið 4. umferð í blúndumynstri) eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. ERMI: Fitjið upp 48-51-54-54-57-60 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-1-2-0-1-2 lykkjur jafnt yfir = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-8-6-4-3½-2½ cm millibili alls 4-5-6-8-9-11 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-42-42-41-39 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermin fram og til baka. Fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, en skiljið eftir 6 cm (= klauf). Leggið 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hægri hlið á framstykki yndir blúndukant á vinstra stykki og saumið niður. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wildandfreesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.