Doris skrifaði:
Könnte man sogar zur Arbeit/ bzw. im außerhäuslichen Raum anziehen; sieht nicht hausbacken aus - sehr gut!
15.01.2022 - 13:26
Charlaine skrifaði:
"Ma petite laine"
14.01.2022 - 19:25
Karin skrifaði:
Petite
14.01.2022 - 15:49
Kirsty skrifaði:
Creme Caramel
14.01.2022 - 15:49
Dina skrifaði:
Promenade
14.01.2022 - 14:07
Karin's Yarnworks skrifaði:
I'd like to suggest "White Coffee" as a name for this adorable twinset :-)
13.01.2022 - 16:36
Midsummer's Night#midsummersnightcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-23 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um í hliðum á bakstykki og framstykki): Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 2 lykkjur frá kanti með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): AUKIÐ ÚT Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 4 fyrstu lykkjur á eftir prjónamerki eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn. AUKIÐ ÚT Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur að framan í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-101-113-127-141-153 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 11-11-13-15-17-17 lykkjur jafnt yfir = 82-90-100-112-124-136 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm, byrjar mynstrið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 3-2-2-3-4-5 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 alls 7-8-9-10-11-12 sinnum, A.2, 3-2-2-3-4-5 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 4-4-4-6-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 90-98-108-118-130-142 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 2-2-3-3-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 86-94-102-112-118-128 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 5-4-3-3-1-1 lykkjur sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, fellið af fyrir hálsmáli mitt að aftan. JAFNFRAMT eru lykkjur settar á þráð fyrir skáhallandi öxl í hvorri hlið. Lestu ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI: Fellið af miðju 20-20-20-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni. SKÁHALLANDI ÖXL: Setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 8-9-10-10-11-12 lykkjur á þráð 3 sinnum og síðan síðustu 6-7-8-11-11-13 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð. Setjið til baka 30-34-38-41-44-49 lykkjur af þræði á hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að koma í veg fyrir göt þar sem snúið er við mitt í stykkinu, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið brugðið saman við fyrstu lykkju frá vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti og að efst á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 32-36-42-46-54-60 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-4-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 28-32-37-41-47-53 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 4-4-4-6-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 32-36-41-44-50-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 2-2-3-3-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 30-34-38-41-44-49 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á bakstykki, þ.e.a.s. byrjið frá röngu og setjið 8-9-10-10-11-12 lykkjur á þráð 3 sinnum og setjið síðan síðustu 6-7-8-11-11-13 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið settar á þráð (það er engin úrtaka fyrir hálsmáli á framstykki). Setjið til baka 30-34-38-41-44-49 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, en til að koma í veg fyrir göt þegar snúið er við mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið slétt saman við fyrstu lykkju frá vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti og að efst á öxl. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 32-36-42-46-54-60 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-4-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 28-32-37-41-47-53 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 4-4-4-6-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 32-36-41-44-50-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 2-2-3-3-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 30-34-38-41-44-49 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á hægra framstykki, þ.e.a.s. byrjið frá réttu og setjið 8-9-10-10-11-12 lykkjur á þráð 3 sinnum og setjið síðan síðustu 6-7-8-11-11-13 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið settar á þráð (það er engin úrtaka fyrir hálsmáli á framstykki). Setjið til baka 30-34-38-41-44-49 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu alveg eins og á hægra framstykki. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 54-56-58-60-62-64 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi) og 1 prjónamerki eftir 28-28-30-30-32-32 lykkjur (mitt á ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir sléttprjón, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm, prjónið A.2 mitt á ermi (prjónamerkið situr mitt í A.2). A.2 er endurtekið á hæðina. Prjónið þar til ermin mælist 51-50-49-48-45-44 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 52-51-50-49-48-47 cm, þ.e.a.s. það er klauf ca 1-1-1-1-3-3 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR AÐ FRAMAN: Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka. Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki, notið hringprjón 3,5 og Cotton Light og prjónið upp ca 123-129-133-141-145-149 lykkjur meðfram framstykki og hálsmáli að prjónamerki í hnakka (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1), prjónið upp 1 lykkju mitt að aftan, prjónið síðan upp jafnmargar lykkjur meðfram hægra framstykki, innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli að aftan og niður meðfram vinstra framstykki = ca 247-259-267-283-291-299 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kanturinn að framan mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu (séð frá réttu) á milli axlasaumanna aftan í hnakka. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman aftan í hnakka. Endurtakið útaukningu þegar kantur að framan mælist ca 6 cm. JAFNFRAM þegar kanturinn að framan mælist 5-5-5-6-6-6 cm, fellið af fyrir 2 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Neðsta hnappagatið er staðsett ca 12 cm frá neðri kanti og efsta ca 7-7-7-8-8-8 cm frá neðsta hnappagati. Prjónið áfram þar til kanturinn að framan mælist ca 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið aðeins laust af. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midsummersnightcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.