DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Cotton Light yarn
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 396.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4356.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Midsummer's Night

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með mynstri. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 232-23

#midsummersnightcardigan

DROPS Design: Mynstur cl-121
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 22, khakibrúnn

DROPS TALA NR 522: 2 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 396.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4356.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um í hliðum á bakstykki og framstykki):
Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 2 lykkjur frá kanti með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um ermar):
AUKIÐ ÚT Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 4 fyrstu lykkjur á eftir prjónamerki eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
AUKIÐ ÚT Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur að framan í stroffprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-101-113-127-141-153 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Cotton Light.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 11-11-13-15-17-17 lykkjur jafnt yfir = 82-90-100-112-124-136 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm, byrjar mynstrið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 3-2-2-3-4-5 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 alls 7-8-9-10-11-12 sinnum, A.2, 3-2-2-3-4-5 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 4-4-4-6-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 90-98-108-118-130-142 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 2-2-3-3-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 86-94-102-112-118-128 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 5-4-3-3-1-1 lykkjur sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, fellið af fyrir hálsmáli mitt að aftan. JAFNFRAMT eru lykkjur settar á þráð fyrir skáhallandi öxl í hvorri hlið. Lestu ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

ÚRTAKA FYRIR HÁLSMÁLI:
Fellið af miðju 20-20-20-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 8-9-10-10-11-12 lykkjur á þráð 3 sinnum og síðan síðustu 6-7-8-11-11-13 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð.
Setjið til baka 30-34-38-41-44-49 lykkjur af þræði á hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að koma í veg fyrir göt þar sem snúið er við mitt í stykkinu, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið brugðið saman við fyrstu lykkju frá vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti og að efst á öxl.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 32-36-42-46-54-60 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Cotton Light.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-4-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 28-32-37-41-47-53 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 4-4-4-6-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 32-36-41-44-50-56 lykkjur.

Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 2-2-3-3-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu = 30-34-38-41-44-49 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á bakstykki, þ.e.a.s. byrjið frá röngu og setjið 8-9-10-10-11-12 lykkjur á þráð 3 sinnum og setjið síðan síðustu 6-7-8-11-11-13 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið settar á þráð (það er engin úrtaka fyrir hálsmáli á framstykki).
Setjið til baka 30-34-38-41-44-49 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, en til að koma í veg fyrir göt þegar snúið er við mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið slétt saman við fyrstu lykkju frá vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti og að efst á öxl.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 32-36-42-46-54-60 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Cotton Light.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-4-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 28-32-37-41-47-53 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 4-4-4-6-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 32-36-41-44-50-56 lykkjur.

Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af 2-2-3-3-6-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 30-34-38-41-44-49 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á hægra framstykki, þ.e.a.s. byrjið frá réttu og setjið 8-9-10-10-11-12 lykkjur á þráð 3 sinnum og setjið síðan síðustu 6-7-8-11-11-13 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið settar á þráð (það er engin úrtaka fyrir hálsmáli á framstykki).
Setjið til baka 30-34-38-41-44-49 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu alveg eins og á hægra framstykki. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Fitjið upp 54-56-58-60-62-64 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-64 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi) og 1 prjónamerki eftir 28-28-30-30-32-32 lykkjur (mitt á ermi).
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir sléttprjón, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm, prjónið A.2 mitt á ermi (prjónamerkið situr mitt í A.2). A.2 er endurtekið á hæðina.
Prjónið þar til ermin mælist 51-50-49-48-45-44 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú skiptist stykkið mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 52-51-50-49-48-47 cm, þ.e.a.s. það er klauf ca 1-1-1-1-3-3 cm efst á ermi. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka. Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki, notið hringprjón 3,5 og Cotton Light og prjónið upp ca 123-129-133-141-145-149 lykkjur meðfram framstykki og hálsmáli að prjónamerki í hnakka (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1), prjónið upp 1 lykkju mitt að aftan, prjónið síðan upp jafnmargar lykkjur meðfram hægra framstykki, innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli að aftan og niður meðfram vinstra framstykki = ca 247-259-267-283-291-299 lykkjur.
Byrjið frá röngu og prjónið þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kanturinn að framan mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu (séð frá réttu) á milli axlasaumanna aftan í hnakka. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman aftan í hnakka. Endurtakið útaukningu þegar kantur að framan mælist ca 6 cm.
JAFNFRAM þegar kanturinn að framan mælist 5-5-5-6-6-6 cm, fellið af fyrir 2 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Neðsta hnappagatið er staðsett ca 12 cm frá neðri kanti og efsta ca 7-7-7-8-8-8 cm frá neðsta hnappagati.
Prjónið áfram þar til kanturinn að framan mælist ca 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið aðeins laust af.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu<br />
<br />
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
Diagram for DROPS 232-23
Diagram for DROPS 232-23
Diagram for DROPS 232-23

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Rebecca Woods skrifaði:

Hello, I'm printing this pattern off for my mum, do you have a printable version that's more accessible - ie bigger print and in black text please? thanks Rebecca

13.05.2022 - 15:35

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Woods, sorry we only have this version, ie text should be printed in black - maybe your printer's settings can help?

13.05.2022 - 16:21

country flag Trudy skrifaði:

Please clarify the instructions for the diagonal shoulder. The pattern says "Slip the 30-34-... stitches from the thread back on circular needle size 4mm. Knit 1 row from wrong side... Then loosely cast off all stitches... How are the shoulder stitches gradually decreased? How does one get from a 43cm back length (for example) to 46cm?

29.04.2022 - 21:15

DROPS Design svaraði:

Dear Trudy, the diagonal shoulder is started when the total length of the garment is 43 cm (for size S). The explanations on how to work the diagonal shoulders are found when working the back, but they are worked in the same way in the front. You work the first 8 stitches, which are slipped into a thread. You then work until the end of the row and back. You repeat this way until you have slipped 8 stitches 3 times in total. Now, you slip the next 6 stitches. So now, all of the stitches should be either cast off (in the neck) or slipped (in the shoulder). Now you slip back the stitches from the thread back to the needle (see in pattern), you knit 1 row and cast off. Happy knitting!

30.04.2022 - 22:09

country flag Pia skrifaði:

Bagstykke skrå skulder: Når jeg har sat masker på tråd ender jeg ved halskanten med den tråd jeg strikker med. (Venstre skulder). Skal jeg der bryde tråden jeg strikker med for at strikke maskerne fra tråden ret fra vrangen ? Eller skal jeg strikke en pind ret fra retten først?

25.04.2022 - 23:14

DROPS Design svaraði:

Hej Pia, Du har lukket de midterste masker af til hals. Hvis du starter med venstre skulder, så vender du når du kommer til halsen igen og strikker tilbage igen over venstre skulder. God fornøjelse!

27.04.2022 - 14:23

country flag Nathalie skrifaði:

Bonjour, je comme ce juste le dos en L. Je rencontre un problème pour repartir le point fantaisie sur 100 mailles. Il est demande de le reproduire 9 fois. Mais si je suis le diagramme, les motifs en croix ne sont pas du tout réguliers , je ne comprends pas . Pouvez vous m'aider ? Merci

23.04.2022 - 21:44

DROPS Design svaraði:

Bonjour Nathalie, tricotez ainsi: 1 m point mousse, 2 m jersey, répétez 9 fois les 10 mailles de A.1 (= 9x10=90), tricotez A.2 (= 4 m) et terminez par 2 m jersey, 1 m point mousse, soit: 1+2+90+4+2+1=100 m. Bon tricot!

25.04.2022 - 07:41

country flag Anna Ferri skrifaði:

Se nel davanti destro(taglia L)mi ritrovo con 37 maglie,come mai leggo di aumentare 1 maglia da entrambi i lati per 4 volte(quindi 8 maglie in totale)e poi leggo 41 maglie in totale?alla fine non mi trovo con il numero di maglie per la diagonale della spalla.grazie per l'attenzione, buona giornata

07.04.2022 - 12:23

DROPS Design svaraði:

Buonasera Anna, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo, deve aumentare solo a lato. Buon lavoro!

07.04.2022 - 21:18

country flag Ana Valentim skrifaði:

Posso substituir o fio deste modelo por Bomull-Lin? Que quantidade é que vou precisar? Obrigada

22.03.2022 - 20:18

DROPS Design svaraði:

A amostra do fio Bomull-Lin é diferente para agulhas 4,5-5mm. No entanto, pode fazer uma amostra com agulhas mais finas e ver se consegue obter um quadrado de 10 x 10 cm com 21 malhas em largura e 28 carreiras em altura. Se conseguir, não há qualquer problema. Bons tricôs!

23.03.2022 - 14:36

country flag Thelma Van Meerten skrifaði:

Warm springtime

18.01.2022 - 19:22

country flag Margherita skrifaði:

Caramel twin set

18.01.2022 - 13:04

country flag Au Fil De Lau skrifaði:

Twin-set Meadows Le Cardigan

17.01.2022 - 13:29

country flag Mette skrifaði:

Lady comfort

15.01.2022 - 21:01