Maureen Blaikie skrifaði:
Hi there, I am battling to print the patterns for Easter Dance Socks No. 299/35 and 299/34. I don't seem to be able to adjust the patter to fit an A4 page. Is it at all possible for you to email me the copies of these patterns. They are both beautiful and I would love to knit them. Thank you so much. Regards Maureen Blaikie
10.04.2022 - 16:40DROPS Design svaraði:
Dear Maureen, I'm sorry but we can't send any patterns by mail. The pattern seems to download normally on our end. You should check your printer or computer configuration to see if there is an issue with it. Happy knitting!
10.04.2022 - 19:40
Easter Dance Socks#easterdancesocks |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í sléttprjóni með marglitu mynstri með hjörtum, ungum / páskaungum, kanínum / páskakanínum og blómum. Stærð 35 - 43. Þema: Páskar.
DROPS 229-35 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. Í lokin eru saumaðir út litlir goggar á ungana. Lengd á sokk samsvarar lengd á fæti. Ef óskað er eftir að sokkurinn strekkist aðeins þegar hann er mátaður, þá er hægt að prjóna aðeins styttra á lengdina áður en fellt er af fyrir tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 76-80-84 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum bleikur í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós brúnn og haldið áfram þar til stroffið mælist 4-4-5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-8-12 lykkjur jafnt yfir = 64-72-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið A.1 alls 8-9-9 sinnum í umferðina hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 alls 8-9-9 sinnum í umferðina hringinn. Í umferð merktri með ör-1 er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 60-68-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-2 er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 56-64-64 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-3 er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 52-60-60 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-4 er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 48-56-56 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Í umferð merktri með ör-5 er fækkað um 0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 34-34-35 cm. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón með litnum ljós eik að réttu máli. Prjónið nú hæl og fót eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið með litnum ljós eik þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 12-13-14 lykkjur og haldið eftir þessum lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 24-26-28 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur með litnum ljós eik í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – síðar er stykkið mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 12-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 24-26-28 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 62-66-72 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28 lykkjur ofan á fæti. Prjónið A.3 í kringum fótinn. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-9-8 sinnum = 48-48-56 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós eik þar til stykkið mælist 12-13-15 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið nú A.4 alls 6-6-7 sinnum í kringum fótinn. Í umferð með ör-6 er fækkað um 4-0-4 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón með litnum bleikur til loka. Nú eru eftir ca 4-5-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en fellt er af fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-24-26 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón með litnum bleikur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-5-6 sinnum = 8-8-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. GOGGUR ÚTSAUMUR: Saumið út gogga á ungana sem voru prjónaðir í A.1 með flatsaumi í litnum sinnepsgulur – sjá mynsturteikningu A og B. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #easterdancesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.