Morning Dawn Cardigan#dawnmistcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni, með v-hálsmáli, picot og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-28 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 113 lykkjur), mínus kantlykkjur í garðaprjóni (t.d. 6 lykkjur) og deilið þeim 107 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 33) = 3,2. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman og lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur í garðaprjóni. V-HÁLSMÁL: Öll úrtaka er gerð frá réttu! HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. PICOT: Fellið af með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * stingið hægri prjóni inn á milli 2 næstu lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn inn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 3 nýir uppslættir á vinstri prjóni), prjónið sléttar lykkjur og fellið af 7 lykkjur (= 1. lykkja á hægri prjóni + 3 uppslættir + 3 lykkjur). Haldið nú áfram með að prjóna frá *-* og fellið af 7 lykkjur alveg eins meðfram öllum affellingarkantinum. Þegar það eru ekki nægilega margar lykkjur eftir til að gera nýjan picot þá eru þær lykkjur felldar af sem eftir eru. Klippið þræðina frá og þræðið í gegnum síðustu lykkjur. Festið enda. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp, í stykkjum og saumað saman í lokin. Bakstykkið er 5 cm lengra en framstykkin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 112-120-128-140-152-168 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 9 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 104-112-120-132-144-160 lykkjur (= 26-28-30-33-36-40 mynstureiningar með 4 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 113-121-129-141-153-169 lykkjur í umferð. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið um 33-35-37-41-43-49 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 81-87-93-101-111-121 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, brugðnar lykkjur út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 82-88-94-102-112-122 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 35-39-40-41-42-43 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 2-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið = 78-82-88-94-102-110 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið lykkjum eins og útskýrt er að ofan í 4. hverri umferð alls 2-3-4-5-8-10 sinnum = 74-76-80-84-86-90 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm. Fellið af miðju 32-32-32-34-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 20-21-23-24-25-27 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-58-62-70-74-82 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 48-52-56-64-68-76 lykkjur (= 12-13-14-16-17-19 mynstureiningar með 4 lykkjum), 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 55-59-63-71-75-83 lykkjur í umferð. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir og fækkið jafnframt um 15-16-17-20-20-23 lykkjur jafnt yfir, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni og fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 41-44-47-51-56-61 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið síðan lykkjum fyrir V-hálsmál, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg – lestið því V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en prjónað er áfram: V-HÁLSMÁL: Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm. Nú byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni og í annarri hverri umferð 15-14-13-15-14-13 sinnum og í 4. hverri umferð 1-2-3-2-3-4 sinnum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá röngu. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 2-3-4-5-8-10 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handvegi hefur verið gerð til loka eru 20-21-23-24-25-27 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-58-62-70-74-82 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 48-52-56-64-68-76 lykkjur (= 12-13-14-16-17-19 mynstureiningar með 4 lykkjum), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 55-59-63-71-75-83 lykkjur í umferð. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 15-16-17-20-20-23 lykkjur jafnt yfir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og 3 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= kantlykkja) = 41-44-47-51-56-61 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið síðan lykkjum fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg – lesið því V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en prjónað er áfram. V-HÁLSMÁL: Nú byrjar úrtaka fyrir V-HÁLSMÁL - sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni og í annarri hverri umferð 15-14-13-15-14-13 sinnum og í 4. hverri umferð 1-2-3-2-3-4 sinnum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 2-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá réttu, síðan er lykkjum fækkað fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 2-3-4-5-8-10 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handvegi hefur verið gerð til loka eru 20-21-23-24-25-27 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) hringinn í 5 cm. Prjónið nú mynstur A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-13-16-15-16-16 lykkjur jafnt yfir = 46-47-48-49-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Setjið einn merkiþráð í byrjun á umferð (= fyrir miðju undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 11-12-12-9-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 8½-8½-6½-5½-4½-3½ cm millibili alls 5-5-6-7-8-9 sinnum = 56-57-60-63-68-70 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 48-47-46-45-42-40 cm. Í næstu umferð eru felldar af 4-6-6-8-10-12 lykkjur fyrir miðju undir ermi (= 2-3-3-4-5-6 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn). Fellið síðan af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-2-2-1-1-1 lykkjur 1-2-3-4-7-10 sinnum og 6-5-4-5-3-0 lykkjur 1-1-1-1-1-0 sinni = 32-33-34-37-38-38 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Saumið hliðarsauma niður þar til 5 cm eru eftir á framstykki og 10 cm á bakstykki (= klauf). Setjið eitt merki fyrir miðju að aftan í hálsmáli. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið með hringprjón 4,5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið neðst á fram- og bakstykki og frá réttu og prjónið upp 144 til 168 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón upp að merki fyrir miðju aftan í hálsmáli. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kanturinn að framan mælist 3 cm. Fellið nú af fyrir 2 hnappagötum. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir lykkjurnar sem felldar voru af – ATH: Það er fallegast ef fellt er af fyrir hnappagötum í einingu með brugðnum lykkjum (séð frá réttu). Neðsta hnappagatið er staðsett ca 6 cm að neðan þar sem V-hálsmálið byrjar og efsta hnappagatið ca þar sem V-hálsmálið byrjar. Haldið áfram með stroff í 3 cm (6 cm alls) – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Nú er fellt af með PICOT – sjá útskýringu að ofan. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið með hringprjón 4,5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið við merki fyrir miðju að aftan í hálsmáli og prjónið upp frá réttu jafnmargar lykkjur og í hægri kanti að framan innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fellið nú af með picot. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dawnmistcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.